Stjarnan - 01.04.1920, Side 1

Stjarnan - 01.04.1920, Side 1
STJARNAN Vorið. Meðan veturinn enn var hjá oss, meðan frostið var napurt og snjókoman mikil, óskuðum vér oft og tíðum að vorið myndi koma. Og þegar mælirinn sýndi “fjörutíu fyrir neðan” var eins og efinn hvísl- aði í eyrun mannanna: “Eg held ekki að neitt vor geti komið upp úr þessu.” En hvað er skeð? Vorið er komið. Og veiztu hvers vegna þetta á sér stað? — Árstíðirnar koma af því að skapari himins og jarðar man til fyrirheita sinna og efnir ætíð loforð sitt á réttum tíma. Einu sinni lofaði hann þessu: “Meðan jörðin er við lýði, skal hvorki linna sáð nq uppskera, frost né hiti, sumar né vetur, dagur né nótt.” Jörðin er enn við lýði, og eins lengi eru öll Guðs fyrirheit órjúfanleg. Hann man til þeirra allra og ekki seinkar Drottinn sínum fyrirheitum. Innan skamms “skal upprenna sól réttlætisins (Kristur), undir hverrar vængjum hjálpræðið er.” Ef þig langar til að njóta þeirrar sólar, verður þú að vera vinur hans, sem er “Ijós heimsins” Apríl, 1920 Verð 10 Cents

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.