Morgunblaðið - 24.07.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.07.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018 1.259.000 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Verð frá m. vsk Ný se nding komin í hús Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Alvarleg vélarbilun varð í ms. Detti- fossi, skipi Eimskips, um miðjan síð- asta mánuð þegar skipið var á leið- inni til Hollands. Hollenskur dráttarbátur var fenginn til að draga Dettifoss til Rotterdam, um 100 sjó- mílna leið. Í ljós kom að lokar í aðalvél höfðu brotnað og tók viðgerðin fjórar vik- ur. Að henni lokinni fór skipið í áætl- unarsiglingar á nýjan leik og var það væntanlegt til Reykjavíkur klukkan fimm í morgun. Veður var mjög gott þegar Detti- foss bilaði og gékk vel að draga skip- ið til hafnar. Enginn skipverja var í hættu og það er það mikilvægasta þegar svona atvik koma upp, segir Ólafur W. Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips. Mönnum bregði illa þegar skip verður vélarvana úti á rúmsjó og það hafi verið lán í óláni að bilunin í Dettifossi kom upp en hásumar en ekki um hávetur. Eimskip brást við með því að setja önnur skip félagsins inn á áætlun Dettifoss og því varð engin röskun á fraktflutningum. Dettifoss og Goða- foss eru stærstu skip Eimskips, 14.664 brúttótonn. Til sömu ráða var gripið þegar Blikur, leiguskip félagsins, varð skyndilega vélarvana í Sundahöfn, rétt áður en það lagðist að bryggjuh- inn 25. júní sl. Önnur skip á vegum Eimskip fóru þá inn í áætlun Blikurs. Sprenging var í vélarrúmi Blikurs og myndaðist mikill reykur í vélarrrúm- inu. Hins vegar varð ekki eldur laus um borð. Viðgerðin á Blikur tók þrjár vikur og að því búnu fór skipið í reglubundnar áætlunarsiglingar á ný. Blikur er 4.448 brúttótonn. Afar óvenjulegt er að sögn Ólafs að svona alvarlegar bilanir verði í tveimur skipum samtímis. Það komi sér vel við þessar aðstæður að Eim- skip búi yfir viðbragðsáætlun sem komi í veg fyrir að áætlunarsiglingar fari ekki úr skorðum. Vélarbilun í tveimur skipum Eimskips  Dettifoss dreginn til hafnar í Hollandi  Var frá í mánuð Morgunblaðið/Guðmundur Árnason Sprenging Mikill viðbúnaður var þegar sprenging varð í vélarrúmi Blikurs. Tveir dráttarbátar voru kallaðir til enda varð skipið vélarvana í Sundahöfn. Karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Vestfjarða í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa með alvarlegum hætti ógnað lífi, heilsu og velferð eiginkonu sinnar. Ákærði mun hafa gripið í hár eiginkonu sinnar, dregið hana þannig fram úr rúmi sínu, slegið hana í andlitið og gripið í handleggi hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut stóra mar- bletti á olnboga, upphandlegg og úlnlið. Samkvæmt gögnum málsins mun ákærði hafa sýnt af sér óeðlilega hegðun í garð brotaþola um lengri tíma áður en atvikið átti sér stað. 24. maí sauð upp úr, ákærði beitti eiginkonu sína ofbeldi og hún flúði heimilið. Í ljósi skýlausrar játningar hins ákærða og þess að hann hefur ekki gerst sekur um ofbeldisbrot áður, þótti refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði, en fullnustu refsingar er frestað og skal hún falla niður að tveimur árum liðnum haldi hann skilorð. Viðurkenndi að hafa ógnað lífi konu sinnar BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hópur fjárfesta undirbýr byggingu hótels og smáhýsabyggðar við Hey- klif við Stöðvarfjörð. Jörðin er skráð í eigu félagsins CityLab ehf. Alexander Efanov, eigandi City- Lab ehf., er framkvæmdastjóri verk- efnisins. Hann segir það á