Morgunblaðið - 28.08.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 28.08.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er ekki nóg að vita hvað er manni fyrir bestu heldur er nauðsynlegt að tileinka sér það. Ekki gefa upp vonina því fólk mun endurskoða afstöðu sína gagnvart þér síðar í vikunni. 20. apríl - 20. maí  Naut Það getur verið dýrkeypt að blanda sér í annarra mál að ástæðulausu. Hugsaðu þig ekki tvisvar um þegar þú færð atvinnutilboð sem þig hefur dreymt um. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Leggðu þitt af mörkum svo sam- starfið gangi áfallalaust fyrir sig. Vertu óhrædd/ur þegar þú útskýrir hugmyndir þín- ar fyrir öðrum. Þú leggur blessun þína yfir ástarsamband vinar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Notaðu daginn til hugleiðslu eða jógaiðkunar eða njóttu fegurðar í kyrrlátu umhverfi. Haustið er þinn tími, þú fyllist orku og bjartsýni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú mátt ekki láta leiðindi þín bitna á þínum nánustu. Kenndu unglingnum að bera sig eftir björginni. Það er gott veganesti. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Yfirmenn þínir eru ánægðir með störf þín svo þú getur baðað þig í sviðsljósinu um sinn. Kurteisi kostar ekkert. Upp úr þurru birtist gamall ástvinur og biður um annan séns. 23. sept. - 22. okt.  Vog Búðu til lista yfir ólokin verkefni og reyndu að ljúka þeim á tilsettum tíma. Þú snýrð baki við skemmtanalífinu, búin/n að fá nóg. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú þarf að hefja viðræður og komast að samkomulagi. Árekstrar við ná- komna munu reyna töluvert á þig. Þú hefur stundum veðjað á vitlausan hest í ásta- málum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eitt og annað er að angra þig bæði heima og í vinnunni. Róaðu hugann og þá kemur svarið fljótt. Þú ert stoð og stytta foreldra þinna. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér lætur vel að stjórna en ástvin- ur þarf að læra hvernig hann á að bjarga sér í lífinu. Segðu já ef þú færð boð í brúðkaup. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert svo kappsfull/ur að þér hættir til að sýna öðrum sem fara sér hægar óþolinmæði. Sýndu skoðunum annarra virð- ingu og leitaðu samkomulags við þá. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hugsaðu þig vel um áður en þú hleyp- ur eftir hugdettum. Hlýddu á alla málavexti áður en þú lætur til skarar skríða. Ég hitti karlinn á Laugaveginumvið Laugaveg 66. Hann var snöggur upp á lagið og sagði: „Ég er að koma ofan af Holtinu, fékk grjónagraut og slátur eins og vant er á laugardögum. Áttræðisafmæli þitt bar á góma: „Víst er sá karl okkur kær,“ sagði kerling mín, eiður sær! „Samt finnst mér um of þetta endemis lof sem yfir hann helltist í gær.““ Og með það var hann þotinn, – gaf sér ekki tíma til að kveðja. Ég er þakklátur og snortinn vil ég segja fyrir góðar kveðjur sem ég fékk áttræður. Ég var hikandi við að birta vísur en Pétur sonur minn rak mig til þess – og ég læt skeika að sköpuðu. Ólafur Stefánsson reið á vaðið 19. ágúst: „Í næstu viku fyll- ir vinur okkar, Halldór Blöndal, áttugasta árið og af því tilefni er kjörið að senda honum vísu á Leir- inn. Ég byrja þá svona: Sjálfstæður í sól og hlýju, semur kíminn brag. Hann er orðinn áttatíu, ára loks í dag.