Fréttablaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 22
Brynjar Atli er augljóslega sonur móður sinnar eins og sjá má á klæða- burðinum.Dagný var sett 11. júlí. Drengurinn kom mánuði fyrr, eða 12. júní. Hann er því nýorðinn fimm mánaða. Hann var rúmar þrettán merkur og alveg tilbúinn og þurfti því ekki að dvelja á vökudeild. „Hann fæddist um nótt og við vorum eina nótt í bænum,“ segir Dagný en hún og unnusti hennar, Ómar Páll Sigur- bjartsson, eru búsett á Selfossi. „Það var svo mælt með því að við myndum vera eina nótt á Selfossi og jafnvel tvær sem við þáðum.“ Erfið meðganga en draumafæðing Aðspurð segir Dagný fæðinguna hafa gengið vel. Drengurinn, sem heitir Brynjar Atli í höfuðið á föður hennar og bróður, komst strax á brjóst. Hann fékk smá gulu á fimmta degi en jafnaði sig fljótt. „Hann er síðan búinn að vera vær og góður og sefur og drekkur vel. Fólki finnst það ótrúlegt í ljósi þess að við foreldrarnir erum bæði mjög virk,“ segir Dagný og hlær. Meðgangan var hins vegar erfið og glímdi Dagný við uppköst frá upphafi til enda. „Þau byrjuðu þegar ég var komin sjö vikur á leið. Mér var fyrst sagt að þau myndu ganga yfir eftir tólf vikur, svo sextán og að lokum tuttugu. Það gekk hins vegar ekki eftir og ég kastaði upp fram á síðasta dag, þó það hafi aðeins dregið úr því síðustu vikurnar. Dagný fékk enga sérstaka skýringu á þessu en fannst hreyfing gera sér gott. Hún æfði með meistaraflokki karla á Selfossi þar til hún var komin 13 vikur á leið og kvennaliðinu fram á 29. viku, ásamt því að æfa sjálf. „Ef ég náði að borða eftir uppköstin fannst mér gott að drífa mig af stað. Ef ég hefði verið heima hugsa ég að ég hefði bara haldið áfram að kasta upp,“ lýsir Dagný en segir að svo hafi komið dagar þar sem hún lá alveg fyrir. Hún segist engu að síður hafa þyngst eðlilega og að hún og drengurinn hafi nærst þrátt fyrir allt. Meðgangan tók eðlilega sinn toll og meiðsli sem hrjáðu hana í fyrra gerðu vart við sig á ný. „Ég meiddist í lið sem heitir SI-joint, eða sacroiliac ligament í fyrra en þau meiðsli koma oftast eftir högg, árekstur eða meðgöngu. Í mínu tilfelli komu þau eftir högg í bolt- anum. Þessi meiðsli hrjáðu mig í fimm mánuði í fyrra en þegar ég hafði verið góð í tvo mánuði varð ég óvænt ólétt. Það var ekki planið en ég er vissulega himinlifandi með það í dag,“ segir Dagný. Hún fann til í liðnum alla meðgönguna en þó ekki þannig að hún gæti ekki æft. Hún segir heldur ekki mælt með því að hvíla alveg því nauð- synlegt sé að halda vöðvunum í kringum liðinn sterkum. Eftir fæðingu fann hún að verkurinn var enn til staðar og fór í svokallaða PRP-sprautu í Corpus Medica fyrir átta vikum en þá er tekið blóð úr henni sjálfri og því sprautað í liðinn. „Ég fór í sömu sprautu í Portland þar sem ég lék með Port- land Thorns í fyrra til að ná EM, en ef ég hefði ekki fengið hana hefði ég örugglega ekki getað verið með. Sprautan á að toppa eftir tólf vikur og ég finn að ég er ekki alveg orðin góð. Kannski tekur þetta líka lengri tíma af því að ég er nýbúin að eiga barn,“ segir Dagný. Hún er auk þess í sjúkraþjálfun og fer til styrktarþjálfara þrisvar í viku sem vinnur að því að „trappa“ hana upp. Hún er þó ekki farin að fara á fótboltaæfingar en æfir sjálf eins og hún getur. Langar aftur út „Ég hef stundum óskað þess að ég hefði frekar fótbrotnað því þá vissi fólk hvernig það ætti að meðhöndla mig og hversu langan tíma það tæki að verða góð. Þetta er aðeins óljósara og enginn sem getur sagt nákvæmlega til um hvenær ég verði búin að ná mér. Mig langar hins vegar að fara út í atvinnumennsku eftir áramót og stefni að því.