Fréttablaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 6
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
ÁRA5ÁBYRGÐ
TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI.
STAÐALBÚNAÐUR: 120 HÖ, LOFTKÆLING, BAKKMYNDAVÉL,
BLUETOOTH, SNERTISKJÁR, HITI Í SÆTUM OG SPEGLUM,
16” ÁLFELGUR, AKSTURSTÖLVA O.FL.
FIAT TIPO EASY HATCHBACK
TILBOÐSVERÐ FRÁ 2.390.000 KR.
LISTAVERÐ FRÁ 3.090.000 KR.
FIAT TIPO EASY STATION
TILBOÐSVERÐ FRÁ 2.590.000 KR.
LISTAVERÐ FRÁ 3.290.000 KR.
fiat.is
UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN OG
GLÆSILEGAN FIAT TIPO
MEÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐ
ALÞINGI „Í upphafi voru forsendur
fjárlaga allt of veikar. Það kemur nú
á daginn og þegar gengið fer að falla
og forsendurnar bresta þá er brugð-
ist við og stigið skref aftur á bak. Það
er skorið niður hjá þeim hópum
sem ekki nutu góðærisins og hefði
þurft að verja,“ segir Logi Einarsson,
formaður Samfylkingarinnar, um
fjárlagafrumvarpið og breytingar-
tillögur meirihlutans.
Hann segir hugmyndir stjórnar-
flokkanna óásættanlegar og stríða
gegn siðferðiskennd sinni. Samfylk-
ingin hefur lagt fram breytingartil-
lögur við fjárlagafrumvarpið. „Allar
okkar tillögur eru fjármagnaðar,
ábyrgar og koma þeim sem verst
standa og millitekjufólki best,“ segir
Oddný Harðardóttir þingflokksfor-
maður.
Tillögurnar gera ráð fyrir 24
milljarða auknum útgjöldum og að
tekjurnar aukist um 26 milljarða.
„Aðalatriðið er að við viljum að
tekjuafgangur ríkissjóðs sé rúmur
þannig að hægt sé að ganga á
afganginn þegar að kreppir en að
öryrkjar og þeir sem þurfa á heil-
brigðisþjónustu að halda þurfi ekki
að taka á sig skellinn,“ segir Oddný.
Meðal tillagnanna er aukið fé
til aldraðra og öryrkja, barna- og
vaxtabóta auk húsnæðisstuðnings.
Þá er lagt til að bætt verði í fjárveit-
ingar til samgöngu- og heilbrigðis-
mála auk ýmissa annarra verkefna.
Samfylkingin vill fjármagna
þessar tillögur með því að falla frá
lækkun veiðigjalds, hækka fjár-
magnstekjuskatt og kolefnisgjald,
setja aftur á auðlegðarskatt sem
verði tekju- og eignatengdur, setja
á sykurskatt og bæta eftirlit með
skattundanskotum. – sar
Ábyrgar tillögur sem komi þeim verst stöddu best
Samfylkingarfólk kynnir breytingatillögur sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
REYKJAVÍK Tillaga Flokks fólksins
um þriðjungs lækkun á verði skóla-
máltíða var felld á fundi borgar-
ráðs í gær. Kom fram á fundinum
að áætlaður kostnaður við tillög-
una væri 361 milljón króna á ári.
Í sumar hafði tillaga flokksins um
fríar skólamáltíðir verið felld.
Í bókun Kolbrúnar Baldursdóttur,
áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins,
segir að verið sé að mismuna
börnum í borginni með því að hafa
skólamáltíðir ekki fríar og með því
að geta heldur ekki lækkað verðið.
Minnt er á að fordæmi fyrir lækkun
skólamáltíða séu til staðar í öðrum
sveitarfélögum.
„Við vitum að það hafa ekki allir
foreldrar ráð á að leyfa barni sínu
að vera í mat í skólanum. Með því
að gæta ekki að jafnræði er verið
að brjóta ákvæði í Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Það hlýtur að
vera vilji okkar allra að ekkert barn
sé svangt í skólanum.“ – sar
Segir börnum
mismunað
Of dýrt að lækka verð á skólamál-
tíðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FERðAÞJóNustA Hollenska ferða-
skrifstofan Voigt Travel ætlar að
bjóða flug til Akureyrar frá og með
næsta sumri og hyggst einnig selja
hollenskum ferðamönnum flugferð-
ir þangað næsta vetur. Fréttir um að
uppsetning ILS-búnaðar yrði lokið
næsta sumar á Akureyrarflugvelli
hafði mikil áhrif á ákvörðun ferða-
skrifstofunnar. Framkvæmdastjóri
Voigt Travel segir ferðamenn vilja
sjá meira en bara Gullna hringinn.
