Morgunblaðið - 27.08.2018, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018
Músaland Heiðmörk er gósenland fyrir hagamúsina því að þar er gnótt matar, svo sem ber, fræ og skordýr, og nóg af gjótum til að búa sér heimili eða fela sig þegar óvinur nálgast, t.d. refur eða ugla.
Bogi Þór Arason
Tbilisi | Hverju sæt-
ir það að oftsinnis eru
það einræðisherrar
heimsbyggðarinnar
sem reynast einörð-
ustu stuðningsmenn
samsæriskenninga og
almennra blekkingar-
vefja? Vissulega telj-
ast þeir sem einráðir
eru almennt sérlund-
aðir, en þar er þó varla
skýringin öll og spyrja mætti með
fullum rétti hvort tálsýnir séu vald-
sæknum stjórnarháttum ómissandi.
Nýfengin sönnun þess að svo sé
blasir við úr brennidepli þeirra
efnahagsþrenginga sem nú íþyngja
Tyrklandi. Þrátt fyrir að landið sé
skuldum vafið og gjaldmiðill þess,
líran, í frjálsu falli hefur seðlabank-
anum verið settur stóllinn fyrir
dyrnar í að koma lírunni til bjargar
með því að hækka vexti, þar sem
Recep Tayyip Erdogan forseti trúir
því að hækkun vaxta sé það sem
raunverulega veldur verðbólgu.
Hagfræðingar kalla eftir breyt-
ingu þessa viðhorfs en Erdogan
skellir skollaeyrum við þeim, eins
og mörgu öðru. Hins vegar skipar
hann fullkomlega óhæfan tengda-
son sinn, Berat Albayrak, í embætti
fjármálaráðherra í því augnamiði
að knýja seðlabankann til að fram-
fylgja vafasamri peningastefnu for-
setans.
Eftir uppeldi mitt í Sovétríkj-
unum er ég einkar viðkvæm fyrir
áhrifum öfugsnúinna vísindakenn-
inga á samfélög. Jósef
Stalín hafnaði erfða-
kenningu Mendels
(grundvallarlögmáli
erfðafræðinnar) og
jafnvel þróunarkenn-
ingu Darwins fyrir hin
þokukenndu fræði
Trofims Lysenkos,
sovéska líffræðingsins
sem trúði því að eig-
inleikar mannskepn-
unnar væru áunnir en
ekki arfgengir. Með
fulltingi Stalíns varp-
aði Lysenko sovéskri líffræði ofan í
tveggja áratuga djúpt svarthol vit-
firringar eftir að hafa dæmt millj-
ónir til hungursneyðar með vafa-
sömum landbúnaðarrannsóknum
sínum.
Níkíta Khrústsjov kollvarpaði
vissulega stalínismanum, en var
engu að síður heftur fjötrum kenni-
legs öfugsnúnings. Honum nægði
ekki að styðja kenningar Lysenkos
heldur trúði hann enn fremur hug-
myndafræðilega forhertum verk-
fræðingum og jarðfræðingum sem
fullyrtu að regluverk kommúnism-
ans væri náttúrulögmálum æðra.
Þeir tjáðu aðalritaranum að sov-
éskar kjarnorkusprengjur mætti
nota til að snúa rennsli helstu fljóta,
þannig að vatn þeirra yki frjómátt
landbúnaðarins í stað þess að því
væri „sóað“ í Norður-Íshafið.
Reynsla Rússlands af banvænum
sjónhverfingum valdsins er varla
einsdæmi. Fylgispekt Hitlers við
kynþátta-„vísindi“ á villigötum
sveipaði heimsbyggðina myrkri og
varð, nánast óumflýjanlega, kveikj-
an að helförinni. Svo stöðluð var
þústun hyggjuvitsins á valdatíma
nasista að ólýsanlegar tilraunir Jós-
efs Mengeles á manneskjum voru
til umfjöllunar á vísindaráðstefnum
eins og hver önnur læknisfræði.
Sams konar vænisýkisleg hrifn-
ing á vafasömum vísindum ýtir oft-
ar en ekki undir meðbyr valdhafans
í streymi samsæriskenninga. Er-
dogan, sem lengi hefur verið þeirr-
ar trúar að utanaðkomandi öfl vinni
sleitulaust gegn veldi hans, er þar
engin undantekning.
