Stjarnan - 01.03.1924, Qupperneq 7

Stjarnan - 01.03.1924, Qupperneq 7
STJARNAN 39 til GutSs er að vér höldum hans boðorö" (i. Jóh. 5:3;. “Betri þolinmóð'ur maður en þótta- fullur” JPréd. 7: 8). ÞaS er þess vegna verk andans, að gjöra menn þolinmóða. Af því var Kristur og eins vel þjónar hans, bæði á undan krossinum og á eftir, hinir þolbeztu menn, sem þessi hei'mur hefir séð. “En yfir Davíðs hús og Jerúsalemsbúa úthelli eg líknar- og bænaranda” (Sak. 12: 10). Svo vér sjáum, að þeir, sem meðtaka anda Guðs í hjartað, verða líknsamir og menn bænarinnar. í 2. Kor. 13: 4, sjáurn vér, að Kraftur mun fylgja þeim, sem öðlast anda Guðs. Og hjá Es. 11: 2 lesum vér, að andi þekkingar mun hvíla yfir þeim. Svo ef þú mætir einhverjum, sem segist hafa anda Guðs, en kæri sig ekkert um að öðlast þekkingu á Guðs orði, þá getur þú vitað fyrir vist, að það er alls ekki Guðs andi, sem hvílir yfir honum. Skort- ur á þessari þekkingu mun að lokum eyðileggja fólkið, því þannig lesum vér hjá Hós. 4:6: “Eýður minn verður af- máður, af því að hann hefir enga þekk- ingu.” Vegna þess, að allur heimurinn vanrækir að lesa Guðs orð dagelga og breyta eftir því, fer hann á mi's við þekk- inguna á Drotni og fylgir í staðinn höfð- ingja þessa heims. Heimurinn hefir alla tíð, síðan syndin ’kom inn, verið há- vaðasamur, þess vegna getur þú slegið því föstu, að í þeim kirkjum, sem há- vaðinn og gauragangurinn heyri’st lang- ar leiðir, er heimsandinn ríkjandi, en andi Guðs hvergi nálægur. Hvar í ritn- ingunni finnur þú, að þjónar Guðs i fornöld, sem töluðu “knúðir af Heilög- um Anda”, gjörðu hávaða eða væru að ólátast? Þeir voru kyrlátir, friðsamir og hógværir menn. Sbr.: Nói, Abra- ham, Móses, Job, Elías og Daníel. Guð himnanna er Guð friðarins, en ekki Guð óeirðar (1. Kor. 14:33). Guðs andi er þess vegna öldungis í því fó'lki, sem hefir anda friðarins á samkomum sín- um. Hvað tungutali viðvíkur, get eg sagt þér, að ritningin kennir 'skýrum orðum, að það hafi verið virkileg tungumál, mannamál, sem Heilagur andi kendi postulunum að tala, því vér lesum: “En þar voru Gyðingar búsettir i Jerú- salem, guðræknir menn af öllum þjóð- um undir himninum. En er þetta hljóð heyrðist, kom mannfjöldinn saman, og honum brá mjög við, því að þeir heyrðu hver einn þá mœla á sína tungu. Og all- ír urðu forviða og undruðust og sögðu: Eru ekki allir þessir, sem tala, Galíleu- menn? Og hvernig beyrum vér, hver og einn, talað á eigin tungu vorri, er vér erum fœddir meS Vér heyr- um þá tala á vorum tungum um stór- merki GuSs. (Post. 2: 5-11). En til þessa dags hefir ekki eitt einasta orð af því, sem talað er af þeim mönnum, sem þú hlustaðir á, verið skilið eða útlagt; og er það í sjálfu sér nægileg sönnun fyrir því, að það al’ls ekki er frá Guði. Þar sem andi Guðs er viðstaddur, í ríkurn mæli, er kyrð, friður, glögg þekk- ing1 á Guðs orði og skilningur; því andi Guðs minnir menn á það, sem þeir hafa lesið í ritningunni og rannsakað, og þar er innbyrðis elska, sem. aðgreinir þá frá hinum kaldranalega heimi kringum þá. Andi Krists skipi öndvegi hjarta þíns og leiði þig í allan sannleikann, er bæn mín

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.