Morgunblaðið - 28.08.2018, Side 33

Morgunblaðið - 28.08.2018, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018 ICQC 2018-20 PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir mánudaginn 3. september SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Börn & uppeldi Víða verður komið við í uppeldi barna í tómstundum, þroska og öllu því sem viðkemur börnum frá fæðingu til 12 ára aldurs. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 7. sept. Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Tónleikarnir „Klassíkin okkar“ fara fram nk. föstudagskvöld í Hörpu og verður sjónvarpað beint. Er það í þriðja sinn sem Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV taka höndum sam- an og halda tónleika í beinni með verkum sem almenningur hefur fengið að velja. Í tilefni af 100 ára fullveldisafmælinu í ár er áherslan nú sett á íslenska tónlist 20. og 21. aldar. Í nýjum búningi Að sögn Höllu Oddnýjar Magn- úsdóttur, annars kynna tónleik- anna, gat almenningur valið á milli yfir fjörutíu verka en búið var að forvelja verkin til að auðvelda kosn- inguna. „Verkin eru úr öllum flokk- um íslenskrar tónlistar og var það mikilvægt að fólk gat valið eftir flokkum, hvort sem um ræddi kór- verk eða hljómsveitarverk, til að tryggja að fjölbreytnin væri í fyrir- rúmi. Flestir þekkja sennilega ís- lensku einsöngslögin sem eru sung- in við mörg tilefni og það er gaman að hafa tækifæri til að hampa þeim, en svo er ekki síðra að fá ástæðu til að grúska í og kynnast þeim frá- bæru íslensku tónverkum sem færri þekkja. Ég get sagt það fyrir mína parta að það er margt á list- anum sem telst til okkar öndvegis- tónverka, en hljómar ekki endilega oft á tónleikapalli og maður þekkir kannski alls ekki vel. Þetta á líka við um frábær íslensk tónverk frá síðustu áratugum, en samtíma- tónlistin á einmitt mjög sterka full- trúa á þessum tónleikum og nýjasta tónverkið á dagskránni er frá 2010.“ Af þessum sökum var ráðist í gerð útvarpsþátta á Rás 1 samhliða kosningunni sem Guðni Tómasson gerði, þar sem farið var í gegnum verkalistann og hann kynntur fyrir almenningi. Lokaútfærsla tónleika- dagskrárinnar var svo í höndum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Halla Oddný segir að athygl- isvert verði að hlýða á lög sem allir þekkja í nýjum og glæsilegum bún- ingi. „Það hefur oft komið mér á óvart í Klassíkinni okkar hvað kunnugleg verk sem maður hefur margsinnis heyrt, stundum jafnvel bara í kvik- myndum eða auglýsingum, virka sterkt og ferskt á mann þegar mað- ur heyrir þau á tónleikum í fram- úrskarandi flutningi. Maður endur- uppgötvar þau algjörlega.“ Fimm kórar koma fram á tón- leikunum; Gradualekór Langholts- kirkju, Hamrahlíðarkórinn, Karla- kórinn Fóstbræður, Skólakór Kársness og Söngsveitin Fílharm- ónía. Að sögn Höllu hafa þeir allir sinn eigin hljóm sem gefur tónverk- unum aukna dýpt. „Þetta verður mikil veisla fyrir kóráhugafólk,“ segir Halla. Útsett fyrir hljómsveit Mikil vinna fór í að útsetja lögin fyrir stóra hljómsveit að sögn Höllu. „Fyrstu eiginlegu íslensku tónskáldin eru að koma fram í lok 19. aldar svo þetta er bara rétt rúm öld, íslenska tónlistarsenan. Frum- kvöðlar íslenskrar tónlistar voru að semja músík meðan það voru ekki til starfandi hljómsveitir hérna, svo þeir voru að búa til tónlistarlíf hérna alveg úr engu. það eina sem þeir höfðu í raun í höndunum voru góðir söngvarar og píanóleikarar. Það hefur því þurft að útsetja þessi lög fyrir hljómsveit. En það er merkilegt að hugsa til þess – og til- efni til að