Stjarnan - 01.12.1919, Qupperneq 10

Stjarnan - 01.12.1919, Qupperneq 10
106 STJARNAN. yfir fljótið. ]íetta tré ber tólffaldan á- vöxt. Á hverjum mánuði kemur ný teg- und af ávexti sem Guðs börnum er leyft að borða. par verða engir óvinir, svo borgarhliðin standa opin nætur og daga Öll börn Guðs hafa aðgang að borginni og allt fólk þessa ríkis er Guðs börn. “Engin bölvan skal framar vera og há- : æti Guðs og Lambsins skal í henni vera og hans þjónar skulu honum þjóna. peir skulu sjá hans auglit.” Opinb. '22:3—5. 11 vað blessunarrík forréttindi að sjá hið bezta, dýrðlegasta og elskuverðasta auglit í alheiminum, auglit vors Guðs, vors frelsara, vors vinar. Kæri iesari! Til þessai’a eilífu heim- kynna, hverra dýrð engin mannleg tunga getur lýst. býður Guð þér að að koma. Allur ríkdómur Krists náðar, cr heiminum gefinn til þess að þú getir öðlarJ allt þetta. Ætiar þú að þiggja þesra náð og fara í þetta heimboð, til ]mss að öðlast hlutdeild í ljóssins ríki með hinum licilögu frá öllum öldum. Les þú með mér aftur: “Eg, Jesús, sendi minn engil til að votta yður þetta í söfnuðinum; eg em rót og kynstafur Davíðs, morgunstjarnan sú hin skæra. Andinn og brúðurin segja: Kom þú! Sá, sem þetta heyri, hann segi: Kom þú. Sá, sem þyrstur er, hann komi; hver sem vill, hann taki gefins lífsins vatn. ” Opinb. 22:16, 17. pu getur haft heimili hérna, en far þú ekki á mis við hið eilífa, þar sem þú á hverjum mánuði og hverjum hvíldar- degi munt “sjá konunginn í ljóma sín- um” og verða ánægður. Es. 66:22, 23. Faðir, “tilkomi þitt ríki.” Amen. Tíu smálestir af kínverskum biblíum voru sendar frá Kína til Frakklands til að skifta milli kínverskra hermanna og verkamanna meðan stríðið stóð yfir. Bkki er hún dauð sú bók, Blessun trúboðsstarfsins Ameriskt skip, serri var á ferð yfir Kyrrahafið, strandaði á blindsker og' spónbrotnaði. Öll skipshöfrrin gekk í bátana. Eftir að skipbrotsmennirnir höfðu verið á reki í 15 daga á reginhaf- inu og árangurslaust lrorft eftir skipi eða landi, komu þeir auga á litla eyju, scim þeir ekki þektu, og var hún unr- krönsuð af hinurn svo kölluðu kóral skerjum; þetta var kvalafull stund fyrir hina örmagna siglingamenn. Ef nú þessir eyjarskeggjar væru mannætur, myndi það verða óttalegra að falla í hendur þeirra en að verða gleyptir af sjónum. Meðan siglingamesnirnir horfðu á villimennina í fjörunni, sáu þeir marrn koma út til þeirra á litlum bát. Hanrr hélt á stórri bók í hendinni, sem hann lyfti upp yfir höfuð sér og hrópaði með hárri röddu: “Trúboði! truboði!” pessi orð hljórnuðu eins og unaðsfagur söngur í eyrum skipsbrotsmannanna Trúboði hafði verið þar í eyjunni og skilið bókina — bók bókanna — eftir og hvað höfðu þá siglingamennirnir að óttast? Fegnir yfir jþessari frétt, hrópuðu þeir til eyjarskeggjanna, að korna og hjálpa sér fram hjá boðunum, og eftir stutta stund stóðu þeir heilir á húfi í fjörinni. par var þeim tekið tveim höndum og hjúkrað. Og hve mikill var ekki fögnuður skipstjórans og undrun, þegar hann í samtali við eyjarskeggjana fékk að vita, að einn af bræðrum hans, sem var trúboði, hafði allra manna fyrstar boðað þeim fagnaðarerindið. Guðsóttinn er nýtsamur til als, þar eð hann hefir fyrirheit um líf hér á jörð- inni og um ei'líft líf í hinum komandi heimi.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.