Fréttablaðið - 16.11.2018, Page 18

Fréttablaðið - 16.11.2018, Page 18
Í grein sem kom út í hinu virta breska læknatímariti Lancet í maí 2017 var birtur saman- burður á aðgengi og gæðum heil- brigðisþjónustu meðal 195 landa og svæða í heiminum árin 1990 til 2015. Hafnaði Ísland þar í öðru sæti rétt á eftir smáríkinu Andorra með næstbestu vísitölu aðgengis og gæða. Heilbrigðiskerfi Íslendinga stendur sig vel í samanburði þjóða heims við að fyrirbyggja dauðsföll vegna sjúk- dóma með aðgerðum eins og heilsu- eflingu, skimunum, meðhöndlun áhættuþátta sjúkdóma og lífsstíls- breytingum. Við stöndum okkur líka vel í að afstýra ótímabærum dauðs- föllum vegna sjúkdóma. Þessu ber sannarlega að halda á lofti og fagna. Við Íslendingar lifum nú að meðal tali lengur en nokkru sinni áður í sögu þjóðarinnar og margir við mjög góða heilsu. Breytt aldurs- samsetning þjóðarinnar kallar þó á nýjar áskoranir fyrir heilbrigðiskerf- ið sem ekki hefur verið hugað nægi- lega að. Það er skortur á heildstæð- ari heilbrigðis- og félagsþjónustu fyrir aldraða á Íslandi. Þessi skortur birtist meðal annars í stórauknu álagi á Landspítala. Við verðum að bretta upp ermar og hugsa eftir nýjum leiðum, öðruvísi mun álagið á sjúkrahúsum landsins bara aukast. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð- herra hefur lýst yfir vilja til að gera betur í þessum efnum og nú stendur yfir vinna í velferðarráðuneytinu við að fullmóta langtíma heilbrigðis- stefnu á Íslandi. Það er kærkomið fyrsta skref. Við bindum vonir við að lausnir í heilbrigðisþjónustu við aldraða fái þar sérstakan forgang. Langur legutími á Landspítala Forstjóri Landspítala hefur bent á að vandi tengdur útskriftum aldraðra einstaklinga sé ein helsta áskorun Landspítalans. Við viljum leggja áherslu á að þessir einstaklingar eru ekki fyrir á sjúkrahúsinu. Þetta eru einstaklingar sem nú eru komnir á þann stað í sínu lífi að þurfa að þiggja meiri umönnun en veitt er í heima- húsi á Íslandi í dag. Ráðgjafarfyrirtækið McKinsey & Company vann skýrslu fyrir vel- ferðarráðuneytið um fullnýtingu tækifæra Landspítalans og var sú skýrsla birt árið 2016. Þar var meðal annars bent á að meðallegutími á sjúkrahúsinu væri of langur. Við sem vinnum mikið með öldruðum ein- staklingum vitum vel að það getur tekið langan tíma fyrir okkar skjól- stæðinga að ná sér eftir bráð veikindi og margir þurfa aukinn stuðning og endurhæfingu til að ná upp fyrri færni. Þegar bráðameðferð á sjúkra- húsi er lokið er gjarnan óskað eftir frekari meðferð og endurhæfingu á endurhæfingardeildum fyrir aldraða en þau rými eru of fá og anna ekki eftirspurn. Einstaklingur sem lokið hefur bráðameðferð getur þurft að bíða í nokkrar vikur á bráðalegudeild eftir að komast í slíkt úrræði. Sérhæfð þverfagleg heimateymi Við vitum að aukin þjónusta kostar fé en í dag er verið að nota mikið fé með því að þjónusta einstaklinga sem lokið hafa bráðameðferð á dýrasta þjónustustiginu, bráða- legudeildum, sem þar að auki eru ekki sniðnar að þörfum þessara ein- staklinga. Við verðum að hugsa eftir nýjum leiðum til að veita öldruðum heildstæðari og meira persónumið- aða þjónustu. Til eru fyrirmyndir erlendis að þverfaglegum heimateymum fyrir fjölveika og færniskerta aldraða ein- staklinga. Slík heimateymi hafa verið rannsökuð meðal annars í Banda- ríkjunum og hafa sýnt sig að veita persónumiðaða og heildræna þjón- ustu og spara útgjöld. Hér á landi búa einstaklingar sem lifa við mikla sjúk- dómsbyrði, eru færni skertir og/eða félagslega einangraðir. Þessir ein- staklingar eru oft að fá mjög brota- kennda heilbrigðisþjónustu. Vegna færniskerðingar eiga þeir orðið erf- itt með að leita til læknis og missa þannig gjarnan tengslin við sinn heimilislækni. Komi eitthvað upp á heilsufarslega er þeirra eina úrræði oft á tíðum að leita á bráðamóttöku. Hefði