Morgunblaðið - 24.07.2018, Page 36

Morgunblaðið - 24.07.2018, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 205. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Nafn konunnar sem lést á... 2. Stöðugleikinn „með ólíkindum“ 3. Sakaðir um hópnauðgun á Ibiza 4. Flugfargjöld hækka um 23% »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hafsteinn Gunnar Sigurðsson hlaut í fyrradag verðlaun fyrir bestu leikstjórn í flokki alþjóðlegra kvik- mynda á kvikmyndahátíðinni Skip City International D-Cinema Festival í Tókýó í Japan. Verðlaunin hlaut hann fyrir leikstjórn Undir trénu sem sýnd var á hátíðinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlaut leikstjórnar- verðlaun í Tókýó  Tónlistarmað- urinn Ásgeir Trausti Einarsson kemur fram í Seyðisfjarðar- kirkju í kvöld kl. 21 en hann er þessa dagana á tónleikaferð um landið og heldur alls 14 tónleika fram til 1. ágúst. Á tónleikunum frumflytur hann m.a. ný lög sem verða á hans þriðju plötu sem er væntanleg. Ásgeir kemur fram í Seyðisfjarðarkirkju  Bandaríski saxófónleikarinn Mike Tracy kemur fram með ASA tríói á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30. Tríóið skipa Andrés Þór Gunn- laugsson á gítar, Agnar Már Magn- ússon á orgel og Scott McLemore á trommur. Tracy er yfirmaður djass- deildar tónlistarháskólans í Louisville og mun með ASA flytja þekkta djassstandarda. Tracy með ASA tríói Á miðvikudag Suðaustlæg átt, 3-8 m/s og rigning með köflum eða skúrir. Hiti 8 til 15 stig, svalast á annesjum austan til. Á fimmtudag Vaxandi austan- og norðaustanátt. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-10 m/s norðvestan til, en annars hæg norðlæg eða breytileg átt. Víða skúrir eða lítilsháttar rigning. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast sunnan heiða. VEÐUR „Það er mjög mikilvægt fyrir mig persónulega að hafa náð þessu undirbúningstímabili með liðinu. Þegar ég kom fyrst út var ég búinn að vera að æfa með FH í desember og janúar og það var bara allt annað dæmi. Mér fannst ég vera í góðu standi þegar ég fór út en ég er í miklu betra standi núna,“ segir Böðvar Böðv- arsson, knattspyrnumaður hjá Jagiellonia í Póllandi. »4 Í miklu betra standi núna „Ég hef þurft smátíma til að melta hversu vel Haraldur stóð sig á fyrsta keppnisdegi þegar hann skilaði inn skori upp á 72 högg á Carnoustie- vellinum sem iðulega er talinn sá erf- iðasti þeirra sem fengið hafa að halda The Open frá því mótið hóf göngu sína árið 1860,“ skrifar Kristján Jónsson í pistli um Opna breska meist- aramótið í golfi. »1 Hversu vel stóð Har- aldur sig á fyrsta degi? Grindavík tók á móti Keflavík í 13. um- ferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í gær en leiknum lauk með þægilegum 3:0-sigri heimamanna. William Dani- els, Jose Sito og Alexander Veigar Þór- arinsson skoruðu mörk Grindvíkinga sem eru komnir í fimmta sæti deild- arinnar með 20 stig. Keflvíkingar eru áfram á botni deildarinnar, án sigurs, með 3 stig. »3 Grindvíkingar unnu Suðurnesjaslaginn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Katrín Kristín Briem Gísladóttir, ung kona frá Eskifirði, tók fyrir skemmstu meirapróf, aukin ökuréttindi sem leyfa prófhafa að keyra rútu, vörubíl, eftir- vagn og leigubíl, og vinnur hún við að keyra flutningabíl þetta sumarið. Það er ekki í frásögur færandi nema vegna þess að þar með fetar hún í fótspor ömmu sinnar og alnöfnu sem var fyrsta konan til að taka meirapróf á Austurlandi. „Við erum báðar með bíladellu og ég hef alltaf keyrt mikið og þá sér- staklega stóra bíla. Það getur alveg verið að bíladellan hennar hafi komið frá ömmu,“ segir Katrín Kristín Briem Gísladóttir eldri um barnabarn sitt og alnöfnu. Katrín yngri hefur gaman af því að aka stórum bílum eins og amma henn- ar. „Ég hef alltaf haft gaman af því að keyra, það skiptir í raun ekki máli hvaða tæki það er. Svo tók ég vinnu- vélaréttindi þegar ég var að vinna í ál- verinu á Reyðarfirði og stuttu seinna sá ég auglýsingu fyrir meirapróf og ég ákvað bara að skella mér,“ segir Katr- ín yngri. Katrín eldri nýtti sér meiraprófið lítið en hafði áður ekið stórum farar- tækjum. „Ég keyrði bæði vörubíl og litla rútu áður en ég tók meirapróf. Eftir það fór ég að eiga börn og búa þannig að það varð mjög lítið úr því. Ég hef samt allt- af átt stóra bíla, keyrt mikið og haft gaman af,“ segir hún. Um það hvort hún ætli ekki að nýta sér meiraprófið meira í seinni tíð segir Katrín eldri: „Nei, ég held þeir væru nú meira hissa að sjá mig undir stýri núna heldur en þegar ég var átján eða nítján ára,“ segir hún og hlær. Katrín yngri starfar hjá Eimskip þetta sumarið og keyrir á milli fjarðanna fyrir austan, á flutn- ingabíl að sjálfsögðu. „Við sem sagt sjáum aðallega um flutninga frá Nes- kaupstað yfir á Breiðdalsvík.“ Á vinnu- staðnum er Katrín yngri eina konan sem keyrir flutningabíl og önnur af tveimur konum sem starfa á vinnu- staðnum. Spurð hvort ekki sé erfitt að aka stórum farartækjum eins og vörubíl- um og rútum segir Katrín eldri: „Þú þarft að keyra allt öðruvísi þegar þú keyrir stóran bíl. Þú mátt ekki gleyma því að taka mjóa beygju því þá fer aft- urendinn upp og svo er ýmislegt sem þarf að hafa í huga. Þetta er samt svo- lítið gaman, þú situr hátt og sérð vel yfir.“ Bíladellan komin frá ömmu  Alnöfnur og náðu sér báðar í meirapróf Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Alnöfnur Katrínarnar tvær hafa báðar unun af því að keyra stóra bíla. Sú eldri er afar ánægð með að sú yngri hafi ákveðið að ná sér í meirapróf eins og amma hennar. Sú yngri segist hafa gaman af því að keyra hvaða farartæki sem er. Katrín eldri segist ekki hafa fundið fyrir fordómum þegar hún tók meiraprófið ásamt átta karlmönnum árið 1964. „Það eina sem ég fann fyrir þegar ég var ung var að ef löggan stoppaði mig þá var hún alltaf svolítið hissa að það væri ung kona með meirapróf, svo þetta vakti al- veg tvímælalaust einhverja athygli.“ Katrín yngri kannast þó við einhverja fordóma. „Ég tek alveg eftir því að það sé horft á mig þegar ég er að keyra og stundum er fólk mjög hissa á því að ung kona sé að keyra svo stóran bíl. Svo já, það er alveg eitthvað röfl- að en ég held að það sé bara í nösunum á fólki. Ég finn alla vega ekki fyrir því á vinnustaðn- um. Þar eru allir ofboðslega fínir og hjálpsamir,“ segir Katrín yngri. Fordómar til staðar árið 2018 MISJÖFN UPPLIFUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.