Morgunblaðið - 28.08.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við félagsfræðingar erumáhugasamir um hvernigokkur mannskepnunnigengur í lífinu, hvernig
við höfum samskipti og hvernig við
hópum okkur saman. Við erum dýr,
en það erfiða við okkur er þessi
byrði sem fylgir því að vera mann-
eskja. Ég hef alltaf verið gríðarlega
áhugasamur um félagsfræði, sér-
staklega míkrófélagsfræði sem
snýst um að skoða samskipti fárra
innan lítilla hópa,“ segir Arnar Egg-
ert Thoroddsen, félagsfræðingur og
aðjúnkt við HÍ, en hann lauk nýlega
við doktorsverkefni sitt, sem er fé-
lagsfræðileg rannsókn á samfélagi
íslenskra dægurtónlistarmanna.
„Ég tók djúpviðtöl við þrjátíu
starfandi dægurtónlistarmenn og út
frá þeim er reiknað út einhvers kon-
ar mynstur. Ég spurði spurninga
eins og: Af hverju ertu að þessu?
Finnst þér þú hafa náð markmiðum
þínum? Langar þig að slá í gegn?
Viltu vinna við þetta?“ segir Arnar
og bætir við að í raun sé það eins og
að skrifa bók að gera svona rann-
sókn og setja hana fram.
„Enda hef ég unnið að þessu
undanfarin fimm ár, meðfram ann-
arri vinnu undir rest, en ég kenni af
kappi í Háskóla Íslands; fjölmiðla-
fræði og félagsfræði. Verkefnið
vann ég við Edinborgarháskóla með
frábærum leiðbeinanda, félags-
fræðingnum Simon Frith, sem er
einn helsti dægurtónlistarsérfræð-
ingur heims. Ég var orðinn dálítið
þreyttur á íslenskri tónlist þegar ég
fór út til Skotlands og ætlaði fyrst
að skrifa um eitthvað allt annað. En
góður vinur minn benti mér á að ef
ég gerði þetta ekki væri ég að kasta
á glæ miklu innsæi og yfirsýn. Ég
var vissulega rétti maðurinn í verk-
ið, með mína blaðamannareynslu,
áhuga á félagsfræði sem og tónlist-
aráhuga og þekkingu, og gott að-
gengi að tónlistarfólki.“ Þetta er
fyrsta doktorsritgerðin sem fjallar
einungis um dægurtónlistarfólk á
Íslandi og segir Arnar þetta von-
andi gott innlegg í fræðilegar rann-
sóknir á litlum tónlistarsam-
félögum.
„Útlendingunum í Skotlandi
fannst þetta t.d. voðalega spenn-
andi, enda er Ísland „sjóðheitt“
núna.“
Stórt grátt svæði á Íslandi
Arnar segir að í hópnum hafi
verið konur og karlar á aldrinum 35
til 55 ára.
„Allir höfðu verið í tónlistar-
bransanum í einhvern tíma og fyrir
vikið fékk ég mjög spök svör, fólk
gat litið til baka. Dæmi þar um eru
Mugison, Jónas Sig, Lára Rúnars
og Eyþór Gunnars. Einn af megin-
punktunum í ritgerðinni er þetta bil
eða gráa svæði á milli þess að vera
áhugamanneskja í músík eða at-
vinnumanneskja. Á Íslandi er þetta
gráa svæði gríðarlega stórt, því hér
hafa fáir fullar tekjur af sinni tón-
list. Og þá þarf fólk að færa
ákveðnar fórnir. Sumir vinna jöfn-
um höndum að eigin list og svo tón-
listarflutningi sem er í formi verk-
takavinnu, aðrir vinna einhverja allt
aðra vinnu meðfram sköpuninni
o.s.frv. Það voru alls kyns út-
færslur, og fólki leið misvel í eigin
skinni hvað þetta varðaði.“
Lítið var um eftirsjá
eða svekkelsi
Arnar spurði m.a. hvernig fólki
liði með að vera starfandi dægur-
tónlistarfólk á Íslandi, hvort það
væri heftandi eða frelsandi.
„Ef þú býrð á Íslandi ertu
vissulega heftur, þú getur t.d. ekki
haft lifibrauð af því að spila sýru-
djass öll kvöld en þú gætir hugsan-
lega gert það í New York. Það er þá
varla möguleiki á sérhæfingu hér.
En á sama tíma opnar fámennið og
smæðin líka á tækifæri, sumir töl-
uðu um tónlistarheima sem hefðu
opnast þeim einmitt vegna íslenska
veruleikans, sem hefði líkast til ekki
gerst hefðu þeir átt færi á sérhæf-
ingu.“
Margir viðmælenda Arnars
höfðu farið í ferlið að reyna að koma
tónlist sinni á framfæri erlendis og
fólk var með mismunandi sögur af
því. En vilja allir tónlistarmenn
meika það í útlöndum?
