Morgunblaðið - 26.07.2018, Page 11

Morgunblaðið - 26.07.2018, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018 11FRÉTTIR Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar Af síðum Trygglyndi fæst ekki ókeypis, eins og Ryanair hefur komist að. Ódýr flugfargjöld duga ekki ein og sér til að tryggja að við- skiptavinir haldi áfram að eiga viðskipti við fyrirtækið. Fyrir nokkrum árum hleypti flug- félagið írska af stokkunum nýju verkefni undir merkjum slagorðsins „Always Getting Better“ (Sífellt að verða betri), með það fyrir augum að bæta þjónustustigið sem svo oft hefur legið undir gagnrýni. Á mánudag- inn mátti sjá að það hefur haft í för með sér aukinn kostnað að stuðla að bættri þjónustu, með hærri launum til flugmanna og áhafna. Eldsneyt- iskostnaður hefur líka verið á uppleið. Þessi blanda hafði slæm áhrif á afkomutölur fyrsta ársfjórðungs sem birtar voru á mánudag. Lækkandi flugmiðaverð, hærri launakostnaður og vaxandi eldsneytiskostnaður urðu þess valdandi að tölurnar reyndust ekki nægilega góðar. Hagnaður eftir skatta lækkaði um fimmtung, niður í 319 milljónir evra, en þá eru ekki talin með áhrifin af lítilsháttar tapi systurflugfélagsins Laudamotion. Ryanair hafði varað við því fyrirfram að hagnaður myndi dragast sam- an og tókst að gera betur en markaðsgreinendur höfðu spáð. Engu að síður lækkaði gengi hlutabréfa félagsins um 6%. Tekjur á hvern „gest“, eins og Ryanair kallar nú þjóhnappa sem fylla sæti, hækkuðu þegar allt kom til alls. Það kemur til vegna þess að fleiri farþegar velja að borga aukalega fyrir að tryggja sér sæti eða fá að fara snemma um borð. Markaðsvirði flugfélagsins jafngildir nú þrettán- földum hagnaði, sem bendir til þess að markaðurinn sé líka tilbúinn að borga aukalega fyrir slíka uppfærslu – og töluvert meira en fyrir hluta- bréf flestra keppinauta Ryanair. En bíðið nú við. Vingjarnlegra við farþega og fúst að semja við stétt- arfélög? Það myndi enginn undrast það ef hluthafar teldu sig þurfa að gaumgæfa hvort þeir hefðu örugglega hlutabréf í réttu félagi í hönd- unum. Enn sem komið er virðast launahækkanir hafa haft minniháttar áhrif á arðsemi félagsins. Launakostnaður myndar einungis 12% af heildarútgjöldum Ryanair. En ef það verður reglan að nota vinnuafl í stéttarfélögum, eins og virðist stefna í, þá gæti það dregið úr hagkvæmni til lengri tíma litið. Á vinnumarkaði þar sem mikil eftirspurn er eftir fólki og þar sem reyndir flugmenn fá allt að 300 þúsund evrur í árslaun í Kína, hefur Ryanair um fátt annað að velja en að hegða sér almennilega. En þetta gæti leitt til hægari vaxtar. Markaðsrannsóknarfyrirtækið Bernstein spáir því að sætaframboð muni aukast um 7% á ári fram til 2020. „Always Demanding More“ (Sífellt að krefjast meira) gæti orðið nýtt slagorð sem lýsir starfsfólkinu. Ef svo fer, þá hafa hluthafar fulla ástæðu til að ókyrrast. LEX AFP Ryanair: Inn til lendingar Harley-Davidson hefur lækkað hagnaðarspá sína fyrir þetta ár. Mótorhjólaframleiðandinn, sem hef- ur lent á milli steins og sleggju í tollastríði Bandaríkjanna og Evrópusambandsins, gerir nú ráð fyrir því að tollar muni valda rekstri þess meira tjóni en áður var talið. Núna er áætlað að framlegð fyrirtækisins af sölu mótorhjóla verði í kringum 9-10% „í ljósi þeirra áhrifa sem við væntum að tollar muni hafa á árinu 2018“, að því er Harley upplýsti á þriðjudag. Í maí sagðist fyrirtækið gera ráð fyrir framlegð á bilinu 9,5-10,5% og hafði þá þegar lækkað tölurnar um 2-3 prósentustig frá árinu 2017, vegna fyrirhugaðra endurbóta á framleiðsluferlum. Þó svo að Harley hafi búist við einhverjum áhrifum af hækkun Bandaríkjastjórnar á toll- um á stál og