Morgunblaðið - 28.08.2018, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 28.08.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018 Genf. AFP. | Sérstök sendinefnd mannréttindaráðs Sameinuðu þjóð- anna í málefnum Búrma skilaði í gær af sér skýrslu þar sem kallað var eft- ir því að Min Aung Hlaing, æðsti yf- irmaður hersins, yrði dreginn til ábyrgðar og ákærður fyrir þjóðar- morð á Róhingja-þjóðflokknum. Nefndin var skipuð á síðasta ári til þess að rannsaka hvað hæft væri í ásökunum um þjóðarmorð sem bornar höfðu verið á ríkisstjórn og her Búrma. Um 700.000 Róhingjar flýðu land í ágúst í fyrra yfir landa- mærin til Bangladess og bárust fljótlega fregnir um að hermenn frá Búrma hefðu stundað íkveikjur, morð og nauðganir á meðlimum þjóðflokksins, sem játar íslam. Stjórnvöld í Búrma hafa hins vegar hafnað ásökununum um þjóðernis- hreinsanir, en samkvæmt þeim hefur her landsins einungis varið sig gagn- vart árásum frá aðskilnaðarsinnum úr hópi Róhingja. Auk Min Aung Hlaing kallaði nefndin eftir því að fimm aðrir her- foringjar í æðstu yfirstjórn hersins yrðu ákærðir fyrir aðild sína að „glæpum gegn mannkyni“ sem framdir hefðu verið gegn Róhingjum í Rakhín-héraði Búrma. Sagði í skýrslunni að herinn hefði beitt mun meira valdi en þörf hefði verið á til þess að takast á við ógnir við öryggi Búrma. Aung San Suu Kyi, helsti borgara- legi leiðtogi Búrma, var einnig gagn- rýnd af nefndinni fyrir að hafa ekki beitt ítökum sínum til þess að reyna að koma í veg fyrir hina hræðilegu atburði. Viðurkenndi nefndin þó að borgaraleg yfirvöld í Búrma hefðu lítið taumhald á gjörðum hersins. Suu Kyi hefur verið mikið gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi sitt á undanförn- um mánuðum, en hún fékk friðar- verðlaun Nóbels árið 1991. Vilja að Min verði saksóttur  Herinn í Búrma sakaður um þjóðarmorð á Róhingjum í nýrri skýrslu SÞ AFP Búrma Nefnd Sameinuðu þjóðanna kynnir niðurstöður sínar í gær. Mohsen Mohebi, fulltrúi Írans (fyrir miðju), sakaði Bandaríkjamenn um að hafa gert „efnahagslega árás“ á land sitt, þegar hann mælti fyrir kæru klerkastjórnarinnar í Teheran á hendur Bandaríkjunum fyrir Alþjóðadóm- stólnum í Haag. Krefjast Íranar þess að dómstóllinn felli úr gildi refsiað- gerðir Bandaríkjamanna, sem settar voru á fyrr á árinu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti rifti kjarnorkusamningi við Íran. Sagði Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að land sitt myndi verjast „kröftuglega gegn hinum rakalausa málflutningi Írana“. AFP Íranar kæra Bandaríkjamenn fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag Vilja að refsiaðgerðir verði numdar úr gildi Rússneskir fjöl- miðlar fordæmdu í gær bandaríska öldungadeildar- þingmanninn John McCain, sem lést á laugar- daginn var. Úthrópuðu þeir McCain og sögðu hann hafa verið helsta tals- mann „Rússafóbíu“ í Bandaríkj- unum. Rússneska götublaðið Komsomolskaja Pravda, sem sagt er hliðhollt stjórnvöldum, gekk einna lengst í fordæmingu sinni. Sagði blaðið í ritstjórnargrein að McCain hefði „dáð stríð. Ef þú hef- ur ekki verið drepinn ennþá, er það ekki honum að kenna, því hann reyndi.“ Óskaði leiðarahöfundur blaðsins þess að McCain brynni í helvíti. Ekki tóku þó allir þátt í fordæm- ingunni. Oleg Morozov, formaður utanríkismálanefndar öldunga- deildar rússnesku dúmunnar sagði að óvinur Rússlands hefði nú fallið frá, en að það mætti þó hrósa McCain fyrir að hafa verið heið- arlegur í andstöðu sinni við Rússa. „Aðrir reyna að blekkja. Hann sagði það sem honum fannst.“ McCain fær kaldar kveðjur John McCain RÚSSLAND Greint var frá því í kínverskum ríkisfjölmiðlum í gær að ráðamenn þar íhuguðu nú frumvarp þar sem þær takmarkanir sem ríkt hafa í áratugi um fjölda barna sem kín- verskar fjölskyldur mega eignast verði numdar úr gildi. Kínverski Kommúnistaflokk- urinn setti reglurnar árið 1979 til þess að draga úr fólksfjölgun, og máttu pör þá einungis eignast eitt barn, en þungar sektir lágu við því að brjóta þá reglu. Slakað var á reglunum árið 2016 og pörum leyft að eignast annað barn. Fæðingartíðni í Kína hefur hins vegar ekki aukist jafnmikið og stjórnvöld vildu síðan tveggja barna reglan var sett og vilja stjórnvöld því hvetja til barneigna. Slakað á reglum um fjölda barna? KÍNA Donald Trump Bandaríkjaforseti fagnaði í gær því sem hann sagði vera „virkilega góður samningur“, sem náðst hefði við stjórnvöld í Mexíkó um breytingar á Fríversl- unarsamningi Norður-Ameríku (e. NAFTA). Sagði Trump að hann myndi heyra innan tíðar í Justin Tru- deau, forsætisráðherra Kanada, til þess að fá Kanadamenn einnig að samkomulaginu. Bandaríkjamenn og Mexíkómenn hafa átt í samningaviðræðum undan- farnar vikur um breytingar á NAFTA-samkomulaginu, sem Trump hafði áður úthúðað sem „stór- slysi“ fyrir bandaríska viðskiptahags- muni. Beðið eftir Kanada Ildefonso Guajardo, efnahagsmála- ráðherra Mexíkó og helsti samninga- maður landsins, sagði að næsta skref væri að Kanadamenn myndu aftur taka þátt í viðræðunum um endur- skoðun NAFTA, en Trump vildi ekki útiloka að gera yrði sérstakan samn- ing við Kanadamenn um þær breyt- ingar sem hann vildi sjá á viðskiptum Bandaríkjanna og Kanada. Enrique Pena Nieto, forseti Mexíkó, hringdi í gær í Trudeau og áréttaði þá ósk sína að Kanadamenn kæmu aftur að samningaborðinu. Sagði Nieto að sá möguleiki væri fyr- ir hendi að NAFTA-samkomulagið nýja yrði samþykkt fyrir lok þess- arar viku. Pena Nieto sagði jafn- framt að nýja samkomulagið kæmi sér mjög vel fyrir bæði Bandaríkin og Mexíkó, og að það hefði verið ein- faldað mjög mikið frá því sem áður var. sgs@mbl.is Segja samkomu- lag í sjónmáli  Nýr samningur um NAFTA „í þessari viku“ AFP NAFTA Donald Trump tekur hér í hönd Ildefonsos Guajardo eftir að samkomulagið var í höfn. Epal Hörpu / Epal Laugavegi AIRPORT FASHION - KEF Útsölustaðir Reyk jav ik Ra incoats - HVerf i sgötu 82 www.reyk jav ikra incoats .com - s ím i : 571 1177

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.