Morgunblaðið - 26.07.2018, Side 14

Morgunblaðið - 26.07.2018, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018FÓLK SPROTAR Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð Skúli Valberg Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Festu - mið- stöðvar um samfélagsábyrgð. Skúli er rekstrarhagfræðingur MBA frá Háskólanum í Reykjavík og iðnaðar- og kerfisverkfræðingur frá Univers- ity of Florida. Skúli er með yfir 25 ára stjórnunarreynslu úr viðskiptalífinu og hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja. Hann hefur jafnframt verið ráðgefandi fyrir frumkvöðla og fjárfesta í norrænni nýsköp- un um árabil. Skúli hefur störf í september. Skúli ráðinn framkvæmdastjóri BIOEFFECT Auðbjörg Óskarsdóttir hefur tekið við starfi alþjóðlegs viðskiptastjóra hjá BIOEFFECT. Verkefni hennar lúta að því að efla og styrkja sölu á BIOEFFECT erlendis í nánu samstarfi við starfandi dreifiaðila fyrirtækisins. Auðbjörg starfaði áður sem svæðisstjóri hjá Bestseller og sá um rekstur, starfsmannamál og innkaup fyrir tísku- vöruverslanir fyrirtækisins hér á landi. Auðbjörg er með BA í sálfræði frá Háskóla Íslands. Auðbjörg alþjóðlegur viðskiptastjóri VISTASKIPTI „Þjónusta Koride snýst ekki bara um að hjálpa fólki að deila með sér kostnaðinum við ferðalög með því að samnýta bílaleigubíla, heldur erum við líka að liðka fyrir því að ferða- langar kynnist öðru fólki og eigi auð- veldra með að skoða landið.“ Þannig lýsir Michelle Spinei starf- semi sprotans Koride (www.ko- ride.co). Michelle er framkvæmda- stjóri Koride en hún stofnaði fyrirtækið með Kristni Evertssyni sem fer með hlutverk tæknistjóra. Saman taka þau þátt í Startup Reykjavík í sumar og stefna að því að Koride fari í loftið í október. „Dæmigerður notandi væri ein- staklingur sem ferðast einn til Ís- lands og langar að skoða fleira en Reykjavík en rekur sig á að það get- ur verið dýrt að leigja bíl og halda einn af stað. Í gegnum Koride getur hann fundið annað fólk í sömu spor- um, og sammælst um að þau ferðist saman og dreifi þannig kostnaðinum á fleiri herðar. Koride býður upp á skilaboðakerfi og stjórnborð þar sem verður hægt að skipuleggja ferðalagið; bæði hvert leiðin liggur, á hvaða tíma verður lagt af stað og hvernig sameiginlegur kostnaður s.s. af leigu á bíl og bensínkaupum deilist á hópinn,“ útskýrir Michelle. „Í stjórnborðinu verður hægt að skoða kort af Íslandi þar sem búið er að merkja inn áhugaverða áfanga- staði og skemmtilegar akstursleiðir, og hópnum gert auðvelt að sníða ferðina að eigin óskum.“ Fjórði hver ferðast einn Koride hyggst rukka þjónustu- gjald fyrir að tengja fólk saman, og í framtíðinni fá að auki söluþóknun frá samstarfsaðilum í ferðaþjónustu þegar bókun er gerð í gegnum vef Koride. Michelle segir að vöntun sé á þjónustu af þessu tagi og margt sem bendi til að notendahópurinn geti orðið mjög stór. „Ef við skoðum al- þjóðlegar tölur þá er einn af hverj- um fjórum ferðamönnum einn á ferð. Þá eru áherslur ferðamanna að breytast, og þeir vilja upplifa hluti og tengjast öðru fólki á ferðalögum sínum frekar en að bara skoða minn- isvarða og musteri í borgum. Á það sérstaklega við um ungt fólk, sem tekur t.d. Airbnb-gistingu fram yfir hótel, að þau sjá heilmikið virði í því að skoða heiminn í góðum félags- skap og skapa tengsl sem þau búa að löngu eftir að ferðalaginu lýkur,“ segir hún. „Fólk vill að ferðalagið veiti því einstaka upplifun, og besta leiðin til þess er að kynnast öðru fólki.