„Þessu fögnum við og þetta mun
hafa jákvæð áhrif á allt Norðurland.
Þessi áform endurspegla líka þörf-
ina á uppbyggingu flugvallarins,“
segir Ásthildur Sturludóttir, bæjar-
stjóri á Akureyri.
„Við þurfum að dreifa ferða-
mönnum betur um landið með því
að opna fleiri gáttir inn í landið,
bæði til að nýta betur þá fjárfestingu
sem til er í ferðaþjónustu vítt og
breitt um landið auk þess að vernda
viðkvæma íslenska náttúru.“
Ferðaskrifstofan Super Break
á Bretlandseyjum er nú að hefja
annan veturinn í áætlunarferðum
til Akureyrar en vel hefur gengið
hjá þeim að selja ferðir norður.
Markaðsstofa Norðurlands og
Flugklasinn á Norðurlandi hafa
leitt verkefnið og nú standa yfir við-
ræður við ferðaþjónustufyrirtæki á
Norðurlandi um samstarf við Voigt
Travel og þjónustu við farþega.
Voigt Travel er ferðaskrifstofa í
Hollandi með um þriggja áratuga
reynslu af ferðum á norðurslóðir, þá
helst til Skandinavíu. Nú er stefnan
sett á að stækka svæðið og bjóða
Hollensk ferðaskrifstofa býður
beint flug norður til Akureyrar
„Ferðamenn vilja sjá meira en Gullna hringinn,“ segir framkvæmdastjóri hollensku ferðaskrifstofunnar
Voigt Travel sem sérhæfir sig í ferðum á norðurslóðir. Ætla að fljúga beint til Akureyrar frá og með næsta
sumri. Bæjarstjórinn á Akureyri segir þetta endurspegla tækifærin sem felast í því að stækka flugvöllinn.
Áform Voigt Travel sýna að þörf er á uppbyggingu við flugvöllinn á Akureyri að mati bæjarstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/PjETuR
upp á Akureyri sem kost bæði að
sumri og vetri.
„Þó að þetta sé minna þekktur
áfangastaður á hinu vinsæla Íslandi,
þá þýðir það í raun að hann er meira
aðlaðandi í augum ferðamannsins
sem vill upplifa meira en Gullna
hringinn. Slíkt passar mjög vel
við stefnu Voigt Travel, því mark-
mið okkar er að viðskiptavinir
okkar kynnist betur hinum óþekktu
svæðum í Norður-Evrópu með flugi
beint frá Hollandi,“ segir Cees van
den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt
Travel.
Ferðaþjónustuaðilar eru mjög
ánægðir með þessa viðbót sem
mun styrkja heilsársferðamennsku
á Norðurlandi og dreifa ferðamönn-
um betur um landið.
„Hér er afrakstur vinnu síðustu
ára að koma í ljós. Það er ljóst
að beint millilandaflug á vegum
ferðaskrifstofunnar Super Break
frá Bretlandi til Akureyrar hefur
haft jákvæð áhrif á þróun milli-
landaflugs um Akureyrarflugvöll og
vakið athygli fleiri ferðaskrifstofa og
flugfélaga á áfangastaðnum,“ segir
Hjalti Páll Þórarinsson, verkefna-
stjóri Flugklasans Air 66N.
sveinn@frettabladid.is
Þó að þetta sé
minna þekktur
áfangastaður á hinu vinsæla
Íslandi, þá þýðir það í raun
að hann er meira aðlaðandi í
augum ferða-
mannsins.
Cees van den
Bosch, fram-
kvæmdastjóri Voigt
Travel
1 6 . N ó V E m b E R 2 0 1 8 F Ö s t u D A G u R4 F R é t t I R ∙ F R é t t A b L A ð I ð
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
9
-2
A
E
8
2
1
6
9
-2
9
A
C
2
1
6
9
-2
8
7
0
2
1
6
9
-2
7
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K