Stjarnan - 01.04.1920, Qupperneq 8

Stjarnan - 01.04.1920, Qupperneq 8
56 STJARNAN upp í lestimii á “ Yokoliama”. Mig ]aug- ar til að þ.jóna honum eins og móðir mín gerði. Munið þér ekki eftir ræðunni, sem þér hélduð fyrir okkur piltunum um biblíuna og fyrirheit hennar?” “Jú, eg man eftir því öllu, en ekki að ræðan hefði nein áhrif til þess betra á þig.” “Nei, herra skipstjóri, því að'sama daginn fleygði ag biblíunni, sem móðir mín hafði gefið mér, fyrir borð. Hún viar þó búin að undirstrika hana mín vegna- Og vitið þér hvað; hún var bú- in að merkja þau vers, sem þér sögðuð að hefðu frelsað okkur frá eldinum. En nú hefi eg fengið aðra biblíu, sem einnig er undirstrikuð. Hin sömu vers í Sálrnunum og tíu boðorðin eru undir- strikuð og margar aðrar ritningargrein- ar. ” “Hvar fanst þú þesskonar biblíu?” spurði skipstjórinn vingjarnlega. , Haraldur sagði honum andlát móður sinnar, rrm það Jíf, sem hann sjálfur var búinn að lifa, urn fangelsisvistina, dóm- inn sem hafði verið uppkveðinn yfir honum og samtalið við gamla manninn á ferjustöðinni í Oakiand. “Já, eg þekki þann mann, ” sagði skipstjórinn. ” Hann tilheyrir einkenni- legum trúflokk, sem heklur laugardag- inn heilagan í staðinn fyrir sunnudag- inn. Hann skikli eftir hér í lestrarsaln- um á skipinu allmikið af blöðum og smáritum, sem skipshöfnin og farþeg- amir geta lesið á leiðinni.” “Já, hann sá mig lesa í biblíunni á fci'justöðinni og þegar hann fann út að ,mig langaði til að eiga han, lét hann mig hafa hana. Eg sbal bara segja yð- ur, að hann var hinn bezti maður, sem eg nokkurn tíma hefi mætt. ITann skildi sálarástand mitt. þegar eg skýrði honum frá, hve djúpt eg hefði sokki!ð, vöknaði honum um augun og hann bað fyrir mér, að eg' mætti öðlast lausn frá öllum ástríðum og verða hluttakandi þess hjartafriðar, sem Kristur lofaði fylgjendum sínum. það sem hann sagði gerði mér skilja.nlegt hvað eg ætti að gera og nú hefi eg ákveðið að lifa reglu lífi. Mig langar einnig ,til að biðja yð- ur, herra skipstjóri, að hjálpa mér. ” “Eg ætla vissulega að gera mitt bezta til að hjálpa þér til að verða kristinn; en eg er hræddur um að eg geti ekki hjálpað þér til að trúa eins og garnli maðunnn á ferjustöðinni, því að eg held að honum skjátlist þegar hann heldur laugardaginn. það eru einn ig fleiri laf þessum mönnum á skipinu — trúboðum á leið til Kína. þeir munu hjálpa þér; en vara þú þig, að þú verð- ir ekki afvegaleiddur. ” Eftir að hafa talað þes,si fáu orð, gekk skipstjórinn frá honum og Harald- ur hélt áfram verki sínu, en mangar spurningar komu honum til hugar- “Hvað meinti hann, þegar hann hélt að gamla manninum skjátlaðist? Og í hverju var þessi trúflokkur einkenni- legur? Og hvemig myndi eg verða af- vegaleiddur með því að hitta og öðlast hjálp hjá þessum trúboöum? Ekki get eg ímyndað mér að gamli maðurinn á ferjustöðinn myndi afvegaleiða neina sá.l"? ’’ þannig luigsaði Haraldur við sjálfan sig. Framhald.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.