Morgunblaðið - 20.07.2018, Side 36
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 201. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Haraldur á sama skori og …
2. Segja Judd hafa gert …
3. Andlát: Áslaug Ragnars
4. Samþykktu tilboðið í jörðina
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarhátíðin Innipúkinn, sem
haldin er innan dyra, eins og nafnið
ber með sér, fer fram um verslunar-
mannahelgina og hefur nú verið til-
kynnt um nokkra listamenn og hljóm-
sveitir sem koma fram á hátíðinni, til
viðbótar þeim sem áður hefur verið
tilynnt um. Heildardagskrá hátíðar-
innar liggur nú fyrir og segja að-
standendur að dagskráin hafi sjaldan
eða aldrei verið jafnfjölbreytt.
Meðal þeirra sem bætast í hópinn
eru Aron Can, Ateria (sigursveit
Músíktilrauna í ár), Auður, Cell7,
ClubDub, Sísí Ey, hljómsveitin Valdi-
mar og Prins Póló. Innipúkinn hefst
3. ágúst og fer fram á Húrra og
Gauknum en einnig verður boðið upp
á götuhátíð meðan á hátíðinni stend-
ur. Af öðrum sem koma fram á Inni-
púkanum má nefna JóaPé og Króla,
Svölu Björgvins og Mugison.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Innipúkinn fitnar enn
Sumartónleikar Jazzklúbbsins Múl-
ans fara fram bæði á miðvikudags-
og föstudagskvöldum og í kvöld er
það Múlakvintettinn sem kemur fram
á Björtuloftum í Hörpu, ásamt góðum
gestum. Kvintettinn mun leika fjöl-
breytt verk sem áður hafa verið á
dagskrá hljómsveitarinnar. Meðlimir
kvintettsins eru saxófónleikararnir
Haukur Gröndal og Ólafur Jónsson,
píanóleikarinn Agnar Már Magn-
ússon, Þorgrímur Jónsson sem leikur
á bassa og trommu-
leikarinn Scott McLe-
more. Sérstakir gest-
ir verða bassa-
leikararnir Myles
Sloniker og Sig-
mar Þór Matt-
híasson.
Múlakvintettinn
djassar á Múlanum
Á laugardag Suðvestlæg átt, víða 3-8 m/s, en norðlægari á Vest-
fjörðum. Víða dálítil væta, en þurrt eystra. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast
SA- og A-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fer að rigna með morgninum, hvassast við
V-ströndina, en þurrt A-til fram á kvöld. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast
NA-lands.
VEÐUR
Stjarnan fer í stutta ferð til
Kaupmannahafnar en FH-
ingar leggja land undir fót
og fara til Ísraels. Það er
niðurstaðan eftir að liðin
komust bæði í 2. umferð
Evrópudeildar UEFA í fót-
bolta í gærkvöld. Stjarnan
sló út Nömme Kalje frá Eist-
landi og FH sló út Lahti frá
Finnlandi. Nú bíða íslensku
liðanna mjög öflugir and-
stæðingar. »1-3
Stjarnan og FH fá
erfiða mótherja
Haraldur Franklín Magnús var sjálf-
um sér og Íslendingum til sóma þeg-
ar hann keppti á sögufrægasta golf-
móti heims, The Open Championship,
fyrstur Íslendinga á Carnoustie á
austurströnd Skotlands í gær. Har-
aldur lék á 72 höggum, eða höggi yfir
pari vallarins. Sýndi hann mikla
keppnishörku og fékk fimm fugla á
seinni hluta hringsins eftir að hafa
verið í nokkrum erfiðleikum á fyrri
níu holunum. Að loknum fyrsta degi á
Haraldur ágæta möguleika á því að
ná í gegnum
niðurskurð. »1
Haraldur á ágæta mögu-
leika í Skotlandi
„Það er mjög jákvætt að sjá hversu
margar ungar stelpur hafa fengið
tækifæri í deildinni í sumar. Stelp-
urnar sem eru að koma upp í meist-
araflokkana eru alltaf að verða betri
og betri, sem er frábær þróun fyrir ís-
lenskan kvennafótbolta,“ segir Hildur
Antonsdóttir, knattspyrnukona úr
HK/Víkingi, sem lék mjög vel í 10.
umferð deildarinnar. »4
Stelpurnar verða alltaf
betri og betri
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Fimm íslenskir framhalds-
skólanemar verða meðal þátttak-
enda á Ólympíuleikunum í eðlis-
fræði í Lissabon í Portúgal. Mótið
verður formlega sett á sunnudag
en hópurinn heldur út í fyrra-
málið. Ingibjörg Haraldsdóttir,
annar fararstjóra hópsins, segir
að mótið sé eitt það stærsta sinn-
ar tegundar í heiminum.