“ Aðspurð segir Dagný ýmsar þreifingar í gangi og að þessu sinni ætli hún að taka unn- ustann og auðvitað drenginn með, en hún og Ómar Páll voru í fjarbúð í sex ár á meðan hún var við nám og störf í Bandaríkjunum. „Það er komið nóg af því. Ef við færum út Vera Einarsdóttir vera@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ eftir áramót myndi Ómar byrja á að fara í fæðingarorlof. Hann er rafvirki og gæti svo vonandi fengið vinnu við það í kjölfarið,“ segir Dagný. Dagný segist almennt mikill planari en að óvænt meðganga og meiðsli hafi gert það að verkum að hún sé farin að sætta sig við að láta hlutina svolítið ráðast. „Ég vona að þetta batni allt með tímanum því ég vil ekki halda áfram í þessum sprautum og finnst leiðinlegt að þurfa að gera svona inngrip.“ Ýmis framtíðaráform Hún er líka með ýmis fram- tíðaráform til lengri tíma litið en meðfram atvinnumennskunni í Bandaríkjunum lagði hún stund á NTCP-einkaþjálfaranám í fjarnámi frá Keili og útskrifaðist í byrjun árs. Hún bætti svo við ÍAK-styrktarþjálfun sem hún lauk í vor, rétt áður en Brynjar Atli fæddist. „Hún heillar mig sérstak- lega en í Bandaríkjunum er alltaf styrktarþjálfari á öllum æfingum og leikjum. Ég myndi vilja inn- leiða það á Íslandi.“ Dagný er með BS-próf í Sports Management frá Florida State. „Mig langar svo að bæta við mig master í íþrótta- eða kennslufræðum enda hef ég mjög gaman af því að vinna með börnum.“ Giftir sig í sumar En hefur móðurhlutverkið breytt þér mikið? „Já, vissulega. Mér fannst það nánast pirrandi hvað ég breyttist mikið á meðgöngunni og svo þegar sængurkvennagráturinn bættist við hélt ég að ég væri bara alveg búin að týna sjálfri mér en það jafnaði sig nú sem betur fer,“ segir hún og hlær. „Almennt finnst mér ég orðin rólegri og er orðið meira sama um ýmislegt. Öll mín meiðsli í gegnum tíðina, nema reyndar þessi sem ég er að glíma við núna, hafa til að mynda komið eftir of mikið álag. Ég var þannig að ef ég missti af æfingu æfði ég tvöfalt daginn eftir. Núna er mér meira sama, hlusta á styrktarþjálfarann minn og hvíli frekar en að bæta mér upp æfingar,“ segir Dagný sem notar fæðingarorlofið líka til að skipu- leggja brúðkaup sitt og Ómars Páls sem verður haldið í Þykkvabænum, heimabyggð Ómars, 20. júlí næst- komandi. „Eyrún Birna Jónsdóttir er að sauma á mig kjól og ég á von á fyrsta uppkasti hvað á hverju.“ Dagný segist njóta móðurhlut- verksins vel. „Ég hef upplifað nánast allt sem knattspyrnukona en ef mér fyndist ég ekki eiga enn meira inni í atvinnumennskunni myndi ég örugglega koma með annað fljótlega. Ég hef aldrei spilað betri fótbolta en rétt um það leyti sem ég varð ólétt og held ég geti orðið enn betri.“ Brynjar Atli hefur frá upphafi verið vær og góður. VINSÆLU KULDASKÓRNIR MEÐ MANNBRODDUNUM ERU KOMNIR FYRIR DÖMUR OG HERRA 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N Óv E m B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 1 6 -1 1 -2 0 1 8 0 5 :0 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 9 -4 8 8 8 2 1 6 9 -4 7 4 C 2 1 6 9 -4 6 1 0 2 1 6 9 -4 4 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.