Morgunblaðið - 24.07.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.07.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018 Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Trilene XL nylon línur til lax- silungs- og sjóveiða í fjölbreyttu úrvali einnig taumaefni. Fjölbreyt úrval af hjólum og stöngum, til sportveiða fyrirliggjandi. Vöðluskór með skiptanlegum sóla, filt, gúmmí og negldir sólar. Tvennir sólar fylgja. Þessir skór voru valdir bestu Vöðlu skórnir á Efftex veiðisýningunni 2016. Ugly Stik kaststang- irnar eru sterku stangir á mark- aðnum. Gott úrval af kast- stöngum og hjólum, strandveiðstangir, Combo strand- veiðistöng og hjól, sjóstangir. Stærsta úrval stanga og hjóla til sjóveiði. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Veiðisport Selfossi Þjónustustöðvar N1 um allt land. Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ríkisútvarpið ohf. (RÚV) lítur ekki svo á að birting á upplestri á þjóð- söngnum Ó, Guð vors lands, í tengslum við þátttöku íslenska lands- liðsins í heimsmeistarakeppninni í Rússlandi teljist brot á lögum sem banna notkun þjóðsöngsins í við- skipta- og auglýsingaskyni. Telur RÚV að efnið teljist dagskrárkynning en ekki auglýsing þrátt fyrir að loka- orðin séu: „RÚV – okkar allra.“ For- sætisráðuneytið er með það til skoð- unar hvort myndskeiðið teljist brot á lögum um þjóðsöng Íslendinga. Ríkisútvarpið krafið svara Eftir að Ríkisútvarpið hóf að birta umrætt myndskeið þar sem ýmsir þjóðþekktir Íslendingar, þar á meðal Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra, lásu línur úr texta þjóðsöngs- ins, bárust fyrirspurnir til forsætis- ráðuneytisins sem fer með málefni þjóðsöngsins. Forsætisráðuneytið sendi útvarps- stjóra fyrirspurn 3. júlí þar sem vakin var athygli á því að ekki sé heimilt að flytja eða birta þjóðsönginn í annarri mynd en þeirri upprunalegu eða nota hann á nokkurn hátt í viðskipta- og auglýsingaskyni. Brot geti varðað sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. „Er þess farið á leit við Ríkisút- varpið að það upplýsi forsætisráðu- neytið um það á hvaða forsendum um- rædd notkun á þjóðsöng Íslendinga er byggð og hvernig hún samræmist fyrrgreindum ákvæðum laga nr. 7/ 1983 um þjóðsöng Íslendinga.“ Kynning, ekki auglýsing Ríkisútvarpið hefur nú svarað fyrirspurn ráðuneytisins og mótmæl- ir því að umrædd „dagskrárkynning“ teljist lögbrot með þeim hætti sem vísað er til í erindi forsætisráðuneyt- isins. Skrifstofustjóri Ríkisútvarpsins bendir í svarinu á það að dagskrár- kynningin hafi einskorðast við ljóð Matthíasar Jochumssonar og því telj- ist þetta ekki flutningur á þjóðsöng- num í skilningi laganna. Þá geti notk- unin tæplega talist í auglýsingaskyni þar sem um sé að ræða dagskrár- kynningu fyrir HM. Tekið er fram að dagskrárkynning- in hafi ekki verið birt í sérstökum og skýrt afmörkuðum auglýsingatímum RÚV. Lokaskiltið og lesturinn: „RÚV – okkar allra“ sé alla jafna notað í viðameiri dagskrárkynningar RÚV. Í svarinu kemur fram að eitt helsta markmið Ríkisútvarpsins sé að stuðla að félagslegri samheldni í íslensku samfélagi. HM í Rússlandi sé líklega einn stærsti sjónvarpsviðburðurinn í sögu RÚV. Gerðar hafi verið dag- skrárkynningar af ýmsu tagi til að byggja upp stemningu fyrir viðburð- inn, meðal annars til að sýna tengsl þjóðarinnar við fótbolta, stolt og stuðning við landsliðið. Nálgunin við flutning ljóðsins í dagskrárkynning- unni miði að því að sameina þjóðina. „Markmið dagskrárkynningarinn- ar og forsendur RÚV voru því að skapa stemningu og þjappa þjóðinni saman í aðdraganda þeirrar miklu þjóðhátíðar sem þátttaka íslenska landsliðsins í HM [í] knattspyrnu var,“ skrifar Margrét Magnúsdóttir, skrifstofustjóri Ríkisútvarpsins. Málið enn til skoðunar Í svari forsætisráðuneytisins til Morgunblaðsins kemur fram að svar Ríkisútvarpsins sé til skoðunar í ráðuneytinu. Endanleg afstaða verði tekin til umræddra álitaefna að lok- inni þeirri skoðun. Telja myndbandið ekki auglýsingu  Forsætisráðuneytið metur nú svör Ríkisútvarpsins vegna notkunar á texta þjóðsöngsins í tengslum við kynningu á RÚV  Ráðherra telur ekki að upphafleg beiðni um þátttöku hans stangist á við lögin Morgunblaðið/Eva Björk Útvarpshúsið Telst útgáfa RÚV af þjóðsöngnum dagskrárkynning eða auglýsing? Er dagskrárkynning ekki aug- lýsing? Svör Ríkisútvarpsins eru til skoðunar í forsætisráðuneytinu og er niðurstöðu þess að vænta. Í fyrirspurn forsæt- isráðuneyt- isins til Rík- isútvarpsins er sérstök athygli vakin á því að í boði út- varpsstjóra til forsætis- ráðherra um að taka þátt í upplestrinum sem hún þáði hafi ekki komið fram að myndskeiðið yrði mögulega notað í auglýsingaskyni. Í upp- haflegu boði útvarpsstjóra til forsætisráðherra, sem raunar var aukamál í tengslum við ósk um viðtal við ráðherra um mál- efni Ríkisútvarpsins, kom fram að myndbandið yrði undanfari HM í knattspyrnu þar sem hitað yrði upp fyrir ferð landsliðsins til Rússlands. Í svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins kemur fram það mat forsætis- ráðherra að fyrirhuguð notkun myndskeiðsins, eins og henni var lýst í erindi útvarpsins, hafi ekki farið í bága við lög um þjóðsöng Íslendinga. Ekki kynnt sem auglýsing FORSÆTISRÁÐHERRA TÓK ÞÁTT Katrín Jakobsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.