Telur hann skuggaöfl þessi al-
mennt starfa í gegnum fjármála-
markaði og hefur, enn sem komið
er, með naumindum stillt sig um að
segja það upphátt að sameinaður
gyðingdómur heimsins haldi þar
um stjórnvölinn (þeir hinir sömu, að
því er fjöldi tyrkneskra íslamista
telur, og stóðu að baki ungtyrkj-
abyltingunni 1908 og því veraldlega
lýðveldi sem reis í kjölfar fyrri
heimsstyrjaldar). Einörðustu
fylgismenn Erdogans greina þó
boðskapinn dulda í formælingum
hans í garð fjármagnsaflanna –
þeirra afla sem nú heimta vaxta-
hækkanir.
Ef til vill er þó enginn núríkjandi
leiðtogi ginnkeyptari fyrir torræð-
um vísindum og hæpnum samsæris-
kenningum en Bandaríkjaforsetinn
drottnunargjarni Donald Trump.
Ekki má það falla í gleymskunnar
dá að Trump pukraði sér inn í
hringiðu bandarískra stjórnmála
með því að hampa fæðingarrökum
kynþáttahyggjufólks, þess efnis að
þáverandi forseti, Barack Obama,
hefði ekki fæðst í Bandaríkjunum
og uppfyllti því ekki hæfisskilyrði
embættisins.
Vitleysan hefur ekkert nema
ágerst síðan Trump settist í Hvíta
húsið. Fleiri en 20 færslur hans á
Twitter hafa fjallað um möguleg
tengsl milli bólusetninga og ein-
hverfu. Þeim tengslum – sem runn-
in eru undan rifjum fáfengilegs
bresks læknis og fyrrverandi
Playboy-leikfélaga – hefur vísinda-
samfélagið hafnað.
Enn fremur afneitar Trump
hvers kyns tengslum milli mann-
legra gjörða og loftslagsbreytinga,
enn á ný í trássi við ráðandi niður-
stöður vísindanna. Gegn mótmæl-
um ótal hagfræðinga fullyrðir hann
að halli á vöruskiptum sé merki um
efnahagslegan veikleika Bandaríkj-
anna. Alan Levinovitz, prófessor í
trúarbragðafræðum við James Ma-
dison-háskólann, segir Trump beita
hástöfum í tístum sínum á sama
hátt og skottulæknar og falstrúboð-
ar gerðu til að slá ryki í augu al-
mennings fyrr á öldum.
Óljóst verður að telja með öllu
hvort Trump þekki muninn á
sviknu og ósviknu. Hann virðist
sannfærður um að alríkislögreglan
FBI og fjölmiðlar geri með sér
samsæri um að fella hann af stalli.
Trump hefur flutt það sem sagn-
fræðingurinn Richard Hofstadter
lýsti sem „vænisýkisstíl“ af jaðri
bandarískra stjórnmála inn að mið-
punkti þeirra. Ef til vill eru það
sameiginleg áhrif þessarar væni-
sýki sem fá Trump til að fikra sig
nær Vladimír Pútín Rússlands-
forseta sem statt og stöðugt hefur
látið í veðri vaka að uppi sé alþjóð-
legt samsæri um að svipta Rúss-
land þeirri stórveldisstöðu sem það
verðskuldi.
Hvað sem öllu líður sýna þreng-
ingar Tyrklands svo ekki verður um
villst að jafnvel örgustu hindurvitni
standa að lokum augliti til auglitis
við raunveruleikann. „Heimurinn
er það sem hann er,“ eins og V.S.
Naipaul heitinn hóf skáldsögu sína
A Bend in the River. „Þeir sem eru
ekkert, eða leyfa sjálfum sér að
verða ekkert, eiga sér engan sama-
stað í honum.“ Hið sama mætti
segja um stjórnendur valdræðisins.
Þeir sem neita að sjá heiminn eins
og hann er – hvort sem þeir horfa á
hann frá Tyrklandi, Bandaríkj-
unum, Venesúela eða hvaða öðru
ríki sem vera skyldi – glata að lok-
um stöðunni sem afneitun þeirra
var ætlað að standa vörð um.
Eftir Ninu L.
Khrushchevu » Þeir sem neita að sjá
heiminn eins og
hann er – hvort sem þeir
horfa á hann frá Tyrk-
landi, Bandaríkjunum,
Venesúela eða hvaða
öðru ríki – glata að lok-
um stöðunni sem afneit-
un þeirra var ætlað að
standa vörð um.Nina L. Khrushcheva
Höfundur er prófessor í alþjóða-
fræðum við The New School og rann-
sóknarstyrkþegi hjá World Policy
Institute. ©Project Syndicate, 2018.
www.project-syndicate.org
Valdblekkingar Erdogans