gleðjast yfir því hvað ís- lensk tónlist hefur vaxið og dafnað. Við erum orðin svo vön því Íslend- ingar að eiga frábæra sinfóníu- hljómsveit og tónlistarmenn á öllum sviðum, en það er svo stutt síðan hér var nánast ekki neitt,“ segir Halla Oddný hlæjandi. Tónleikarnir fara fram í Eldborg- arsal Hörpu kl. 20 nk. föstudag, 31. ágúst. Fjölbreytt klassíkin okkar  Verk úr öllum flokkum íslenskrar tónlistar, valin af almenningi, flutt í Hörpu  Samtímatónlistin á sterka fulltrúa, að sögn annars tveggja kynna tónleikanna Morgunblaðið/Hari Tónlistarunnendur Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson gramsa í einstöku hljómplötu- og diskasafni ríkisútvarpsins. Þau sjá um Klassíkina okkar sem verður í beinni útsendingu frá Eldborg í Hörpu á föstudaginn. Bandaríski leikarinn Ethan Hawke sagði í viðtali nýverið að ofurhetju- myndir væru ekki eins frábærar og margir vildu vera að láta. Breska dagblaðið The Guardian greinir frá þessu. Hawke tjáði sig sérstaklega um ofurhetjumyndina Logan. „Vandamálið er að okkur er sagt að Logan sé frábær mynd. Hún er vissulega frábær ofurhetjumynd en persónur hennar eru samt sem áður klæddar í níðþröngar buxur og á þær settar járnhendur. Logan er hvorki Bresson né Bergman en samt er látið eins og svo sé,“ sagði Hawke. Kvikmyndin Logan vann til verð- launa fyrir mikla tilfinningalega dýpt sem er ekki algeng í kvik- myndagrein ofurhetjumynda. Hand- rit myndarinnar var sömuleiðis til- nefnt til margra verðlauna. Ummæli Hawke hafa farið fyrir brjóstið á mörgum og einhverjir hafa sakað hann um flottræfilshátt. Hawke var sakaður um svipaðan elítisma fyrir fimm árum þegar hann sagði Óskarsverðlaunin hampa auð- gleymanlegum og heimskulegum kvikmyndum. AFP Skoðanaglaður Hawke þykir of mikið gert úr ofurhetjumyndum. Ofurhetjumyndir aldrei frábærar Í umfjöllun um Reykjavík Kabarett í blaðinu í gær birtist röng dagsetn- ing fyrir opnar áheyrnarprufur. Þær fara fram í Þjóðleikhúskjallaranum fimmtudaginn 30. ágúst kl. 21. Á baksíðu sama blaðs birtist röng dagsetning á uppistandi hins finnska Ismo Leikola. Sýningin, sem nefnist Words Apart, verður í Tjarnarbíói í kvöld, þriðjudag, kl. 20. LEIÐRÉTT Rangar dagsetningar á prufum og uppistandi Bandaríska leik- skáldið Neil Simon lést úr lungnabólgu á sjúkrahúsi í Manhattan á sunnudags- morgun. Simon var 91 árs að aldri þegar hann lést en sam- kvæmt The New York Times var hann þekktur fyr- ir kómedíur sínar sem sýndar voru á Broadway í áratugi. Simon tók þátt í því að endurskilgreina am- erískan húmor með áherslu á líf í borg og deilur fjölskyldna. Snemma á ferli sínum skrifaði Simon fyrir vinsælar sjónvarps- stjörnur, þar á meðal Phil Silvers og Sid Caesar. Síðar skrifaði Simon einnig kvikmyndahandrit. Hann er þó þekktastur fyrir leikritahandrit sín. Ferill Simon sem leikritaskáld hófst fyrir alvöru með leikritinu Barefoot in the Park, sem var fyrst sett á svið árið 1963 og öðl- aðist miklar vinsældir. Þar á eftir kom hver byltingarkenndi gam- anleikurinn á fætur öðrum frá Simon, The Odd Couple, Plaza Suite, The Prisoner of Second Avenue og The Sunshine Boys. Frá 1969 til 1980 voru leikrit hans flutt meira en 9000 sinnum. Það er met sem ekkert leikskáld hefur komist nálægt að slá. Árið 1966 voru fjögur leikrit eftir hann sýnd samtímis á Broadway. Í grein The New York Times er Simon sagður hafa „stjórnað Broadway þegar það var enn eftir- sóknarvert að stjórna Broadway.“ Endurskil- greindi húmorinn Leikskáldið Neil Simon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.