Fréttablaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 31
Fjaðureðla og fiseðla Hér má sjá dæmi um þau risaeðlu- nöfn sem þýða þurfti sérstaklega í þáttaröðinni Ég er risaeðla. Beipiaosaurus - Fjaðureðla Microseratus - Goggeðla Afrovenator – Afríkurumeðla Jobaria - Graseðla Bavarisaurus – Bæjaralandseðla Elaphrosaurus – Fiseðla Þóra Björg Clausen, rekstrarstjóri nýmiðla Sýnar, er ánægð með samstarfið við Hopster þar sem sameiginlegur metnaður er fyrir því að stuðla að málþroska barna tveggja til sex ára. MYND/ SigtrYggur Ari Hopster efnisveitan er bæði app og sjónvarpsþættir, allt á íslensku á SÝN. Málþroski barna og mál-vitund barna og unglinga er þeim sem bera hag íslenskunnar fyrir brjósti oft áhyggjuefni, einkum þó þegar í hlut eiga erlendar efnisveitur sem sjá börnum fyrir afþreyingarefni. Hjá Sýn sem áður var Vodafone hafa þessi málefni verið tekin föstum tökum og í samstarfi við bresku efnisveituna Hopster hefur verið ráðist í metnaðarfulla nýyrðasmíði á helsta áhugasviði margra ungra barna, risaeðlum. Þetta verkefni hlaut tilnefningu til hvatningarverðlauna viðskipta- lífsins um eftirtektaverða notkun á íslenskri tungu. Þóra Björg Clausen er rekstrarstjóri nýmiðla Sýnar. „Hopster er efnisveita fyrir börn sem hefur verið hægt að nálgast hjá Vodafone og Sýn í svona þrjú ár,“ segir Þóra Björg um tildrög verkefnisins. „ Þetta er bresk efnisveita og við höfum í samstarfi við þau þýtt allt efni sem kemur inn á efnisveituna, þar með talið appið sem fylgir með áskriftinni. Þetta hefur verið stórt verkefni sem við höfum tekist á hendur af festu og áhuga enda finnst okkur afar mikilvægt, á tímum alnetsins, að börn geti nálgast efni á góðu íslensku máli.“ Ein af þáttaröð- unum sem íslenskum börnum býðst að horfa á í gegnum Hopster efnisveituna heitir Ég er risaeðla þar sem risaeðlur og eiginleikar þeirra eru kynntir. Hver þáttur heitir eftir þeirri risaeðlu sem verið er að fjalla um hverju sinni. „Þegar verið var að þýða þættina kom í ljós að það eru ekki til ísensk heiti yfir allar risaeðlurnar og þá þurfti þýðandinn okkar að vera skapandi og finna nöfn,“ segir Þóra. Leitað var samstarfs víða svo allt yrði sem best gert úr garði. „Við leituðum til risaeðlusérfræðings til að fá sem réttastar upplýsingar um eðli og útlit þeirra risaeðla sem um var rætt og einnig var rætt við stofnun Árna Magnússonar um hvort til væru íslensk nöfn á þessar tilteknu risaeðlur. Árnastofnun kom með tillögur og það var ánægjuleg reynsla að nýta þessa stofnun okkar til að finna nöfn sem kannski eru ekki mikið notuð eða búa til nýyrði í íslensku máli.“ Þóra Björg segir mikla vinnu hafa farið í að íslenska Hopster. „Þetta er bresk efnisveita eins og áður sagði og þar er allt efni yfirfarið af teymi sérfræðinga, upp- eldisfræðingum og sálfræðingum í Bretlandi og vottað „kidsafe“ eða barnvænt, áður en það fer í loftið,“ segir hún en efnið á veitunni er helst ætlað börnum á aldrinum tveggja til sex ára. „Þegar barnið þitt er að horfa á Hopster efni geturðu þar af leiðandi verið viss um að efnið stuðlar að góðum Íslensk risaeðlunöfn fyrir íslensk börn Sjónvarp Sýnar og efnisveitan Hopster tóku höndum saman til að gera barnaefni veitunnar barnvænna sem fólst meðal annars í því að íslenska nokkur risaeðlunöfn. þroska. Okkur fannst mikilvægt að stuðla að þroska á sem flestum sviðum og vildum taka það með í íslensku útgáfuna af efninu að það stuðlaði að góðum málþroska.“ Hopster sýndi strax mikinn skilning og áhuga enda í stefnu fyrirtækisins að stuðla að þroska barna á sem flestum sviðum. „Metnaður Hopster til að skila góðu verki hvað varðar íslenskun á efninu var það mikill að þeir réðu til sín íslenskan starfsmann til að sinna okkur svo það hefur allt verið lagt í að gera þetta eins vel og hægt er,“ segir Þóra og bætir við að efnisveitan breska hafi notað íslensku leiðina sem fyrirmynd í viðræðum við viðskiptavini á öðrum málsvæðum. „Hopster er mjög stoltur samstarfsaðili okkar og hefur fundist mjög gott að vinna með okkur,“ segir Þóra. „Þegar fyrirtækið kynnir sig fyrir aðilum sem eru að hugleiða viðskipti nota þeir íslenska risaeðluverkefnið sem dæmi um hvernig samstarf gæti gengið fyrir sig.“ Hopster efnisveitan er tilnefnd til BAFTA children’s award og sú verðlaunaathöfn fer fram í lok nóv- ember. „Þar er Hopster að keppa við alla stærstu aðilana á þessum markaði svo þarna er greinilega verið að gera mjög góða hluti,“ segir Þóra. „Við hjá Sýn erum síðan tilnefnd til hvatningarverðlauna viðskiptalífsins um eftirtektar- verða notkun á íslenskri tungu. Við erum auðvitað mjög ánægð með það og stolt af því að þessi viðleitni okkar til að styðja við málþroska barna skuli vekja athygli. Það hvetur okkur til að halda áfram á sömu braut.“ Viðskiptaráð Íslands, Stofnun Árna Magnússonar og Festa – mið- stöð um samfélagsábyrgð kölluðu eftir tilnefningum til hvatningar- verðlauna viðskiptalífsins um eftirtektarverða notkun á íslenskri tungu. Eliza Reid, forsetafrú Íslands, afhendir verðlaunin í dag. KYNNiNgArBLAÐ 7 F Ö S t u DAg u r 1 6 . n óv E M B E r 2 0 1 8 DAgur ÍSLeNSKrAr tuNgu 1 6 -1 1 -2 0 1 8 0 5 :0 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 9 -2 F D 8 2 1 6 9 -2 E 9 C 2 1 6 9 -2 D 6 0 2 1 6 9 -2 C 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.