Morgunblaðið - 27.08.2018, Side 32

Morgunblaðið - 27.08.2018, Side 32
MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 239. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Bakvörðurinn sem drap 2. Rangir útreikningar í kynningu WOW 3. „Það var skelfing í augunum á fólki“ 4. Ákærður fyrir peningaþvætti … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Xiaolu Guo fjallar um verk sín í Veröld  Kínversk-breski rithöfundurinn og kvikmyndagerðarkonan Xiaolu Guo heldur fyrirlestur annað kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 19.30 í Veröld – húsi Vigdísar. Uppvaxtarsaga hennar, Einu sinni var í austri, kom út á ís- lensku fyrir skömmu. Að fyrirlestri og umræðum loknum verður sýnd heim- ildarmynd sem Xiaolu Guo gerði um heimsókn foreldra sinna til Evrópu.  Landsbókasafn Íslands – Há- skólabókasafn er 200 ára um þess- ar mundir og er opinber afmælis- dagur 28. ágúst. Af því tilefni eru ýmsir viðburðir í safninu í ár en á afmælisdaginn á morgun er almenn- ingi boðið að koma í heimsókn og skoða húsakynnin. Kl. 13 verður leið- sögn um sýninguna Tímanna safn. Boðið í heimsókn á 200 ára afmælinu  Finnski uppistandarinn Ismo Leikola ferðast nú um heiminn und- ir yfirskriftinni Words Apart og í kvöld klukkan 20 verður hann með uppistand á og um ensku í Tjarnarbíói. Ismo hefur unnið keppnina „Fyndnasta per- sóna jarðar“ í Laugh Factory í Hollywood. Ismo kannar ýmsa kima enskunnar Á þriðjudag Austan- og síðar norðanátt, 8-15 m/s norðvestan- lands og með norðurströndinni en hægari vestlæg eða breytileg átt annars staðar. Rigning í flestum landshlutum fram eftir morgni. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-18 m/s sunnan- og vestantil en 15-20 syðst síðdegis. Rigning, talsverð á köflum en hægari vindur og úrkomulítið nyrðra og eystra. Hiti 6 til 13 stig. VEÐUR KR heldur þriggja stiga for- skoti á FH í baráttunni um 4. sæti Pepsi-deildar karla í knattspyrnu eftir leiki helg- arinnar, nú þegar fjórar um- ferðir eru eftir af deildinni. KR rúllaði yfir ÍBV og FH vann Keflavík suður með sjó þar sem tvö sjálfsmörk voru skoruð. Tap Keflvíkinga þýð- ir að þeir eru fallnir aftur niður í 1. deild en þeir hafa ekki unnið neinn af 18 leikj- um sínum hingað til. »4 FH og KR bítast um Evrópusæti Maurizio Sarri ætlar að gefa leik- mönnum sínum hjá Chelsea 1-2 mán- uði til að læra að vinna eftir sinni hugmyndafræði. Ítalski stjórinn sá lið sitt vinna þriðja sig- urinn í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær og gera ýmislegt það sem fellur að hans hug- myndum. »6 Safna sigrum í miðju aðlögunarferli Breiðablik og Þór/KA gerðu ekki nein stór mistök þegar 15. umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu var öll leikin um helgina. Tvö stig skilja liðin að á toppi deildarinnar og þau mæt- ast einmitt á Akureyri næstkomandi laugardag. HK/Víkingur og KR fóru langt með að tryggja sér áframhald- andi veru í deildinni en fall blasir við FH og Grindavík. »5 Titill í húfi á Akureyri um næstu helgi? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Lísbet Sigurðardóttir lisbet@mbl.is Gunnar Gíslason, bráðum 92 ára gamall, mætir daglega til vinnu á smurstöðina Klöpp sem hann hefur rekið í yfir 50 ár. Gunnar, sem hefur starfað við smurningu bíla og fleira því tengt frá árinu 1945, gaf sér tíma milli anna til þess að setjast niður með blaðamanni og stikla á stóru um það sem hefur drifið á daga hans. Gunnar er fæddur árið 1926 í Reykjavík. Hann bjó lengst af í miðbæ Reykjavíkur, á Óðinsgötu, en þar var nokkuð öðruvísi um að litast í uppvexti Gunnars en nú er. „Ég rak kýr frá Óðinsgötu út á Reykjavík- urflugvöll, yfir Valsvöllinn,“ segir Gunnar þegar hann hefur boðið blaðamanni inn á kaffistofu smur- stöðvarinnar við Vegmúla. Hóf eigin rekstur þrítugur Gunnar gerðist sendill fyrir Veð- urstofu Íslands þegar hann var átta ára gamall og bar út veðurskeyti sem komu til landsins. Það var hans fyrsta starf. Hann gekk í Miðbæjarskólann við Fríkirkjuveg og fékk þá vinnu, 15 ára gamall, í sænska frystihúsinu sem var við Sæbraut, við ýmis störf. „Þaðan fór ég í Blikksmiðju Reykjavíkur. Ég minnist þess að einn morguninn þegar ég var að koma til vinnu klukkan átta um morguninn, flaug þýsk herflugvél rétt yfir haus- inn á mér,“ segir Gunnar. Hann hóf svo störf hjá Olíuverslun Íslands í Hafnarstræti við smurningu bíla árið 1945, þá 18 ára gamall. Þar lærði hann til verka en hann kveðst þó allt- af hafa haft áhuga á tækjum og við- gerðum. „Þegar ég átti heima á Óðinsgöt- unni var verkstæði fyrir ofan húsið. Þar voru þeir að búa ýmislegt til, skíðasleða, bedda og fleira. Ég fékk að fara þarna og var stundum að hjálpa þeim,“ segir Gunnar sem jafn- framt hefur smíðað þrjú hús um æv- ina. Þegar Gunnar var ungur að árum var hann einnig liðtækur í íþróttum og keppti í flestum þeim íþróttum sem hann komst í fyrir Ármann og Val. „Ég keppti m.a. í spretthlaupi og vann til verðlauna. En svo var maður að gera svo mikið, vinna og annað. Á þessum tíma var lítill mannskapur og allir þurftu bara að vinna,“ segir Gunnar. Árið 1957 hóf Gunnar eigin rekstur í félagi við nokkra félaga sína. Fyrst var smurstöðin á Skúlagötu en árið 1988 flutti Gunnar reksturinn í Veg- múla ásamt sonum sínum þar sem smurstöðin Klöpp er í dag. Hann mætir enn til vinnu daglega og tekur daginn snemma, er kominn fyrstur á morgnana og fer síðastur heim. Enn í smurþjónustu 92 ára  Mætir fyrstur  Fólk fái að ráða starfslokum sínum Morgunblaðið/Hari Starfandi Gunnar tekur daginn snemma, vaknar klukkan fimm á morgnana og mætir stundvíslega til vinnu. Ekki stendur til hjá Gunnari að hætta að vinna á meðan hann hefur heilsu til og þykir honum synd að svo margt fólk sé skikkað til þess að hætta að vinna um sjötugt, en samkvæmt lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna skal veita ríkisstarfsmanni lausn frá og með næstu mánaðamótum eftir að hann nær 70 ára aldri. „Það eru svo margir sem vilja vinna lengur en fá það ekki. Menn eru bara reknir heim. Mér finnst bara bull að skikka fólk til þess að hætta. Það á ekki að reka fólk heim, fólk á að fá að ráða því alveg hvort það vinnur, á meðan það fólk getur unnið og vill vinna.“ Utan vinnutíma nýtur Gunnar þess að horfa á knattspyrnuleiki og missir helst aldrei af leik hjá liði sínu, Manchester United. Engin ástæða til að hætta VINNUR Á MEÐAN HEILSAN LEYFIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.