ál, þá hafði fyrirtækið vænst þess að áhrifin myndu koma fram „í smáum skrefum“. Kaupendur farnir að eldast Í júní beindi framkvæmdastjórn ESB spjótum sínum sérstaklega að Harley og öðrum þekktum banda- rískum vörum, á borð við Levi‘s- gallabuxur og búrbon-viskí, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði lagt á tolla á stál og ál. Í fram- haldinu greindi mótorhjólaframleið- andinn frá því að til stæði að flytja hluta af framleiðslu mótorhjóla sem ætluð eru fyrir Evrópumarkað frá Bandaríkjunum til annarra landa. Fyrir vikið fékk Harley að kenna á bræðikasti Trumps á Twitter. Í Bandaríkjunum, lykilmarkaði Harley, seldust 6% færri mótorhjól á öðrum ársfjórðungi 2018 en á sama tímabili í fyrra. Er það sjötta ársfjórðunginn í röð sem salan í Bandaríkjunum minnkar. Þessi þró- un þykir til marks um að kaup- endahópur Harley-Davidson mót- orhjóla í Bandaríkjunum, þar sem margir eru stuðningsmenn Trumps, er að eldast með þeim afleiðingum að eftirspurnin á heimamarkaði fer dalandi. Markaðsgreinendur höfðu þegar gert ráð fyrir svona miklum sam- drætti á Bandaríkjamarkaði, og því er óljóst hvort árásir Trumps á Harley fyrir að flytja störf úr landi hafi haft neikvæð áhrif á viðhorf kaupenda. Harley hafði þegar fært töluvert af framleiðslu sinni úr landi áður en tilkynnt var um nýju toll- ana. Á fyrri helmingi ársins dróst sal- an í Bandaríkjunum saman um 9% en jókst um 0,5% á erlendum mörk- uðum. Sú hækkun felur þó þá stað- reynd að í Kyrrahafshluta Asíu minnkaði salan um 7% og í Kanada um 5%. Salan utan Bandaríkjanna skiptir sköpum Harley-Davidson, sem er með höfuðstöðvar sínar í Wisconsin, hef- ur ekki breytt áætlun sinni um að afhenda á bilinu 231 til 236 þúsund mótorhjól á heimsvísu á þessu ári. Ef það á að takast skiptir sköpum að salan gangi vel utan Bandaríkj- anna. Svo þegar Harley stóð í síð- asta mánuði frammi fyrir nýjum tollum á Evrópumarkaði, sem munu hækka verðið á innfluttu mótorhjóli um 2.200 dali, sagðist fyrirtækið ekki eiga annarra kosta völ en að færa stærri hluta framleiðslunnar úr landi. „Kaupendahópurinn í Evrópu leikur lykilhlutverk í stefnu okkar á alþjóðamarkaði … Harley Davidson seldi nærri 95 þúsund mótorhjól utan Bandaríkjanna á síðasta ári, eða 39% af heildarsölunni. Þegar fram í sækir þætti Harley-Davidson æskilegt að helmingur viðskipta fyrirtækisins væri utan Bandaríkj- anna,“ skrifar Craig Kennison hjá Baird í greiningarskýrslu sem kom út áður en afkomutölur Harley lágu fyrir. Fyrirtækið segist ætla að „kynna áætlanir sínar um að byggja upp nýja kynslóð mótorhjólafólks um allan heim“ hinn 30. júlí næst- komandi. Hagnaður á hvern hlut á öðrum ársfjórðungi nam 1,45 dölum, en var 1,48 dalir fyrir ári. Ef „kostn- aður við hagræðingu í framleiðslu“ er dreginn frá nemur hagnaðurinn 1,52 dölum á hlut sem er töluvert hærra en þeir 1,41 dalir sem mark- aðurinn hafði vænst. Hagnaður félagsins á ársfjórðungnum dróst saman miðað við sama tímabil í fyrra í takt við minnkandi sölu. Hagnaðurinn nam samtals 242 milljónum dala, en var 259 milljónir á síðasta. Tekjur voru 1,71 millj- arður dala, en til samanburðar 1,77 millljarðar fyrir ári. Harley-Davidson varar við meira tjóni vegna tolla Eftir Cat Rutter Pooley og Patti Waldmeir Vélhjólaframleiðandinn goðsagnakenndi, Harley- Davidson, hefur orðið skotspónn í tollastríði Bandaríkjanna og ESB. Nú eru horfur á að áhrif þess á afkomu fyrirtæk- isins verði meiri en útlit var fyrir í upphafi. AFP Donald Trump dáist hér að Harley-Davidson-mótorhjóli fyrir utan Hvíta húsið fyrr á árinu en hrifning forsetans á stjórnendum fyrirtækisins er heldur minni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.