Stjarnan - 01.12.1919, Blaðsíða 24

Stjarnan - 01.12.1919, Blaðsíða 24
120 STJAItNAN. nægilegan nætursvefn, þá er ekki víst að hann geti fengið hann; en vantar svo viljann og maður lætur alla tíð kvelcl- skemtanir, kveldvinnu eða jiara vanann til að vaka, sitja í fyrirnimi og ekki sinnir kröfu líkamans og kalli hans á svefn, hvernig fer þá? Á andlitum þúsunda manna, sem við daglega mætum, má lesa að þeir fá al- drei nægilegan svefn. Andlisdrættirn- ir stirðna og vcrða óihreyfanlegir. þessi stirðleiki hverfur þegar maður er í önn- um. þá er ekkert að sjá eða finna, og' það er einmitt í því, að hin mikla lrætta við ónógan nætursvefn er innifalin, og maður gefur því engan gaum. En er þess konar menn eru ekki í önnum, heldur sinna sínum daglegu störfum í kyrþey, þá kemur þessi stirðleiki í Ijós og skýr- leika í hugsunum vantar. Skýrleiki í hugsunum er það scm kemur í Ijós í um- hyggju manns. Hver þekkir ekki bæði sinn eiginn og annara skort á um- hyggju? 1 fæstum tilfellum er það skortur góðs vilja og heldur ekki skort- ur á hæfileikum; nei, það er bara þetta, að heilinh hefir ekki fengið nægilegan tíma til að hvíla sig. Hve mikið og á- gætt vinnuafl eyðist. ekki þannig, bæði í stórum og smáum stíl? Mörg hcimili verða að líða vegna þessa ósiðar. Og hve 'oft förum við ekki á mis við bros- andi andlit og vingjamleg orð, af því að menn geta ekki byrjað dagsverk sitt eftir að hafa ekki fengið nægilegan svefn? Heilinn hefir ekki fengið þá hvíld, sem hann þarf með og þessvegna verða menn þungir í skapi. Við vitum allir, að þegar við höfum sofið nóttina í einum dúr, eru við langt um færari til að bera “hita og þunga” dagsins”. þetta á einnig við heimilis- lífið, þar sem við eigum að bera hvert annars byrðar. það getur skeð, að við eiguni að gera vingjarnlega athugasemd eða smáræðisverk, sem engan tíma tek- ur, en það sýnir að heilinn hefir fengið hvíld og að lmg'sunin er skýr, en ekki eins og hún væri storknuð. Að lokum snertir þetta efni einnig fegurð mannsins. Sá, sem getur sofið vel, 'hefir hýrlegt andlit og lítur l)etifr út en sá, sem hefir ónógan svefn. Svo við skiljum, að ekkert er.eins nauðsyn- legt fyrir heilsu, fegurð, æsku og lík- amskrafta, eins og nægilegur svefn. HANN VILHJÁLMUR OKKAR Fyrir nokkru var eg við sérstakt tæki færi í heimboði á stóru og góðu heimili, þar sem eg oft var búinn að konia áður. Eg vissi að þetta fólk ihafði aldrei haft neinn áhuga fyrir bindindismálinu, svo eg var hiséa við að sjá, að á hinu mikla og “praktuglega” borði, þár sem mið- degisverðurinn beið gestanna, var ekki eitt einasta vínglas. lig hugsaði fyrst, að þeta væri gert í virðingarskyni við mig, svo eg spurði húsmóðurina hvort þau væru orðin bindindismenn síðan eg síðast hafði haft þá ánægju að koma á heimili þeirra. Eg sá strax á henni að spurning mín hafði snortið viðkvæman blett í hjarta hennar og' hallaði liún sér upp að mér og hvíslaði í eyra mér, að hún ætlaði að skýra mér frá þessu eft- ir máltíðina. Stundarkorn eftir að við höfðum far- ið frá borðinu, kom hún til mín og bað mig að fara með sér inn í annað her- bergi og tók eg eftir að rödd hennar bar vott um mikla geðshræringu, þegar hún sagði við mig: “þér spurðuð, hvort við. værum orðin bindindis menn ? ’ ’ “Já”, svaraði eg. “ Eg tók undir eins eftir, að engin vínglös voru á borð- inu og varð eg við það forviða. ”

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.