Stjarnan - 01.12.1919, Page 11

Stjarnan - 01.12.1919, Page 11
STJARNAN. 107 Syndajátning “Sá, sem felur yfirsjónir sínar, mun ei lánsámur verða, en sá, sem meðgeng- ur þær og .lætur af þeini, mun miskun hljóta. ’ ’ Orðskv. 28:13. Skilyrðin fyrir því að öðlast náð Guðs eru réttvís, einföld og sanngjörn. Drott- inn heimtar ekki af oss að inna neinar þrautir af hendi til þess að geta öðlast- syndafyrirgefningu. Yér þurfum ekki að fara langar og erfiðar pílagrímsferð- ir eða leggja á oss meinlæti, til þess að fela sálu vora Guði himnanna, eða. bæta fyrir brot vor, en sá, sem kannast við synd sína og lætur af henni, skal misk- un hljóta. Svo segir postulinn: “Játið hver fyr- ir öðrum yðar yfirsjórir og biðjið hver fyrir öðrum, svo að þér verðir heilbrigð- ir. ” Jak. 5:16. Játiö syndir yðar fyiir Guði, sem eiinn getur fyrirgefið þær, og yfirsjópir yðai' hver fyrir öðrum. Ef þú hefir móðgað vin þinn eða nágranna, þá átt þú að játa yfirsjón þína, og er honum skylt að fyringefa þér fúslega. því næst átt þú að biðja Guð fyrirgefn- ingar', því að sá bróðir, sem þú hefir sært, heyrir Guði til, og þú hefir syngað móti skapara þínum og endurlausnara með því að vinna honum mein. Málið er lagt fyrir hinn eina sanna milligöngu- mann, vorn mikla æðsta prest, “sem freistað er á allan hátt eins og vor, þó án syndar” og “sampínst getur vorum veikleika. ” Heb. 4:15. Hann getur af- máð sérhvern ranglætisblett. þeir, sem ekki hafa auðmýkt sálir sínar fyrir Guði, liafa eigi enn uppfylt hið fyrsta skilyrði, sem sett er fyrir því, að Guð taki þá að sér. Vér höfum aldrei í sannleika sóst eftir synda fyrirgefn- ingu, ef vér höfum ekki reynt það aft- urhvarf, sem enginn iðrast eftir, játað syndir vorar með sannri auðmýkt og sundurkrömdum anda og fengið við- bjóð á ranglæti voru. Og ef vér höfum aldrei leitað friðar Guðs, þá höfum vér ahlrei fundið hann. Eina ástæð'an iiI þess að vér höfum ekki fengið fyrir- gefningu fyrir drýgðar syndir, er sú, að vér crum ekki fúsir til að auðmýkja hjörtu vor og laga oss eftir skilyrðum þeim, er Guðs orð setur. Vér höfum fengið greinilega fræðslu um þetta efni. Syndajátningin á að vera hjartanleg, hvort sem hún fer fram opinberlega eða í einrúmi, og ekkert má draga undan. það á ekki að neyða synd- arann til hennar. það á ckki að láta syndir sínar með léttúð og kæru- leysi, og það á ekki að knýja þá til syndajátningar, sem ekki hafa ljósa hug mynd um hið viðbjóðslega eðli synd- arinnar. Sú játning, sem kcmur frá insta. grunni hjartans, kcmst fyrir eyru hins eilífa, miskunsama Guðs. Svo segir sálmaskáldið hebreska: “Drottinn er þeim nálægur, scm hafa sundurkramið hjarta, og frelsar þá, sem hafa niður- beygðan anda.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.