Morgunblaðið - 24.07.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það eru mörg handtökin sem þarf til
þess að koma heilu verki í höfn. Láttu engan
þvinga þig til samkomulags heldur láttu í þér
heyra.
20. apríl - 20. maí
Naut Að reyna að breyta hegðun einhverra
annarra er næstum því erfiðara en að losa sig
við slæman ávana. Viljirðu ná málum fram af
einhverju viti þarftu að vera mjög þolinmóður.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert að reyna að gera of margt í
einu. Vertu óhræddur við að henda gömlum
hlutum og því sem skiptir þig ekki lengur
máli.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú er tími ævintýranna svo gríptu þau
tækifæri sem gefast til að upplifa þau. Ekki
verða hissa eða móðgaður ef jafnvel bestu
vinir setja út á persónulegar framfarir þínar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú munt að öllum líkindum taka farsæl-
ar ákvarðanir varðandi vinnuna í dag og á
morgun. Hugmyndir þínar njóta meiri stuðn-
ings en þú áleist í upphafi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ef sambandi lýkur tapar maður ekki
aðeins því sem maður lagði sjálfur af mörk-
um, heldur líka því sem hinn aðilinn hafði
fram að færa.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er smá misræmi í því hvernig þú
sérð þig og hvaða augum allir aðrir heiminum
líta þig. Þolinmæðin er ekki á hverju strái
þessa dagana.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert að því kominn að gefast
upp og skyldi engan undra. Gefðu öðrum
tækifæri og svo geturðu vegið og metið það
sem þeir segja og tekið svo þína ákvörðun.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er stundum nauðsynlegt að
taka áhættu til þess að koma málum fram.
Gættu þess að haga væntingum þínum alltaf í
samræmi við það sem þú veist mögulegt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fjölskyldusamkomur og umræður
um gömlu góðu dagana eru á döfinni. Fáðu
fólk til til að taka höndum saman í sameig-
inlegu máli.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það getur komið sér vel að vera
gæddur hæfilegum skammti af þrjósku þegar
allir vilja kasta sinni ábyrgð yfir á þig. Vertu
opinn og nærgætinn og þá muntu hafa þitt
fram.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin ástæða fyrir þig til þess
að bera ábyrgð á öllum sem í kringum þig eru.
Vertu vel undirbúinn og hafðu öll þín mál á
hreinu.
Ólafur Stefánsson hefur sett áLeirinn skemmtilegan brag
sem ber það með sér að vera ortur í
þann mund sem þingfundur var sett-
ur á Þingvöllum í tilefni af því að öld
var liðin síðan samningar tókust við
Dani um að Ísland yrði fullvalda ríki.
Bruna’ á Þingvöll í dag
er á liði því lag
og þau leggja á heiðina snemma.
Því að fullveldið er
orðið fjörgamalt hér
svo að fagnaður ætti’ ekki’ að skemma.
Undir Lögbergsins vegg
sólu lít eða hregg
sem að leikur við gestina prúða.
Verði sviti um koll
eða setji að hroll
þá er sjálfgert með teppum að dúða.
Þó að veislan sé dýr
og ei verðurinn rýr
kokteill vísast af fræðingum hristur,
Þá sig renta í kvöld
þvílík hátíðahöld
Þó að heilnæmur svefn þar sé misstur.
En um síðir í kvöld
bæði’ á svanna og höld
værðin svífur af störfum þann daginn.
Verkin letruð og skráð
verða’ í lengd sem og bráð.
– og hér lok set við Þingvallabraginn.
Þórður Tómasson í Skógum
skráði íslenska þjóðfræði eftir Sig-
urði Þórðarsyni frá Brunnhól, sem
síðan var gefið út í bókinni „Þjóð-
hættir og þjóðtrú“. Það er einkar
skemmtileg lesning bæði vegna
málsins og þess mikla fróðleiks sem
þar er að finna um venjur, siði og
hætti fólks í Austur-Skaftafellssýslu
um aldamótin 1900. Ég gríp niður
þar sem stendur „kveðið um hesta
og menn“:
Svartur maður á svörtum jór,
svarta þenur hann kríka.
