Morgunblaðið - 24.07.2018, Side 11

Morgunblaðið - 24.07.2018, Side 11
Morgunblaðið/Ómar Pósthúsið Kveður miðbæinn. Pósthúsinu í Pósthússtræti verður lokað í nóvember næstkomandi. Starfsemin verður flutt í Bændahöll- ina við Hagatorg. Sama gildir um pósthúsið á Eiðistorgi. Húsnæði pósthússins í Póst- hússtræti er í eigu Reita fasteigna- félags hf. en Reykjavíkurborg leigir stærstan hluta hússins undir starf- semi Hins hússins. Guðjón Auð- unsson, forstjóri Reita, segir að ákveðið verði í samvinnu við Reykja- víkurborg hvert hlutverk hússins verði í framtíðinni. Framhaldið sé hins vegar óljóst og ekki víst hvað muni koma í stað þeirrar starfsemi sem þar er nú til húsa. Í svari Pósts- ins við fyrirspurn RÚV í gær kom fram að ástæður flutninganna séu þær að núverandi húsnæði í miðborg- inni henti ekki lengur starfseminni. Gatan er kennd við pósthúsið sem var opnað árið 1872, þar sem nú er Hótel Borg, í Pósthússtræti 11. Síðar var starfsemin flutt í núverandi hús- næði pósthússins í Pósthússtræti. 150 ára sögu pósthúsa í götunni lýkur því í nóvember næstkomandi, þegar starfsemin verður flutt. Pósthúsið í miðbæn- um flutt  Starfsemin verður flutt í Bændahöllina Mosfellsbær Þingvallavegur Vesturlandsvegur Slysstaður M O S F E L L S D A L U R Kortagrunnur: openstreetmap.org Þing vellir Re ykj aví k Áreksturinn varð á Þingvallavegi móts við afleggjarann að Æsustöðum í Mosfellsdal1 36 Slysstaðurinn í Mosfellsdal Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is „Jú, það er auðvitað frekar í þá áttina, það er alveg ljóst,“ segir Jónas Snæbjörnsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs og starfandi forstjóri Vegagerð- arinnar, aðspurður hvort það sé ekki fullt tilefni til að flýta fyrir áætlunum um endurbætur á Þing- vallavegi í Mosfellsdal í kjölfar banaslyss um helgina. Er ekki í núverandi áætlun Áætlanir um að koma upp tveimur hringtorgum á Þingvalla- vegi eru í auglýsingaferli, en ekki er gert ráð fyrir framkvæmdinni á samgönguáætlun sem gildir til loka þessa árs. Ný samgönguáætl- un fyrir árin 2019-2023 verður sett upp í haust, segir Jónas í samtali við Morgunblaðið. Aðspurður hvort úrbætur á Þingvallavegi í gegnum Mosfells- dal verði ofarlega á lista nýrrar samgönguáætlunar segir Jónas að svo verði alveg örugglega. „En það eru einfaldlega orðin ansi mörg mál sem verða einnig ofarlega á listanum,“ segir Jónas að auki um vegamál. Fulltrúar Vegagerðarinnar fund- uðu eftir hádegi í gær, m.a. um umferðaröryggi Þingvallavegar. Í samtali við mbl.is eftir fundinn segir Jónas að Vegagerðin muni á næstunni banna framúrakstur á varasömum vegkafla í Mosfellsdal þar sem margir afleggjarar liggja við þéttbýli í dalnum. Segir hann þetta dæmi um úrbætur sem hægt sé að ráðast í strax. Tilefni til að flýta fyrir endurbótum  Vegagerðin hefur ákveðið að banna framúrakstur á vegkafla í Mosfellsdal FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Útsalan í fullum gangi Útsöluverð 3.599 verð áður 11.995 stærðir 36-42 30-70% afsláttur Útsöluverð 2.399 verð áður 7.995 stærðir 36-41 Str. 36-56 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 3.900 Kr. 2.900 Kr. 2.000 Verð- hrun á öllum útsölubuxum Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Litir í skrúða biskupa, presta og djákna eru táknrænir og geta meðal annars vísað til atburða í kirkjusögu viðkomandi landa. Á mynd sem birtist í Morgun- blaðinu í gær af prósessíu við vígslu Kristjáns