Morgunblaðið - 28.08.2018, Page 11

Morgunblaðið - 28.08.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Margir Reykvíkingar fylgjast spenntir með því hvert haust hvort skaflinn frægi í Gunnlaugsskarði í Esjunni nái að lifa af sumarið. Á haustin hættir snjór að bráðna á hærri fjöllum og úrkoman fellur í vaxandi mæli sem snjór. Í Gunnlaugsskarði í Esju gerist þetta yfirleitt í kringum mánaðamót sept- ember og október. „Skaflinn er enn mjög stór og mér finnst mjög ólíklegt að hann hverfi að þessu sinni,“ segir Árni Sigurðsson, sérfræðingur í mæla- rekstri hjá Veðurstofunni. Árni seg- ir að það verði spennandi að sjá hversu mikið skaflinn nær að minnka í september. „Maður miðar venjulega við að taka stöðuna í byrj- un október,“ segir Árni, sem gjarn- an fer upp á Esjuna á þeim tíma til að skoða og mynda skaflinn í návígi. „Sumarið hefur verið fremur svalt og sólarlítið þó að það hafi ver- ið blautt. Lofthiti og sólskin virðast hafa meiri áhrif á skaflinn en vætan,“ segir Árni. Páll Bergþórsson veðurfræð- ingur hefur fylgst manna best með skaflinum í Gunnlaugsskarði undan- farna áratugi og hefur skrifað ít- arlega fróðleiksgrein um fannir í Esju, meðal annars um skaflinn í Gunnlaugsskarði, og hvaða vísbend- ingu fyrri athuganir gefa um breyt- ingu á lofthita. Grein Páls heitir „Fannir í Esju mæla lofthita“ og hana má finna á vef Veðurstofunnar. Á hlýjum árum bráðnar skafl- inn áður en snjór tekur að safnast þar fyrir aftur að hausti en á köldum tímabilum helst hann allt árið. Fram undir síðustu aldamót hvarf skaflinn yfirleitt ekki. Skaflinn bráðnaði árið 1998 og hafði þá ekki bráðnað í meira en 30 ár, eða frá árinu 1964 Og fyrstu árin eftir aldamótin hvarf hann undantekningalítið, eða árin 2000 til 2012. Það hafði aldrei gerst svo lengi samfellt síðan farið var að fylgjast nokkuð reglulega með þessari fönn árið 1909. Mjög stór skafl myndaðist 2015 en síðan hefur skaflinn ekki horfið, en farið minnkandi ár frá ári, að sögn Árna. Skaflinn lifir líklega Morgunblaðið/Sigurður Bogi Esjan Skaflinn í Gunnlaugsskarði er hinn myndarlegasti og ólíklegt að hann hverfi. Myndin er tekin frá Álfsnesi.  Skaflinn frægi í Gunnlaugsskarði í Esjunni gefur vís- bendingar um breytingar á lofthita  Sumarið fremur svalt Gerðardómur sem skipaður var í kjaradeilu ljós- mæðra stefnir að því að skila niðurstöðu fyrir helgi. Þetta stað- festir Magnús Pétursson, for- maður gerðar- dómsins. „Við stefnum að því að skila þessu fyrir uppsettan tíma,“ sagði Magnús í samtali við mbl.is, en gerðardómi var gert að ljúka störf- um fyrir 1. september, sem er á laugardag. Í gerðardómi sitja, auk Magn- úsar, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofn- unar Háskóla Íslands, og Bára Hildur Jóhannesdóttir, ljósmóðir og deildarstjóri mönnunar og starfsumhverfisdeildar Landspítala. „Við fundum bara eins og þarf og keppumst við að ljúka þessu,“ sagði Magnús. Gerðardóm- ur skilar niðurstöðu fyrir helgi Magnús Pétursson Maria Jolanta Pol- anska, túlkur og þýð- andi, lést föstudaginn 24. ágúst, 59 ára að aldri. Maria Jolanta fædd- ist í Bialystok í Póllandi fjórða apríl 1959. Hún flutti til Íslands árið 1983 og hefur búið hér síðan. Hún lauk stúd- entsprófi í Póllandi og starfaði sem einkaritari á dagblaði áður en hún fluttist til Íslands. María Jolanta vann við túlkastörf um árabil hjá Alþjóðahúsinu en stofnaði sitt eigið fyrirtæki árið 2010 Túlkaþjón- ustuna slf. ásamt dóttur sinni Söndru Maríu Stein- arsdóttur en fyrir- tækið hefur verið leið- andi á sviði túlkunar. Maria Jolanta vann við fyrirtækið þar til hún greindist með alvar- legan sjúkdóm fyrir ári. Hún sérhæfði sig í túlkun á heilbrigðis- sviði en sinnti þó túlk- un á ýmsum öðrum sviðum. Maria Jolanta giftist Steinari Þór Guðjóns- syni en hann lést árið 2014. Sambýlismaður hennar er Hafsteinn Auðunn Haf- steinsson. Dætur Mariu Jolöntu eru María Magdalena og Sandra María. Andlát Maria Jolanta Polanska Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Stór sumarbústaður og annað minna hús við hlið hans brunnu til kaldra kola í gær, en húsin eru talin hafa verið mannlaus. Húsin stóðu Grafn- ingsmegin við Þingvallavatn, en fólk í nálægum bústað varð vart við eld- inn og tilkynnti um hann skömmu fyrir hádegið í gær. Sex slökkviliðsbílar og allt að 40 manns frá Laugarvatni og Selfossi tóku þátt í slökkvistarfinu. Vætutíð í sumar til happs „Húsin voru alelda og hefði eld- urinn fengið að breiðast út í gróðri, hefði hann getað náð til nærliggjandi sumarhúsa, en næsta hús stendur í aðeins um 30 metra fjarlægð. Tíðar- farið í sumar varð til láns þar sem að trén voru full af raka og fuðruðu ekki upp eins og hefði getað gerst eftir langvarandi þurrka,“ sagði Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri í Árnes- sýslu í samtali við Morgunblaðið. Hann kvað slökkvistarf hafa gengið vel þó það hefði ekki klárast fyrr en um kl. 17.45 þar sem lengri tíma tók að slökkva glæður í milligólfum. Ekki væri hægt segja til um elds- upptök á þessari stundu en lögreglan á Suðurlandi mun rannsaka málið. Bústaðir brunnu til grunna í gær  Báðir taldir hafa verið mannlausir Ljósmynd/Aðsend Slökkvistarf Sumarhúsin voru alelda er slökkvilið bar að garði. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin • Bolir • Túnikur • Blússur • Peysur • Vesti • Jakkar • Buxur 1988 - 2018 Nýjar glæsilegar haustvörur Eigum alltaf vinsælu bómullar- og velúrgallana í stærðum S-4XL Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Hnepptar peysur Kr. 8.900 Str. S-XXXL Fleiri litir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.