Þróttur - 22.04.1920, Qupperneq 15
Þróttur
5l
íþróttafréttir.
Víðavangslilíiup íþróttafélags R.víkur
fer fram í dag i fimta skiftið; ef veð-
Ur leyfir. Hlaupið hefzt frá AusturveDi
^1* 2 síðd. og verður farin sama leið og
Þrótt 1. sumardag 1919).
verða 15, og er þeim skip-
í þrjár sveitir. Fyrsta Víðavangshlaup
• R. var háð hér 1916. Þátttakendur
v°ru þá 10. Jón Jónsson ljósmyndari
Varð fyrstur, en Ólafur Sveinsson vél-
setjari næstur. 1917 tóku 10 menn
Þútt í hlaupinu, og bar Jón J. aftur sig-
Ur úr býtum. 1918 voru þátttakendar 10,
en 1919 að eins 8, og vann Ólafur
Sveinsson bæði hlaupin.
Sanibandsfélög í. S. í.
1 fyrra mánuði gekk Knattspyrnufélag
^estmanneyja í Sambandið. K. F. V.
er hér vel þekt, það tók þátt í Knatt-
sPyrnumóti íslands 1911. Formaður fé-
lagsins er stud. jur. Kristinn Ólafsson.
1 a hefir Ivnattspyrnufél. »17. júní« í
Hafnarfirði nýlega gengið í í. S. í. Fé-
•agatala er 40 og formaður félagsins er
Jakob A. Sigurðsson, verzlunarmaður.
eru sambandsfélög í. S. í. orðin 68
tölu. íþróttamenn, vinnið að því að
sameina öll þau félög, er hafa íþróttir
a stefnuskrá sinni, undir merki í. S. í.
Aðalfundur í. S. í.
verður haldinn hér næstkomandi
snnnudag kl. 2 síðd. í Iðnó. Fulltrúar
eru hérmeð ámintir um að mæla stund-
^íslega og með kjörbréf.
Halldór Hansen læknir
hefir gerzt æfitélagi í. S. í. og eru
Þe>r nú orðnir 12 að tölu. Sjóður styrkt-
arfélaga í. S. í., sem þessi æfigjöld eru
lö§ð í, er að upphæð kr. 643,19.
Akademisk Boldklub
hefir nýlega sent í. S. í. vandaðann
1 fyrra. (Sjá
Rálttakendur
silfurskjöld, til minningar um komu
þeirra hingað á síðastl. sumri.
Skautakongur Manitóba-fylkis
heitir Magnús Goodmann og er ís-
lenzkur. Mótið fór fram 9. janúar s. 1.
í Winnipeg, og voru þátttakendur fimm
beztu skautamenn þar um slóðir. Magn-
ús vann öll skeiðin, V4 niílu, 3/s mílu,
mílu og 3. mílna. Næstur honum var
Philip Taylor, mikill skautakappi og
fyrv. skautakongur. Petta var í þriðja
sinni sem Magnús vann á þessu móti,
og hlaut hann því silfurbikar þann, sem
hann áður hafði unnið, til eignar.
Magnús Goodmann er að eins tvítugur
að aldri, og spá vestan blöðin honum
mikillar frægðar í skautahlaupum.
Frá Jóhannesi glímukappa.
Snemma í desember-mánuði fór Jóh.
Jósefsson suður til Havana á Cuba, og
var tekið þar með kostum og kynjum.
Blaðið »Diario de la Marina« frá 7. des.
segir svo frá:
»Sýning Jóhannesar var framúrskar-
andi góð. Pegar hann kemur fram á
leiksviðið í þjóðbúningi íslendinga, fer
aðdáunar-ókyrð í gegnum alla áhorf-
endurna, því miklir kraftar, lipurð, lægni,
einurð og vitsmunir, mynda þarna eina
samsteypta heild. Fáir iþróttamenn munu
hafa fengið frá fyrsta augnabliki meira
lófaldapp, og þó það væri mikið þegar
frá byrjun, þá jókst það alt af jafnt og
þétt, eftir því sem á leið sýninguna, og
þegar Jóliannes með lægni sinni og
snarræði, feldi hvern mótstöðumann
sinn á fætur öðrum, líktis fögnuðurinn
stormveðri, eins og menn væru alveg
viti sínu fjær, og vissu ekki hvernig
þeir ættu að sýna fögnuð sinn . . .«
Þegar á unga aldri sýndu sig hinir
miklu íþróttahæfileikar Jóhannesar og
alt af hefir frægð hans farið vaxandi.
Árið 1913 lagði hann að velli hinn
fræga japanska glímumann Hirano, í