„Það vilja margir fá að taka
þátt í þessu enda er þetta gríðar-
lega góð reynsla fyrir krakkana.
Við sáum það bersýnilega á því
hversu margir sóttust eftir því að
komast í hópinn,“ segir Ingibjörg.
Til að velja hópinn var haldin
forkeppni í um fimmtán fram-
haldsskólum á landinu í febrúar.
Að henni lokinni var haldin loka-
keppni í mars þar sem endanlegur
hópur var valinn. Í hópnum í ár
eru fjórir nemendur úr Mennta-
skólanum í Reykjavík og einn úr
Verslunarskóla Íslands. Undan-
farinn mánuð hafa nemendurnir
undirbúið sig af krafti fyrir
Ólympíuleikana.
Ekki eintóm verkefnavinna
„Það var ekki hægt að hefja æf-
ingar á fullu fyrr en 17. júní
vegna prófa hjá krökkunum. Frá
þeim tíma hafa þau verið alla
daga frá 8-16 í Háskóla Íslands að
læra. Þess utan eyddu þau einni
viku í Háskólanum í Reykjavík
þar sem háskólakennarar leið-
beindu þeim,“ segir Ingibjörg og
bætir við að verkefnin sem lögð
verði fyrir nemendurna á
Ólympíuleikunum séu afar erfið.
„Þetta er auðvitað svakalega erfið
keppni. Verkefnin sem þau þurfa
að leysa eru talsvert erfiðari en
þau eiga að venjast hér heima,“
segir Ingibjörg, en að hennar
sögn er ferðin út þó ekki eintóm
verkefnavinna enda gefst nægur
frítími á milli prófa. „Það verður
annars vegar prófað úr fræðilega
hlutanum á mánudag og hins veg-
ar úr verklega hlutanum á mið-
vikudag. Þess á milli fara þau í
alls kyns ferðir og fá að kynnast
öðrum keppendum á mótinu,“
segir Ingibjörg.
Spurð hvert hennar hlutverk í
mótinu sé segir Ingibjörg það
vera margvíslegt. „Við byrjum
strax þegar við komum að þýða
verkefnin á íslensku. Að prófunum
loknum förum við yfir auk þess
sem við reynum að berjast fyrir
því að okkar krakkar fái sem flest
stig fyrir sín svör,“ segir Ingi-
björg enn fremur.
Fimm ungir Ólympíufarar
Keppa í eðlis-
fræði fyrir hönd
Íslands í Portúgal
Morgunblaðið/Hari
Ólympíufarar Fimm íslenskir framhaldsskólanemar verða meðal þátttakenda á Ólympíuleikunum í eðlisfræði í
Lissabon í Portúgal, en mótið verður formlega sett á sunnudag og heldur hópurinn út í fyrramálið.
Á síðustu árum hafa nemendur
frá Asíu oftast borið sigur úr
býtum á Ólympíuleikunum í
eðlisfræði. Spurð út í ástæðu
þess segir Ingibjörg nemendur
frá löndum í álfunni haga undir-
búningi sínum með öðrum hætti.
„Þeir eru oft að undirbúa sig í
eitt eða jafnvel tvö ár fyrir
keppnina. Undirbúningur er hins
vegar tveir mánuðir hjá okkur.
Það má því í raun segja að þetta
séu atvinnumenn á móti áhuga-
mönnum,“ segir Ingibjörg.
Ísland hefur aldrei borið sigur
úr býtum á Ólympíuleikunum í
eðlisfræði. Ingibjörg segist ekki
bjartsýn á að breyting verði á
því í ár.
„Þessar Asíuþjóðir eru í sér-
flokki. Bara það að taka þátt
opnar samt ýmsa möguleika fyr-
ir okkar nemendur,“ segir Ingi-
björg.
Nemendur frá Asíu í sérflokki
LÍTILL MÖGULEIKI Á ÞVÍ AÐ ÍSLAND SIGRI Á LEIKUNUM