Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Flugfargjöld hækka um 23%
Hótelþorp við Stöðvarfjörð
Breytingar á skipulagi Icelandair
Marriott rís við Keflavíkurflugvöll
Loftleiðir semja um lúxusferðir
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Mikil aukning er milli ára í lántöku
á óverðtryggðum íbúðalánum hjá
innlánsstofnunum á fyrri helmingi
ársins, samkvæmt nýjum hagtölum
Seðlabanka Íslands um bankakerf-
ið.
„Við túlkun talnanna þarf að hafa
í huga að þetta eru ný útlán að frá-
dregnum upp- og umfram-
greiðslum,“ segir Hrönn Helgadótt-
ir, sérfræðingur hjá Seðlabanka
Íslands, í samtali við Viðskipta-
Moggann.„Meira er greitt aukalega
inn á verðtryggð lán í hverjum
mánuði en þau óverðtryggðu og því
dregst hærri fjárhæð frá veittum
nýjum útlánum hjá þeim. Hins veg-
ar er ljóst að það er greinileg aukn-
ing í lántöku á óverðtryggðum
íbúðalánum fyrstu 6 mánuði þessa
árs miðað við í fyrra.“
Tvöföldun milli ára
Ari Skúlason, hagfræðingur í
hagfræðideild Landsbankans, segir
það sé ekki óeðlilegt að fólk leiti
frekar í óverðtryggðu lánin ef það
býst við verðbólgu á næstunni.
„Án þess að hafa skoðað þessar
tölur sérstaklega, þá er örugglega
tilhneiging hjá lántökum að skuld-
breyta úr verðtryggðum lánum yfir
í óverðtryggð með föstum vöxtum.
Meginskýringin er þá væntingar
lántaka um að vinnumarkaðurinn
fari á fleygiferð og við komum til
með að lenda í verðbólguástandi.“
Samkvæmt tölum úr Hagvísum
Seðlabanka Íslands, sem komu út í
lok síðasta mánaðar, námu ný
óverðtryggð íbúðalán fyrstu fimm
mánuði ársins samtals 45,8 millj-
örðum króna þegar upp- og um-
framgreiðslur eru ekki dregnar frá,
en einungis 23,9 milljörðum króna á
sama tímabili í fyrra.
Verðtryggð lán drógust saman á
sama tímabili um 5 milljarða króna
og námu 69,7 milljörðum króna á
fyrstu fimm mánuðum ársins.
Morgunblaðið/Ómar
Mikil aukning var í óverðtryggðum íbúðalánum bankanna á fyrri árshelmingi.
Tólfföldun í
óverðtryggðu
Steingrímur Eyjólfsson
steingrimur@mbl.is
Óverðtryggð íbúðalán inn-
lánsstofnana, að frádregn-
um upp- og umfram-
greiðslum, fóru úr 2,3
milljörðum króna á fyrri
helmingi síðasta árs í 29,5
milljarða króna í ár.
Steingrímur Eyjólfsson
steingrimur@mbl.is
Það vakti töluverða athygli í vik-unni þegar bréf Origo fóru allt
í einu á flug á íslenskum hluta-
bréfamarkaði. Gengi bréfa félags-
ins hefur hækkað um 10% frá því
18. júlí síðastliðinn.
Hluthafar félagsins hafa þó ekkiriðið feitum hesti á þessu ári,
en gengi bréfanna hefur fallið
nokkuð frá áramótum, þegar verð
á hlut var 26,8 krónur. Bréf félags-
ins standa nú í 22 krónum á hlut,
það er í kringum 18% lækkun á
árinu.
Það er athyglisvert að velta fyrirsér hvað hefur fengið bréfin til
þess að hækka svona undanfarið.
Hvort það sé vegna þess að Origo
hafi verið vanmetið á markaði, er
ekki gott segja. Einnig er athyglis-
vert að gengi bréfanna hefur
hækkað um 7,3% síðan tilkynnt var
að söluferli Tempo myndi dragast
á langinn. Við birtingu uppgjörs
fyrsta ársfjórðungs félagsins, í
apríl, var tekið fram að gert væri
ráð fyrir að söluferli Tempo myndi
ljúka um mitt árið.
Vöxtur Tempo hefur verið mik-ill undanfarið. Fram kom í
síðasta uppgjöri Origo að tekjur
Tempo hefðu aukist um 25% á síð-
ustu 12 mánuðum. Tempo hefur
því verið eins konar gullkálfur
félagsins. Ætli það sé enn vilji
stjórnenda til að selja eða vilja þeir
halda áfram að mjólka kálfinn?
Að halda
tempói
Sjómennska og útgerð hefurlöngum verið samofin karl-
mennskunni. Og reyndar hefur
karlmennskan ein ekki dugað til,
því fáir hafa þótt gjaldgengir í
þessari atvinnugrein sem ekki
hafa „migið í saltan sjó“.
Hvort það eigi við um konurnarþrjár sem skipa munu meiri-
hluta í stjórn sjávarútvegsfyr-
irtækisins HB Granda eftir aðal-
fund á morgun skal ósagt látið.
En hvað sem því líður má kalla
það tímamót að konur skuli nú
skipa meirihluta stjórnarmanna í
þessu rótgróna útgerðarfélagi.
En þótt framlag kvenna til sjó-mennskunnar sé kannski tak-
markað þá hefur þáttur kvenþjóð-
arinnar í sjávarútvegi verið stór í
gegnum tíðina og þá einkum í
vinnslu afurða, sem reyndar er
einn af meginrekstrarþáttum HB
Granda.
Auðvitað skiptir kynferðistjórnarmanna ekki máli
heldur fyrst og fremst sú reynsla
og þekking sem stjórnin býr sam-
eiginlega yfir. Þar ætti ný stjórn
HB Granda að vera vel sett með
fjölbreytta reynslu og bakgrunn.
Það er hins vegar freistandi aðrenna huganum aftur til þess
tíma þegar Árni heitinn Vil-
hjálmsson og svo Kristján Lofts-
son réðu ríkjum í útgerðarfélag-
inu. Tímarnir breytast og þeir
breytast hratt. Ásjóna HB Granda
hefur tekið miklum breytingum
einungis á þessu ári. Það verður
spennandi að fylgjast með því
hvernig félagið mun þróast í
höndum nýrrar stjórnar og for-
stjóra.
Sjómannslíf, sjómannslíf
SAS hefur þurft að af-
lýsa um 700 flug-
ferðum á síðustu
þremur mánuðum
vegna manneklu.
Þurfti að aflýsa
700 flugferðum
1
2
3
4
5
SETTU STARFSFÓLKIÐ
Í BESTA SÆTIÐ