Stjarnan - 01.03.1924, Blaðsíða 9

Stjarnan - 01.03.1924, Blaðsíða 9
STJARNAN 4i sama viöburð, nefnilega myrkva sólar- innar, ritaöi hann: “Sólin mun snúast í myrkur og tunglið í blóö, áöur en hinn mikli og óg- urlegi dagur Drotti’ns kemur.” Og þar næst bætir hann við: “Sól og tungl eru myrk orðin og stjörnurnar hafa mist birtu sína fjóel 3: 4, 20J. Þessi nákvæma upptalning rættist bókstaflega. Þó aö tungliö á þeim tíma væri komiö fáeina klukkutíma yfir fyll- ingu, þegar þaö vanalega 'skín alla nótt- ina, segir Stones “History of Beverly” fMassachusettsJ, um það: “Nóttin, sem fylgdi þeim degi [19. maí 1780] var svo kolniöamyrk, að í sumum tilfellum var ekki mögulegt aö þvinga hesta til að yfirgefa hesthúsin, þegar menn þurftu aö nota þá.” Um áhrifin, sem þessi nótt hafði á menn og um komu tunglsi'ns, þegar það seinna varö sýnilegt, ritaði Milo Bost- wick: “Faðir minn og móðir, sem voru mjög guörækin, héldu að dómsdagur væri í nánd. Þau sátu uppi þá nótt. Seinni part næturinnar hvarf myrkrið, sögöu þau, og himininn virtist vera eins og hann vanalega er, en tunglið, sem var í fyllingu, leit út eins og blóð.” Stjörnurnar hrapa. Hin næstu fyrirbrigði, sem frelsarinn fyrirsagöi, voru stjörnuhrapið. Sama táknið er einnig fyrirsagt í Opinb. 6: 13: “Og stjörnur himinsins hröpuðu niður á jörðina eins og fíkjutré skekið af stormvindi fellir vetraraldin sín.” Professor Olmsted segir: “[Stjörnujhrapiö í 1833 var þannig, að það náði ekki yfir neitt litilsháttar svæði af yfirboröi jarSarinnar; frámiðju Atlantshafinu í austur til Kyrrahafsins í vestur; frá norðurströnd Suður Ame- ríku til óákveðins svæðis í hinum brezku nýlendum í norður, voru þessi fyrir- brigði sýnileg !og litu hér um bil alls- staðar eins út.” Tákn á jórSinni. Eins og sumir spámenn hafa gjört, talaöi frelsarinn ekki einungis urn tákn á himnum, heldur og um teikn þau, sem mundu koma fram á jörðinni, þegar hann sagði’: “Þá mun og í ýmsum stöð- um vera hallæri, drepsótt og landskjálft- ar.” Hallœri. í staöinn fyrir að fækka og ekki verða eins hræðileg, eru hallærin nú hin grimmustu, sem heimurinn hefir séð. Jafnvel á friðartímum deyja þúsundir á ýmsum stöðum í heiminum. Indland og Kína hafa tapað þúsundum manna á hallærisárum. Drepsóttir. Frá þeim degi, þegar hinn mikli spá- dómur frelsarans var gefinn og þangað til nú, hafa tæringin, lungnabólga, kól- era og influenza tekið líf fjölda manna. Samkvæmt skýrslu Heckers, dóu fimm miljónir manna af drepsóttum í Norð- urálfunni á fjórtándu öldinni, hlutfalls- lega tvö hundruö og fimtíu þúsundir á ári hverju alla öldina. Margar miljónir manna dóu af influenzu í 1918. Landskjálftar. Meðal hinna hræðilegustu fyrirbrigöa í náttúrunni eru landskjálftarnlr. Ein- hver hinn skæðasti þeirra allra var land- skálftinn í Eisabon 1. nóvember 1755. Hann hefir ekkert fordæmi í sögunm. Níutíu þúsundir manna létu líf sín á fá- einum augnablikum og eignatjónið nam svo mörgum miljónum dollara, aö eigi var tölu á komið. En meðan Lisabon landskjálftinn er alkunnur, þá er hann þó ekki nema einn af hinum mörgu, sein sýna oss hve mikill óstööugleiki jaröar- innar er. Bæöi í ítalíu og Californiu hafa kom- íö margir landskjálftar síðan um alda- mótin 1900. Þeir höföu mikið mann- tjón í för með sér ásamt miklu eigna- tjóni. Skjálftarnir í apríl 1906 og í

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.