“ Við Guðmundur Arnfinnsson voru saman í MA og kváðumst þá á: Sú er einlæg óskin mín innst í sölum Braga undu sæll við óð og vín eins og forðum daga. Síðan kemur Sigrún Haralds- dóttir: Fylgi þér gleðin fótmál hvert, fagni þér glit á bárum, minnstu þess helst sem mest er vert að muna frá liðnum árum. Filli – Friðrik Steingrímsson Þó að ellin þrífi völd þú skalt lifa glaður, sáttur fram á síðsta kvöld sóma og heiðurs maður. Sigurlín Hermannsdóttir sendi stöku: Kveðju einnig kveða vil kátum aldurs hali er vísum heldur haga til – hann má kallast smali. Hafsteinn Reykjalín frá Hauga- nesi sendi kveðju: Ég hamingju óskir þér Halldór sendi, Hafsteinn sem eitt sinn var nemi þinn. Líf þitt var gjöfult með góðan endi, gæfan þér fylgi enn, vinur minn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vegna áttræðisafmælis míns „ÞEIR ÞURFA ÞESSA UPPFÆRSLU STRAX. NETIÐ LIGGUR ENN NIÐRI, ÞANNIG AÐ ÞÚ VERÐUR AÐ NOTA STIGANN.“ „ÉG ER ALVEG BÚINN AÐ STEINGLEYMA ÞVÍ, ER ÁRIÐ EIN MILLJÓN F.KR. EÐA TVÆR MILLJÓNIR F.KR.?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fatta að það er snillingur í fjölskyldunni. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LÍSA FÍLAR BROSIÐ MITT MIG VERKJAR GJALD ÁSTARINNAR ER HÁTT HÆTTU AÐ VORKENNA ÞÉR! FARÐU OG GERÐU ÞAÐ SEM ÞÚ GERIR BEST! RÁN, RUPL OG AÐ SKILJA EFTIR ÞIG SLÓÐ EYÐILEGGINGAR! HÆTTU AÐ REYNA AÐ KÆTA MIG! Þrátt fyrir að telja sig nokkuðframbærilegan þjóðfélagsþegn getur Víkverji vel fallist á að hann er ekki gallalaus. Sjálfsagt mætti eitt og annað betur fara en sumu verður vart breytt úr þessu. Til að mynda því að Víkverji er stundum dálítið seinn að tileinka sér nýjungar. Ekki vantar að hann er vel með á nót- unum og veit af öllu sem er í gangi í kringum hann. Það vantar bara stundum að taka skrefið. x x x Um liðna helgi lét Víkverji loksinsverða af því að fara á alvörubíla- þvottastöð. Einhverra hluta vegna hafði Víkverji fram til þess aðeins notast við snertilausar stöðvar, þeg- ar ekki var hægt að plata einhvern í fjölskyldunni til að sjá um verkið. Snertilausu stöðvarnar eru svo sem ágætar. Maður situr inni í kyrr- stæðum bílnum meðan það er spúlað og sprautað á hann. En engir eru burstarnir því þetta er jú snertilaus stöð. x x x Nema hvað. Fyrir einhverja rælnirenndi Víkverji amerískri bif- reið sinni hinum megin að þvotta- stöðinni að þessu sinni. Þar var hon- um vísað aftast í röð (kannski að röðin hafi fælt hann frá áður …) og fyrr en varði hófust leikar. Sá amer- íski var settur í hlutlausan gír og rann í rólegheitum í gegnum mikinn ævintýraheim. x x x Fyrst sprautuðu kallarnir sápu ogefnum á bílinn en svo tóku vél- arnar við. Og þá byrjaði fjörið. Bón í öllum regnbogans litum, vatns- sprautur og kústar léku við sjálf- rennireiðina í nokkrar mínútur áður en ógnarsterk ryksuga þurrkaði hana að endingu. Víkverji yngri skríkti af gleði í aftursætinu og sá eldri gat vart leynt gleði sinni held- ur. Þegar verkið var tekið út verður að viðurkennast að þetta var kannski ekki besta bónmeðferð sem bíllinn hefur fengið. En það skrifast að einhverju leyti á Víkverja sem hefur vanrækt farartækið og þrif á því. Það mun ekki líða svo langt á milli ferða aftur. vikverji@mbl.is Víkverji Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum, eins hefur Drottinn sýnt mis- kunn þeim er óttast hann. (Sálm: 103.13)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.