Hleypur með ’onum hundur stór,
hann er svartur líka.
Látum þramma þófajó
þó ’onum veiti rig og slig.
Hann er nógu hófastór
heim að bera þig og mig.
Halldór litli hleypti á skeið
hestinum sínum brúna.
Ferðin hans var furðu greið,
fallega reið hann núna.
Lítið þýðir að berja hann Brún,
hann batnar ei við slögin.
Fús er hann að fara í tún
og fæst ekki um lögin.
Ljótur, Sóti, Léttfeti,
langi Rauður, Grani,
Bleikur, Gulur, Gráskjóni,
Gráni, Penni, Mani.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Þingvallafundi
og hestar og menn
„VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ
BRAUTRYÐJANDA.“
„FINNST ÞÉR AÐ ÉG ÆTTI AÐ LÁTA HÁRIÐ
VAXA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann er
tilbúinn með bros, koss
og búinn að elda þegar
þú kemur heim.
VIÐ ÆTTUM AÐ
ÞRÍFA HÚSIÐ
SMAKK!
AF HVERJU
GERÐIRÐU
ÞETTA?!
VAR BARA AÐ
SKIPTA UM
STÖÐ
VIRKISGRÖFIN
VAR SLÆM
HUGMYND!
NEI, ALLS
EKKI! VATNIÐ
BJARGAR
OKKUR FRÁ
HRÓLFI
HRÆÐILEGA!
EN HVAÐ
MUN BJARGA
OKKUR FRÁ
MYGLUSVEPPNUM
Í KJALLARANUM?
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Margt er skrýtið í kýrhausnum,eins og dæmin sanna. Þannig
benti franskur kunningi Víkverja
honum á það á dögunum að sláandi
líkindi eru með íslenska orðinu
„kartöflur“ og franska orðinu yfir
greiðslukort, sem mun vera „carte
bleue“. Þá erum við einkum að tala
um framburðinn. Fyrir vikið man sá
franski alltaf eftir að borga korta-
reikninginn sinn þegar hann sér
kartöflur eða þær ber á góma hér í
fásinninu.
x x x
Eins og sleipir tungumálamennhafa þegar gert sér grein fyrir
þýðir „carte bleue“ einfaldlega
„blátt kort“, sem helgast af því, að
sögn kunningjans, að í öndverðu
voru greiðslukort í Frakklandi ávallt
blá á litinn. Víkverji beðst velvirð-
ingar á því að hafa gleymt að spyrja
hvort það hafi nokkuð breyst.
x x x
Allt upplýstist þetta eftir að annarkunningi Víkverja, sem jafn-
framt er kunningi hins franska
kunningja, upplýsti í óspurðum
fréttum að hann væri alinn upp á ýsu
og kartöflum. Það hlýtur að teljast
gott uppeldi.
x x x
Enda þótt glæný línuýsa með kart-öflum og mörfloti standi alltaf
fyrir sínu ber að fagna aukinni fjöl-
breytni þegar kemur að því að reiða
fram fiskrétti hér á landi. Hug-
myndaauðgi margra veitingahúsa er
til mikillar fyrirmyndar. Um það eru
Víkverji og hinn franski kunningi
hans sammála. „Fiskurinn hérna er
mjög góður,“ sagði Frakkinn í fram-
haldi af kartöfluumræðunni á dög-
unum.
x x x
Annars er merkilegt hvernigmerking orða getur skolast til.
Víkverja verður til dæmis hugsað til
Íslendings sem nam í Frakklandi og
var þar gjarnan kallaður „le petit
garçon“ vegna smæðar sinnar. Eftir
að hann kom heim og greindi fé-
lögum sínum frá þessu var hann
aldrei kallaður annað en „Lubbi Tík-
arson“.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er nálægur þeim sem hafa
sundurmarið hjarta, hann hjálpar
þeim sem hafa sundurkraminn anda.
(Sálm: 34.19)