„Það kom mér á óvart hversu
mismunandi það var. Fleiri en ég
átti von á voru sáttir við tilraunir
sínar til að slá í gegn, lítið um eftir-
sjá eða svekkelsi. Ég spurði líka
hvernig hið góða gengi sem við Ís-
lendingar höfum verið að upplifa
með Björk og Sigur Rós horfði við
tónlistarfólkinu. Og vissulega er það
hvetjandi fyrir tónlistarfólk að sjá
að íslenskir tónlistarmenn geta orð-
ið heimsfrægir. Hér á Íslandi er það
þannig að Jói frændi sem þú hittir í
fermingarveislu þekkir Jónsa í Sig-
ur Rós. Eitthvað þannig. Skurð-
punktarnir eru alltaf miklu nær en
til dæmis hjá almenningi í Þýska-
landi. Það sama á við í íþróttum,
eins og kolleggi minn Viðar Hall-
dórsson hefur rætt um í sínum
rannsóknum. Og þá hugsar fólk: Ef
Jói frændi getur þetta, þá get ég
það líka. Þetta er gott dæmi um
hvað við Íslendingar erum gasaleg,
þetta er ekkert mál fyrir okkur,“
segir Arnar og bætir við að hann
hafi í doktorsritgerðinni einnig
skrifað sögu íslenskrar dægur-
tónlistar frá 874 fram til 2018.
„Fyrstu 750 árin afgreiði ég á
fjórum síðum, en ég fer ítarlegar í
dægurtónlistina frá 1950,“ segir
hann og hlær.
Við þráum samskipti mest
en óttumst þau mest um leið
Arnar segir að hann hafi í
niðurstöðum rannsóknarinnar m.a.
fengið staðfestingu á dálitlu sem
hann hafi alla tíð skynjað, hvað allt
þetta fólk sé jákvætt.
„Tónlistarfólk á Íslandi er svo
nett. Þegar ég var að vinna sem
menningarblaðamaður á Morgun-
blaðinu fannst mér stórkostlegt
hvað viðmælendur mínir voru stoltir
af því sem þeir voru að gera og
gerðu það af mikilli gleði. Það var
ævinlega mikil ástríða, alveg sama
hvort ég var að hitta liðsmenn stór-
hljómsveita eða tala við „Jóa bakara
á Raufarhöfn“, áhugamann sem
enginn vissi hver var. Reyndar er
það hliðartómstundagaman hjá mér
að fylgjast með áhugafólki sem gef-
ur út tónlist, ég elska allt svoleiðis.
Þá fær maður oft frumlega og
merkilega tónlist, því menn eru ekki
að þóknast neinum og þekkja ekki
reglurnar.“
Arnar segir að það hafi verið
sláandi munur hvað fólk gat viður-
kennt frjálslega einstaklingsbundna
þörf til að skapa, en um leið og kom-
inn var samfélagslegur þáttur í tón-
listarsköpunina kom annað hljóð.
„Þegar fólk talaði um eigin þörf
fyrir að skapa var það ófeimið og
opið. Stundum var þetta eins og sál-
fræðitími og fólk gat endalaust talað
um hvað þetta hafði mikla þýðingu
fyrir það. Það yrði að gera þetta,
vera einn í herbergi og glamra á
píanó eða gítar og sumir lýstu þessu
sem hugleiðslu, mjög náttúrulegri
þörf og köllun sem væri ekki hægt
að komast undan. En þegar ég
spurði hvaðan þörfin kæmi fyrir að
gefa eigin tónlist út á plötu varð
fólk feimnara því að þá er fólk kom-
ið í tengingu við aðra með tónlistina
sína. Þá var fólk svolítið að afsaka
sig, sagðist aðeins vera að flagga
egóinu o.s.frv. Þetta náði svo hástigi
þegar ég spurði hvers vegna fólk
þyrfti að spila á tónleikum fyrir
áhorfendur. Þá varð fólk enn feimn-
ara en ég fékk um leið falleg svör,
eins og einn sem talaði um þessa
mjög svo mannlegu þörf að deila
með öðrum. Þegar samfélagið var
komið inn í jöfnuna var merkilegt
að sjá hvað fólk varð feimið. Þetta
allt sannar fyrir mér hversu mikla
rullu samskipti spila í lífi okkar og
hversu mikilvægt er að rannsaka
þau. Samskipti eru það sem við
þráum mest, en óttumst mest um
leið.“
Þegar Arnar er spurður hver
sé tilgangur þess að skrifa doktors-
ritgerð segir hann að það sé að
sama skapi þörfin til að fræða og
setja fram, gefa af sér.
„Allt svona fræðastarf miðar að
því einu að skilja heiminn aðeins
betur, og þá eigum við öll um leið
möguleika á meiri vel- og samlíðan,“
segir Arnar, sem hlakkar til að
verja ritgerðina sína við
Edinborgarháskóla seinna í haust.
Tónlistarfólk á Íslandi er svo nett
Dægurtónlist á Íslandi er
umfjöllunarefnið í dokt-
orsritgerð Arnars Eggerts
Thoroddsen, félags- og
poppfræðings, sem hann
skilaði inn til Edin-
borgarháskóla á dög-
unum. Þar ræddi hann
við 30 starfandi dægur-
tónlistarmenn á Íslandi.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Arnar Eggert Hann fékk staðfestingu á því sem hann hafði alla tíð skynjað, hvað íslenskt tónlistarfólk er jákvætt.