“ Gangi allt að óskum mun Koride breiða úr sér til annarra landa en Michelle segir Ísland tilvalinn prufu- markað. „Bæði er Ísland vinsæll áfangastaður ferðamanna í leit að ævintýrum og upplifun, og svo eru staðhættir líka þannig að fátt annað er í boði en að komast á milli staða á bíl,“ útskýrir Michelle. „Á eftir Ís- landi myndum við vilja spreyta okk- ur á Noregi enda á margan hátt svipaður markaður; land sem er í miklu uppáhaldi hjá ævintýragjörn- um ferðalöngum og staður sem kall- ar iðulega á það að leigja bíl ef fólk vill skoða náttúru landsins.“ Þurfa að láta boltann byrja að rúlla Til að koma Koride af stað þurfa Michelle og Kristinn m.a. að leysa sama vandamál og t.d. stefnumóta- vefir standa frammi fyrir: til þess að fólk hafi gagn af þjónustunni þurfa aðrir notendur að vera þar fyrir. Og jafnvel ef tekst að fá nokkur hundr- uð ferðamenn til að skrá sig á vefinn eru allar líkur á að aðeins örlítill hluti þeirra eigi samleið, s.s. hvað varðar ferðadagsetningar og óskir. „Það verður krefjandi að koma þessu af stað og við reiknum með því að þurfa að afla fyrstu notendanna hér um bil handvirkt, en þegar tekst að láta boltann fara að rúlla léttist róðurinn og hægt verður að nota t.d. auglýsingar á samfélagsmiðlum til að ná með hnitmiðuðum hætti til þeirra sem eru líklegastir til að vilja nota Koride.“ Tengja saman fólk sem passar vel saman Efasemdamenn myndu benda á að það sé hægara sagt en gert að finna góðan ferðafélaga. Fólk hafi mjög ólíkar þarfir á ferðalögum, og ólíkar áherslur, og ekki skrítið að jafnvel perluvinir og ástrík pör eiga það til að fara í hár saman á ferða- lögum. Michelle segir Koride leitast við að laga þennan vanda með því að leggja nokkrar einfaldar spurningar fyrir notendur. „Til að nýta sér þjón- ustu Koride þarf fólk að gefa ákveðnar grunnupplýsingar um sjálft sig, og m.a. tiltaka hvort því líkar betur að ferðast hægt og skoða hvern stað vandlega eða ferðast hraðar og strika sem flesta staði út af listanum. Við reynum að draga fram hvaða persónuleika fólk hefur og hvernig það kýs að ferðast og þannig para ferðalangana betur saman. Notendur geta líka séð myndir af öðrum ferðalöngum og mælt þá út áður en þeir velja sér ferðafélaga. Notendareikningar á Koride verða líka tengdir við Face- book, svo að tryggt sé að enginn villi á sér heimildir.“ Michelle bendir líka á að það þurfi ekki endilega að vera markmið í sjálfu sér að para saman ferðalanga sem smellpassa saman. „Oft felst áhugaverðasta upplifunin í því að ferðast með fólki sem er ekki alveg eins og maður sjálfur, hefur aðra sýn á lífið og tilveruna, og mögulega eignast vin sem maður hefði annars aldrei rekist á.“ Morgunblaðið/Hari Kristinn Evertsson og Michelle Spinei hjá Koride. Þau beina sjónum sínum að ört stækkandi hópi ævintýragjarnra ferðalanga í leit að upplifun. Skoða landið og eignast nýjan vin Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Koride hyggst tengja ferðalanga saman svo þeir geti átt ánægjulegri og ódýrari dvöl á Íslandi. Ferðamenn sækjast eftir einstakri upplifun og ein besta leiðin til þess er að skoða landið í góðum fé- lagsskap. Tækifæri í veitingarekstri Við leitum að áhugasömum aðilum til reksturs á veitingastað í Listhúsinu í Laugardal Um er að ræða mjög áhugaveða staðsetningu. Allt rýmið var standsett fyrir um það bil tveimur árum síðan og eru öll tæki til veitingareksturs til staðar. Mjög gott tækifæri til að hefja veitingarekstur á áhugaverðum stað. Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Reykjavíkurborg Hákon Sigursteinsson, sálfræðingur og deildarstjóri skólaþjónustu í Breiðholti, hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. Hann mun hefja störf um miðjan ágúst. Hákon hefur gegnt núverandi starfi sem deildarstjóri skólaþjónustu frá árinu 2005. Hákon lauk embættisprófi í sálfræði frá Háskólanum í Árósum árið 1996 með áherslu á vinnusálfræði. Hákon nýr framkvæmdastjóri Barnaverndar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.