Morgunblaðið - 24.07.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 24.07.2018, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is STUÐNINGSHJÁLPARTÆKI ÖRYGGI Í STURTUNNI Heilbrigðissvið Fastus býður upp á heildarlausnir í endurhæfingar-, hjúkrunar- og hjálpartækjum. Í verslun okkar að Síðumúla 16 er að finna gott úrval af heilbrigðisvörum og þar leggur sérhæft fagfólk metnað sinn í að finna lausnir og aðstoða þig við val á vörum. Komdu við hjá okkur – við tökum vel á móti þér og finnum réttu lausnina fyrir þig. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið KEBE Hvíldarstólar Tegundir: Rest og Fox Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is „Við vorum nánast verkefnalaus í byrjun sumars og ákváðum að bíða ekki eftir að verkefnin kæmu til okkar heldur láta til skarar skríða,“ segir Dominique Gyða Sigrúnardóttir, leikstjóri og hand- ritshöfundur stuttmyndarinnar Blóðmeri, sem tökur hefjast á í dag. Leiðin liggur til Skagafjarðar þar sem vinur hennar og gamall bekkjarbróðir af listabraut Lista- háskóla Íslands, Baltasar Breki Samper, þreytir frumraun sína sem kvikmyndatökumaður. Með í för er Sigríður Rut Marrow, fram- leiðslustjóri hjá DRIF Colletive, fyrirtæki sem þremenningarnir settu á laggirnar til að halda utan um verkefnið. Og vitaskuld leik- ararnir: Steinunn Arinbjarnar- dóttir, Marinella Arnórsdóttir, Marta Hlín Þorsteinsdóttir og Al- bert Halldórsson. „Blóðmeri er listræn stuttmynd með samfélagslegum undirtón og vonandi eitt af mörgum verkefnum sem við munum halda utan um í framtíðinni undir merkjum DRIF. Við sem að gerð Blóðmerar kom- um, leikendur og aðrir, erum öll vinir og kunningjar með mikinn áhuga á leiklist, leikstjórn og öllu sem viðkemur kvikmyndagerð. Það er okkur mikill heiður að Sóley, vinkona mín, sem er löngu orðin fræg tónlistarkona á heimsvísu, ætlar að semja sérstakt tónverk fyrir myndina,“ segir Dominique Gyða. Andlegt ferðalag Hún býst við að upptökur standi yfir í fjóra daga og myndin verði fimm mínútna löng eða þar um bil. „Í verkinu fylgjast áhorfendur með þremur ungum vinkonum, sem fara í ferðalag um landið eftir að hafa flúið erfiðar aðstæður. Þótt birtingarmynd ferðalagsins sé bók- stafleg, speglast andleg líðan kvennanna ekki síður í verkinu, enda eiga konurnar það sameig- inlegt að hafa orðið fyrir kyn- ferðisofbeldi, en það er málefni sem kemur öllum við á einn eða annan hátt.“ Að þessu sögðu kemur ekki á óvart að #metoo-byltingin hafi orðið Dominique Gyðu innblástur. Sérstaklega sátu í henni samræður sem hún og um tíu konur áttu á dögunum og alls konar minningar, sem þær höfðu bælt niður, komu upp á yfirborðið. Ekki bara hjá einni kona heldur öllum. Heimur kvenna og dýra „Blóðmeri sýnir þó ekki það sem raunverulega gerðist hjá þessum tilteknu konum. Þess í stað er sjónum beint að því sem gerist þegar þrjár konur reyna að brjót- ast út úr erfiðum aðstæðum sínum og leita hver til annarrar, enda eiga þær svipaða lífsreynslu að baki. Í kjölfar #metoo-bylting- arinnar er umræðan um kynferð- islegt ofbeldi ekki lengur tabú. Sem slíkt féll það enda um sjálft sig þegar konur stigu fram og í ljós kom að flestar höfðu upplifað kynferðislegt ofbeldi eða áreitni með einum eða öðrum hætti.“ –Bætir stuttmyndin einhverju við orðræðuna í kjölfar #metoo, eða er tekið öðruvísi á viðfangsefn- inu en áður hefur verið gert? „Við vörpum ljósi á annan og ekki svo fallegan heim þar sem dýr verða fyrir ofbeldi og þá yfir- leitt kvendýr. Á ferðalagi sínu mæta söguhetjurnar hópi af mer- um, sem reynast blóðmerar eins og þær merar eru kallaðar sem einungis eru notaðar í þeim til- gangi að taka blóð úr þeim þegar þær eru fylfullar. Þegar svo folald- ið fæðist er það sent í sláturhús. Blóðið úr merunum er notað til þess að búa til frjósemislyf fyrir önnur dýr, svo sem svín og sauðfé. Milli kvennanna og meranna myndast einhvers konar tengsl, báðir hóparnir hafa þurft að þola ofbeldi fyrir hagsmuni annarra, ef svo má að orði komst,“ segir Dom- inique Gyða. Tvenns konar tabú –Er viðfangsefnið þá tvenns konar tabú, annars vegar ofbeldi gagnvart konum og hins vegar dýrum? „Í rauninni erum við að opna og fjalla um ennþá meira tabú, sem er ill meðferð okkar á dýrum og þá sérstaklega kvendýrum í þessu til- viki. Samfélagið réttlætir gjarnan ofbeldi gagnvart dýrum með því að það sé nauðsynlegt, mennirnir séu dýrunum æðri og svona hafi þetta alltaf verið,“ segir Dominique Gyða og viðurkennir að meðferð dýra sé henni mikið hjartans mál. Blóðmeri er, að hennar sögn, óð- ur til allra þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi, nokk- urs konar listrænt uppgjör. „Um leið vekjum við athygli á annars konar ofbeldi, sem ennþá er mikið tabú; ill meðferð á dýrum í mann- anna þágu.“ Þríeykið í DRIF er með söfn- unarsíðu á Karolinafund. Samfélagslegur undirtónn  #metoo-byltingin og blóðmerar inn- blástur stuttmyndarinnar Blóðmeri Samstarfsmenn Baltasar kvikmyndatökumaður, Dominique Gyða leikstjóri og Sigríður Rut framleiðslustjóri. Listasalinn David Killen í New York sem keypti innhald geymslu- gáms fyrir 1,6 milljónir IKR fann sex málverk sem hann er viss um að séu eftir meistara Willem de Kooning, og eitt verk eftir módern- istann Paul Klee. Þar datt hann aldeilis í lukkupottinn því t.d. seld- ist verk eftir de Koonings frá árinu 1955 á 500 milljónir dollara, eða um 53 milljarða IKR árið 1915. Killen sagðist hafa keypt gáminn úr dánarbúi listaverkasafnara og ekki hafa búist við miklu þegar hann rakst á stóran kassa með nafni de Kooning. Skiptastjórinn hafði talið málverkin vera eftir- prentanir, en þau eru ekki merkt af málaranum, svo Killen fékk sér- fræðing sem vann fyrir de Kooning og eiginkonu hans, til að greina verkin. Hann er sannfærður um að verkin séu eftir de Kooning, og að hann hafi málað þau á áttunda ára- tugnum, en verkin þóttu ekki merkileg á sínum tíma. Árið 2016 seldist hins vegar verk hans frá 1977 á sjö milljarða IKR. Killen mun sýna verkin í dag og setja þau í sölu með haustinu. Fann sex málverk eftir de Kooning Meistari Willem de Kooning á vinnustofu sinni árið 1961.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.