undirbún- ingsstigi. Umræddir aðilar muni leggja fram fjármagnið sjálfir. Þeir séu með aðsetur í Mónakó. Alexander er arkitekt og hefur meðal annars starfað fyrir íslensku arkitektastofuna Arkís. Hann segir hugmyndina þá að byggja gistiskála sem falla vel inn í stórbrotið landslag svæðisins. Húsin verði hönnuð þannig að gestir upplifi sig eina í náttúrunni. Þannig verði upplifunin af náttúrunni sem best. Fram kom á vef Fjarðabyggðar í desember að gert væri ráð fyrir tíu húsum, 30 smáhýsum og 20-30 her- bergja hóteli. Getið var um félagið Heyklif ehf. í þessu samhengi. Alexander segir aðspurður að áformin hafi breyst. Nú sé horft til þess að byggja færri smáhýsi við Heyklif, ef til vill 10-15. Þá sé nú miðað við 40 herbergja hótel. Reksturinn geti hafist 2020 Hann telur aðspurður raunhæft að 1. hluti hótelsins verið tekinn í notkun árið 2020. Hótelið verði opn- að í áföngum. Áformað sé að reisa húsin úr einingum á staðnum. Fram- kvæmdirnar séu unnar í samstarfi við íslenska fyrirtækið Beka, sem veitir ráðgjöf og stjórnar verkefnum á sviði byggingarframkvæmda. Það hefur meðal annars komið að bygg- ingu Fosshótela við Jökulsárlón og Mývatn og að undirbúningi Iceland Parliament Hótel við Austurvöll. Spurður um markhópinn segir Al- exander að gistiskálarnir verði fyrir vandláta og hótelið fjórar stjörnur. Þá muni smáhýsi höfða til margra. Þegar Alexander er spurður um staðarvalið segir hann það svara spurningunni að koma á Heyklif. Þar sé stórbrotin náttúra. Svæðið sé eins og demantur sem hlúa þarf að. Félögin Heyklif ehf. og CityLab hafa sama heimilisfang í Kópavogi. Sextán hluthafar eru skráðir endan- legir eigendur í Heyklifi ehf. Í hópn- um eru stjórnendur hjá endur- skoðunarfyrirtækinu PwC á Íslandi. Horfa líka til framtíðar Líkindi eru með þessu verkefni og áformum Áslaugar Magnúsdóttur, fjárfestis og athafnakonu í New York, og meðfjárfesta, um byggingu hótelþorps í Össurárdal, norðan við Höfn. Líkt og við Heyklif verður þar horft til framtíðar við hönnun. Áslaug hefur í þessu skyni keypt jarðirnar Svínhóla og Svínhóla 2 við Össurárdal. Er jafnframt getið um félagið Álfaland Hotel ehf. í fast- eignaskrá. Skráðir eigendur þess fé- lags eru eigendur lögmannsstofunn- ar BBA Legal. Fram kom í Morgunblaðinu í júní að áætlað er að fyrsti áfangi ferðaþjónustuverkefn- isins í Össurarárdal, svonefnds Álfa- lands, muni kosta um 5 milljarða. Heyklif á Kambanesi við Stöðvarfjörð Breiðdalsvík Heyklif BREIÐDALUR Breiðdalsvík Stöðvar- fjörður Djúpivogur Fáskrúðs- fjörður Lúxusgisting nærri Stöðvarfirði  Fjárfestar frá Mónakó láta hanna gistihús fyrir vandláta  Hugmyndir eru um 40 herbergja hótel  Þá er í skoðun að byggja 10-15 smáhýsi  Framkvæmdastjóri verkefnisins segir svæðið stórbrotið Teikningar/Salab.org/Birt með leyfi Hönnun Þessi drög benda til framúrstefnulegrar hönnunar mannvirkja. Náttúruskoðun Gestir eiga að geta notið náttúrunnar og einverunnar. Ljósmynd/Alexander Efanov Aðdráttarafl Alexander Efanov segir náttúru svæðisins stórbrotna. Eyðijörðin Gunnarsstaðir var sýnd á röngum stað á korti í Morgunblaðinu sl. laugardag. Fjallað var um jörðina í frétt um jarðakaup erlendra aðila. Meðal annars birtist þar lítið kort sem sýndi Gunnarsstaði við Þistilfjörð. Þar eru bújarðir með sama nafni. Hið rétta er að eyði- jörðin Gunnarsstaðir er á Langa- nesströnd við botn Bakkaflóa. Beðist er velvirðingar á óná- kvæmninni. Bakkaflói BakkafjörðurMið- fjarðar- nessel Veðramót Gunnarsstaðir Gunnarsstaðir á Langanesströnd Vopnafjörður Þórshöfn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.