Björnssonar, nýkjörins vígslubiskups í Skálholti, og vakið hef- ur mikla athygli, sáust biskupar frá fjórum löndum auk Íslands, skrýddir mismunandi litum biskupskápum og þrír þeirra báru mítur á höfði. Litir vísa til atriða í sögunni „Á myndinni má sjá að biskuparnir klæðast biskupskápum, sem notaðar eru við hátíðleg tilefni sem þessi. Er- lendu biskuparnir eru með mítur á höfðinu en það hefur ekki verið hefð fyrir því að biskupar á Íslandi noti mítur, þótt þau séu til,“ segir Þorvald- ur Víðisson biskupsritari. „Prestarnir, eins og Heri Joensen, sóknarprestur í Þórshöfn í Fær- eyjum, sem sést þarna þriðji í röðinni, klæðast svörtum hempum með pípu- kraga,“ segir Þorvaldur. Spurður um litina á kápunum svar- ar Þorvaldur: „Engin algild regla er um að biskup skuli íklæðast ákveðnum litum, en litasamsetningar og myndaval á biskupskápum geta til dæmis vísað til atriða í kirkjusögu við- komandi lands. Innocentíus páfi III. setti á 13. öld reglur um liti til viðmið- unar og hefur þeim verið fylgt innan rómversku kirkjunnar síðan og innan lúthersku kirkjunnar síðan á 20. öld. Hvítur er litur fagnaðar og hreinleika og þess vegna litur stórhátíða, en gul- ur og gylltur eru einnig notaðir á þessum dögum. Sem dæmi fer fremstur Brian Mash, biskup hjá anglíkönsku kirkjunni í Bandaríkj- unum, klæddur í hvítt og gyllt. Fjólu- blár er litur iðrunar og yfirbótar og því notaður á föstunni og aðventu. Grænn táknar von og vöxt og er litur sunnudaga eftir þrettánda og sunnu- daganna eftir þrenningarhátíð.“ Gylltur táknar fögnuð en fjólublár iðrun Morgunblaðið/Árni Sæberg Táknrænt Finnski biskupinn Teemu O. Laajasalo klæddist bláu en liturinn táknar himnaríki og sannleika. Við hlið hans gengur Eva Nordung Byström, biskup í Härnösand-biskupsdæmi í Svíþjóð, klædd í gyllta kápu.  Táknrænir litir á biskupskápum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur engar skýringar á auknum akstri undir áhrifum ávana- og fíkni- efna. Þetta sagði Guðbrandur Sig- urðsson, aðalvarðstjóri umferð- ardeildar, í samtali við mbl.is í gær en 163 slík brot voru skráð hjá lögregl- unni í júní. Er það metfjöldi í einum mánuði síðan samræmdar mælingar hófust árið 1999. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði sem var birt á vef lög- reglunnar fyrir helgi. Mikil fjölgun hefur átt sér stað í þessum brota- flokki ef miðað er við meðalfjölda síð- ustu sex og síðustu tólf mánuði. Þá hefur brotum fjölgað um 53% það sem af er ári samanborið við meðaltal á sama tímabili síðustu þrjú ár. Stóraukinn fíkni- efnaakstur í júní Þorkell Harðarson var staddur á markaði skammt frá afleggjaranum að Æsustöðum þegar slysið varð. „Við heyrum ægileg bremsuhljóð og svo svakalegan hvell við áreksturinn. Það stökkva allir strax til því það var al- veg augljóst að eitthvað hræðilegt hafði gerst,“ segir Þorkell í samtali við Morgunblaðið, spurður um upplifun sína af slysinu. Strax var hringt í Neyð- arlínuna og segir Þorkell að svo heppilega vildi til að læknir var í bíl, sem kom beint í kjölfarið, og gat hann veitt aðstoð. Stuttu seinna kom annar læknir, sem býr í dalnum, á staðinn á meðan lögregla og sjúkrabílar voru á leiðinni. Þorkell, sem lengi vel bjó í Mosfellsdal, gagnrýnir aðgerðaleysi í úr- bótum á veginum, sem lengi hefur verið slysagildra, t.d. vegna hraðaksturs. Ægileg bremsuhljóð og hvellur FÓLK Í GRENND VIÐ AFLEGGJARANN STÖKK TIL HJÁLPAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.