Morgunblaðið - 27.08.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 27.08.2018, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 7. Á G Ú S T 2 0 1 8 Stofnað 1913  200. tölublað  106. árgangur  HÚSASMIÐURINN SEM VARÐ HÖNNUÐUR KABARETT FER VEL Í REYKVÍKINGA AÐ MÖRGU ER AÐ HYGGJA VIÐ SVEPPATÍNSLU VIKULEGAR SÝNINGAR 29 SVEPPATÍÐIN 12RAGNA RAGNARSDÓTTIR 26 Fjöldi Íslendinga fer til útlanda, einkum til landa í Austur-Evrópu, gagngert til að fara til tannlækna og getur munurinn á kostnaði við tann- læknaþjónustu þar og hér verið all- verulegur. Dæmi eru um að þjónustan kosti þar um 20% af því sem hún kostar hér á landi. Stofurnar auglýsa starf- semi sína á íslensku á netinu og á samfélagsmiðlum, og nú er farið að bjóða upp á hópferðir á þessar stofur. Ingvar Jónsson ráðgjafi og fram- kvæmdastjóri fór í síðustu viku til tannlæknis í borginni Gdansk í Pól- landi. Tannlæknir hans hér á landi hafði áætlað að viðgerðir á tönnum hans myndu kosta um 800.000 krón- ur. Ingvar ákvað að kanna fleiri möguleika og fékk verðmat hjá tann- læknastofu í borginni Gdansk í Pól- landi eftir að hafa kynnt sér starf- semi stofunnar. Hann flaug síðan utan í síðustu viku og fékk viðgerðir á tönnum sínum. Fyrir það greiddi hann 160.000 krónur, eða um 20% af verðinu sem honum hafði verið gefið upp hér á landi. Að auki greiddi Ingv- ar fyrir flugferðir og gistingu í Gdansk. Spurð hvers vegna svona mikill verðmunur sé á tannlæknaþjónustu hér á landi og t.d. í löndum Austur- Evrópu, segir Elín Sigurgeirsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, að á því gætu verið nokkrar skýring- ar. Hugsanlega sé verið að nota ódýr- ari hráefni þar en hér og þá sé vinnu- afl almennt ódýrara í löndum Austur-Evrópu en hér á landi. Hún segir að félaginu hafi verið tilkynnt um nokkur tilvik þar sem vinnu er- lendra tannlækna hafi verið ábóta- vant. »4 Fara í hópum til tannlækna í útlöndum Getty Images/iStockphoto Tannlæknir Nokkuð er um að Íslend- ingar fari til tannlækna erlendis.  Miklu munar á verði  Ýmsar skýringar að mati formanns Tannlæknafélagsins Sólin skein á Reykvíkinga um helgina og nýttu margir sér sólardagana í útiveru og ferðalög. Fjölmenni var statt í Húsdýra- og fjölskyldugarðinum og reyndist fallturninn vinsæll meðal bæði fullorðinna og barna, þeirra sem þora í það minnsta. Gleðiöskrin ómuðu um Laugardalinn þegar turninn hófst upp og féll jafnskjótt aftur niður. Morgunblaðið/Hari Spennufall í Laugardal Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Aðilar heildarsamtaka á vinnu- markaði hafa ólíkar hugmyndir um svigrúm til launahækkana á vinnu- markaði, en almenn ánægja er með samtalið við stjórnvöld í aðdraganda kjaraviðræðna. Í nýrri skýrslu Gylfa Zoëga um stöðu efnahags- mála í aðdraganda kjarasamninga kemur m.a. fram að minna svigrúm sé nú til launa- hækkana en árið 2015 og bent er á aðrar leiðir til að bæta lífskjör fólks, t.d. lækkun kostnaðar í bankakerfinu, og umbætur í húsnæðismálum fyrir ungt fólk og láglaunafólk. „Við hljótum að axla þá ábyrgð og gera þá kröfu til sjálfra okkar að við ræðum málin út frá efnahagslegum raunveruleika, ekki óskhyggju, held- ur raunveruleika eins og hann birtist öllum sem hafa skoðað þessi mál und- anfarið,“ segir Halldór Benjamín Þor- bergsson, framkvæmdstjóri Samtaka atvinnulífsins. Launafólk sýni ekki eitt ábyrgð Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að ósætti ríki vegna úrskurða Kjararáðs og umræðan um kjara- málin verði því síður efnisleg. „At- burðarásin síðustu tvö ár, alveg frá því Kjararáð fór að grípa inn í þró- unina með úrskurðum, sem menn hafa ekki enn fundið rök fyrir og stjórnvöld ekki viljað taka á, hefur skapað mikið ósætti. Ég held það sé dálítið erfitt að fara inn í baklandið hjá okkur og tala fyrir ábyrgð og skynsemi. Það er ekki launafólk eitt sem á að sýna ábyrgð og skynsemi, sérstaklega þegar stjórnvöld hafa ekki viljað gera það. Þess vegna verð- ur þetta ekki endilega efnisleg um- ræða, heldur frekar kalt,“ segir Gylfi. Búa sig undir viðræður  Ósammála um svigrúm til hækkana MÓlík sýn í aðdraganda »2  Sauðfjárbændur eru launalausir og verða það áfram nema eitthvað breytist. Þetta segir Eyjólfur Ingvi Bjarnason, bóndi og ráðunautur í Ásgarði í Hvammssveit og oddviti Dalabyggðar. Hann segir að nú fái bændur greiddar 350-400 kr. frá af- urðastöðvum fyrir hvert kíló af dilkakjöti eða um 6.000-7.000 kr. fyrir lambið. Við það bætast svo framlög skv. búvörusamningi sem eru breytileg eftir stöðu hvers bús. Þetta sé þó hvergi nærri nóg; greiðslur þyrftu að vera 800-900 kr. fyrir kílóið svo búskapur standi undir lágmarkslaunum bænda sem vilja geta farið í uppbyggingu og horft til framtíðar, að mati Eyjólfs. „Landbúnaður á Íslandi er á tíma- mótum í dag. Þróunin er sú að neyt- endur vilja matinn fyrir lítið en auðvitað geta bændur ekki fram- leitt sína vöru árum saman undir kostnaðarverði,“ segir hann. »6 Landbúnaður stend- ur á tímamótum Landbúnaður Eyjólfur I. Bjarnason bóndi segir sauðfjárbændur vinna launalaust.  Atvinnutækifærum þroskahaml- aðra fer ekki fjölgandi hér á landi líkt og öðrum störfum. „Í uppgang- inum sem hefur verið á vinnumark- aði hefðu fleiri tækifæri átt að skapast fyrir einstaklinga með skerta vinnugetu,“ segir sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun. VMST hefur unnið að því að fjölga tækifærum og auka fjölbreytni fyrir þennan hóp á undanförnum árum, m.a. með verkefninu Ráðning með stuðningi þar sem fyrirtæki sem ráða starfs- menn með skerta starfsgetu fá stuðning frá stofnuninni. Að mati formanns Þroskahjálpar er augljós ávinningur fyrir samfélagið að fá þennan hóp á vinnumarkað. Atvinnutækifæri fyrir ein- staklinga með skerta starfsgetu hafa þó aukist á Vesturlandi, sam- kvæmt ársskýrslu VMST fyrir árið 2017. »10 Fjölgar ekki í takt við önnur störf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.