Stjarnan - 01.12.1919, Síða 22

Stjarnan - 01.12.1919, Síða 22
118 STJARNAN. Sýrus, sinn smurða. Eg vil ganga á und- an þér. — Eg vil gefa þér hina huldu fjársjóðu og hina fólgnu dýr.gripi, svo þú kannist við, að eg em Drottinn, ís- raels Guð, sem útvaldi þig. ” petta var svo merkileg opinberun frá hinum eilífa föður, að Sýrus kannaðist við hann, sem hinn allra hæsta Guð. Og þegar hann enn fremur las í hinum helga spádómi, að Guð hafði kjörið hann til að “upp- byggja borg” sína, “og gefa heimfarar- leyfi” hans “herleidda fólki, án kaup- gjalds eða lausnarfjár”, þá trúði hann því einnig. pannig lesum vér um hann: “Á hinu fyrsta stjórnarári Sýrusar, Persakonungs, svo að uppfyltist orð Guðs fyrir munn Jeremia, þá uppvakti Drottinn anda Sýrusar Persakonungs, svo að hann lét ganga boðskap um alt ríki sitt, og líka með bréfum kunngera: Svo segir Sýrus Persakonungur: “Öll jarðarinnar ríki hefir Drottinn, himn- anna Guð, gefið mér og skipað mér að by@gja sér musteri í Jerúsalem, sem í Júdeu. Hver sá sem er á meðal yðar af ölllu hans fólki, með honum mun Guð vera, hann fari upp til Jerúsalem.” pessi konungsskipun var géymd í hinu mikla bókasafni í höllinni í Ekbat- ana. Esra. 6 -.1,2. IJér um bil 50.000 Gyð- ingar notuðu þetta tækifæri og sneru heim til Palestinu. Hann sendi einnig mcð þeim öll áhöld og ker musterisins, sem Nebúkanesar hafði fluti til B.abels. 1 535 lögðu hinir heimkomnu Gyð- ingar hornstein musterisins, en varð eft- ir stuttan tíma mjög svo erfitt að halda verkinu áfram. Samverjarnir, sem sjálfir sóttust eftir að verða drotnarar yfir Júdeu, reyndu að stöðva verkið. Eftir að tilraun þeirra til að byggja musterið í félagi með Gyðingum mis- hepnaðist, leigðu þeir ráðgjafa, sem reyndu að koma Sýrus til að leggja verkið niður. Daníel, sem enn þá var efsti ráðherra ríkisins, varð mjög svo hryggur út af þessu. En í staðinn fyrir að ræða málið við konunginn, til þess að ónýta það sem hinir leigðu náðgjafar höfðu komið til leiðar, lagði hann þetta mál fram fyrir Guð. pctta var hinn þriðja dag hins fyrsta mánaðar, árið 534 f. Kr. sem var þriðja ríkisár Sýrusar. Daníel bað og syrgði í þrjár vikur og neytti engrar dýrindis fæðu, hvorki kjöt né vín kom inh fyrir hans varir. Yið lok þessara þriiggja vikna, kom engill til hans og skýrði honum frá, hvcrs vegna hefði lregist að veita honum bænheyrslu. “Persaríkishöfðingi stóð í móti mér 21 dag”. ” Svo langan tíma tók það Sýrus 'að rannsaka málið viðvíkjandi bygg- ingu musterisins í Jerúsalem og, leiða svik hinna leigðu ráðgjafa í Ijós. GLEÐILEGAR FRÉTTIR Mörg þakkarbréf hefir ritstjórinn meðtekið frá kaupendum ‘Stjömunnar’ síðan hún íor að koma út. Af þessum bréfum má sjá, að “Stjaman” finnur alstaðar vini sem keppast um að lesa fræðigreinar hennar, smásögur og fréttir. pegar búið er að lesa ‘Stjörn- una’ er oft sagt: “Stjarnan” er bczta tímaritið, sem við nokkurn tíma höfum keypt. Eg held eg verði að skrifa honum Davíð og biðja hann um að gefa það út mánaðarlega næsta ár. ” — Og inn á borð ritstjórans koma þess konar bréf úr öllum áttum. Fyrir aðstoð ýmsra manna, cr ákveð- ið að gefa “Stjörnuna” út 12 sinnum næsta ár. Hvert hefti verður 16 blað- síður. Verðið verður að eins $1.00. Fræðandi saga mun ganga gegnum allan árgaginri. Svo gleyrnið ekki að senda inn $1.00 og skýra utanáskrift — Bezta þakklæti fyrir öll bxéfin D. G.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.