Fréttablaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 31
Fjaðureðla og fiseðla
Hér má sjá dæmi um þau risaeðlu-
nöfn sem þýða þurfti sérstaklega í
þáttaröðinni Ég er risaeðla.
Beipiaosaurus - Fjaðureðla
Microseratus - Goggeðla
Afrovenator – Afríkurumeðla
Jobaria - Graseðla
Bavarisaurus – Bæjaralandseðla
Elaphrosaurus – Fiseðla
Þóra Björg Clausen, rekstrarstjóri nýmiðla Sýnar, er ánægð með samstarfið við Hopster þar sem sameiginlegur metnaður er fyrir því að stuðla að málþroska barna tveggja til sex ára. MYND/ SigtrYggur Ari
Hopster efnisveitan er bæði app og sjónvarpsþættir, allt á íslensku á SÝN.
Málþroski barna og mál-vitund barna og unglinga er þeim sem bera hag
íslenskunnar fyrir brjósti oft
áhyggjuefni, einkum þó þegar í
hlut eiga erlendar efnisveitur sem
sjá börnum fyrir afþreyingarefni.
Hjá Sýn sem áður var Vodafone
hafa þessi málefni verið tekin
föstum tökum og í samstarfi við
bresku efnisveituna Hopster
hefur verið ráðist í metnaðarfulla
nýyrðasmíði á helsta áhugasviði
margra ungra barna, risaeðlum.
Þetta verkefni hlaut tilnefningu til
hvatningarverðlauna viðskipta-
lífsins um eftirtektaverða notkun á
íslenskri tungu. Þóra Björg Clausen
er rekstrarstjóri nýmiðla Sýnar.
„Hopster er efnisveita fyrir börn
sem hefur verið hægt að nálgast
hjá Vodafone og Sýn í svona þrjú
ár,“ segir Þóra Björg um tildrög
verkefnisins. „ Þetta er bresk
efnisveita og við höfum í samstarfi
við þau þýtt allt efni sem kemur
inn á efnisveituna, þar með talið
appið sem fylgir með áskriftinni.
Þetta hefur verið stórt verkefni
sem við höfum tekist á hendur af
festu og áhuga enda finnst okkur
afar mikilvægt, á tímum alnetsins,
að börn geti nálgast efni á góðu
íslensku máli.“ Ein af þáttaröð-
unum sem íslenskum börnum
býðst að horfa á í gegnum Hopster
efnisveituna heitir Ég er risaeðla
þar sem risaeðlur og eiginleikar
þeirra eru kynntir. Hver þáttur
heitir eftir þeirri risaeðlu sem verið
er að fjalla um hverju sinni. „Þegar
verið var að þýða þættina kom í
ljós að það eru ekki til ísensk heiti
yfir allar risaeðlurnar og þá þurfti
þýðandinn okkar að vera skapandi
og finna nöfn,“ segir Þóra. Leitað
var samstarfs víða svo allt yrði sem
best gert úr garði. „Við leituðum til
risaeðlusérfræðings til að fá sem
réttastar upplýsingar um eðli og
útlit þeirra risaeðla sem um var
rætt og einnig var rætt við stofnun
Árna Magnússonar um hvort til
væru íslensk nöfn á þessar tilteknu
risaeðlur. Árnastofnun kom með
tillögur og það var ánægjuleg
reynsla að nýta þessa stofnun
okkar til að finna nöfn sem
kannski eru ekki mikið notuð eða
búa til nýyrði í íslensku máli.“
Þóra Björg segir mikla vinnu
hafa farið í að íslenska Hopster.
„Þetta er bresk efnisveita eins
og áður sagði og þar er allt efni
yfirfarið af teymi sérfræðinga, upp-
eldisfræðingum og sálfræðingum
í Bretlandi og vottað „kidsafe“ eða
barnvænt, áður en það fer í loftið,“
segir hún en efnið á veitunni er
helst ætlað börnum á aldrinum
tveggja til sex ára. „Þegar barnið
þitt er að horfa á Hopster efni
geturðu þar af leiðandi verið viss
um að efnið stuðlar að góðum
Íslensk risaeðlunöfn
fyrir íslensk börn
Sjónvarp Sýnar og efnisveitan Hopster tóku höndum
saman til að gera barnaefni veitunnar barnvænna sem
fólst meðal annars í því að íslenska nokkur risaeðlunöfn.
þroska. Okkur fannst mikilvægt
að stuðla að þroska á sem flestum
sviðum og vildum taka það með í
íslensku útgáfuna af efninu að það
stuðlaði að góðum málþroska.“
Hopster sýndi strax mikinn
skilning og áhuga enda í stefnu
fyrirtækisins að stuðla að þroska
barna á sem flestum sviðum.
„Metnaður Hopster til að skila
góðu verki hvað varðar íslenskun á
efninu var það mikill að þeir réðu
til sín íslenskan starfsmann til
að sinna okkur svo það hefur allt
verið lagt í að gera þetta eins vel
og hægt er,“ segir Þóra og bætir við
að efnisveitan breska hafi notað
íslensku leiðina sem fyrirmynd
í viðræðum við viðskiptavini á
öðrum málsvæðum. „Hopster er
mjög stoltur samstarfsaðili okkar
og hefur fundist mjög gott að vinna
með okkur,“ segir Þóra. „Þegar
fyrirtækið kynnir sig fyrir aðilum
sem eru að hugleiða viðskipti nota
þeir íslenska risaeðluverkefnið
sem dæmi um hvernig samstarf
gæti gengið fyrir sig.“
Hopster efnisveitan er tilnefnd
til BAFTA children’s award og sú
verðlaunaathöfn fer fram í lok nóv-
ember. „Þar er Hopster að keppa
við alla stærstu aðilana á þessum
markaði svo þarna er greinilega
verið að gera mjög góða hluti,“
segir Þóra. „Við hjá Sýn erum síðan
tilnefnd til hvatningarverðlauna
viðskiptalífsins um eftirtektar-
verða notkun á íslenskri tungu. Við
erum auðvitað mjög ánægð með
það og stolt af því að þessi viðleitni
okkar til að styðja við málþroska
barna skuli vekja athygli. Það
hvetur okkur til að halda áfram á
sömu braut.“
Viðskiptaráð Íslands, Stofnun
Árna Magnússonar og Festa – mið-
stöð um samfélagsábyrgð kölluðu
eftir tilnefningum til hvatningar-
verðlauna viðskiptalífsins um
eftirtektarverða notkun á íslenskri
tungu. Eliza Reid, forsetafrú
Íslands, afhendir verðlaunin í dag.
KYNNiNgArBLAÐ 7 F Ö S t u DAg u r 1 6 . n óv E M B E r 2 0 1 8 DAgur ÍSLeNSKrAr tuNgu
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
9
-2
F
D
8
2
1
6
9
-2
E
9
C
2
1
6
9
-2
D
6
0
2
1
6
9
-2
C
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K