slíkur einstaklingur mögu- leika á að innskrifast í þverfaglegt heimateymi, sem meðal annarra fagstétta hefði lækni, væri mögulega hægt að koma í veg fyrir heilsubrest eða með vitjun hægt að greina vand- ann og hefja meðferð heima við. Slíkt teymi gæti veitt aukna þjónustu meðan á veikindum stæði og endur- hæfingu eftir veikindin. Reynist nauðsynlegt að leggja viðkomandi inn á sjúkrahús gæti einstaklingur- inn útskrifast fyrr heim aftur en ella, með heimastuðningi og möguleika á endurhæfingu heima við. Með bættum stuðningi heima má oft á tíðum seinka og jafnvel koma í veg fyrir innlögn á hjúkrunarheimili en umönnun í hjúkrunarrými er kostnaðarsamt úrræði þannig að hver mánuður sem einstaklingurinn dvelur heima sparar samfélaginu háar upphæðir. Með skynsamlegri heilbrigðis- stefnu og innleiðingu verkefna sem miða að núverandi og komandi áskorunum í þjónustu við aldraða einstaklinga teljum við að hægt verði að byggja upp á okkar litla Íslandi framúrskarandi heilbrigðiskerfi. Við viljum í lokin minna á það að stór hluti af okkur sem yngri erum í dag mun þurfa að reiða sig á þá öldrunarþjónustu sem samfélagið hefur byggt upp. Kröfurnar um góða þjónustu munu síst minnka. Öldrunarþjónustan á Íslandi – brettum upp ermar! Þórhildur Kristinsdóttir Baldur Helgi Ingvarsson Guðlaug Þórsdóttir öldrunarlæknar á Landspítala sem skipa stjórn Félags íslenskra öldrunarlækna  Til eru fyrirmyndir erlendis að þverfaglegum heimateym­ um fyrir fjölveika og færni­ skerta aldraða einstaklinga. Slík heimateymi hafa verið rannsökuð meðal annars í Bandaríkjunum og hafa sýnt sig að veita persónumiðaða og heildræna þjónustu og spara útgjöld. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 · Hekla.is mitsubishi að yðar þörfum komið í bíltúr Þér finnið alltaf einn Mitsubishi að yðar þörfum. Opið á morgun 12-16 Outlander Instyle 7 manna. FRÁ 5.990.000 KR L200 33´ breyttur TILBOÐSVERÐ FRÁ 5.240.000 KR Eclipse Cross Instyle FRÁ 5.290.000 KR Outlander PHEV S-Edition FRÁ 6.090.000 KR L200 Double cab FRÁ 4.990.000 KR Outlander Intense 7 manna FRÁ 5.490.000 KR L200 Double cab m/pallhúsi TILBOÐSVERÐ FRÁ 5.465.000 KR Á 85 árum hefur HEKLA verslað með raftæki, vinnuvélar, sjampó, rakvörur, þurrkaðar apríkósur og bíla, eða löngu fyrir þann tíma er eðlilegt var að nefna „gjaldeyris- og innflutningsleyfi“ í bílaauglýsingum og orðið „jeppi“ var nýyrði í gæsalöppum. Vörumerki eins og Hudson, Kenwood, Caterpillar, Remington, Servis, Rambler, International, Land Rover, Bendix og John Deere voru nánast hilluvara hjá HEKLU þegar vel áraði á landinu bláa en smám saman færðist fókusinn á bíla einvörðungu. Önnur vara s.s. þvottavélar, ísskápar, hrærivélar, dísilvélar fyrir báta og múgavélar hurfu úr vöruúrvali HEKLU og þá þótti við hæfi að birta tilkynningar sem þessa í dagblöðum: Það tilkynnist hér með að frá og með 1. apríl hættum við sölu á Gillette rakvélablöðum, rakakremi og rakvélum.1956 Öryggi, þægindi, gæði1980 sagði í gamalli Mitsubishi auglýsingu. Þau orð eru í fullu gildi enn í dag og nýtur Mitshubishi vinsælda sem aldrei fyrr. Mitsubishi var fyrsti bílaframleiðandinn til að fjöldaframleiða rafbíla og nýjasta vistvæna útspilið, Outlander PHEV, hefur fengið ótrúlegar viðtökur. Hann er fyrsti fullvaxni og fjórhjóladrifni tengiltvinnbíllinn í heiminum. Íslendingar hafa tekið Outlander PHEV fagnandi og hann er lang söluhæsti bíllinn á Íslandi í ár. L200 Club cab FRÁ 4.990.000 KR Outlander PHEV Invite FRÁ 4.690.000 KR Outlander PHEV Intense FRÁ 5.290.000 KR Eclipse Cross Invite FRÁ 3.990.000 KR Outlander PHEV Instyle FRÁ 5.690.000 KR L200 Club cab með pallhúsi FRÁ 5.465.000 KR Eclipse Cross Intense FRÁ 4.890.000 KR Lengri útgáfa af greininni er á frettabladid.is 1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r16 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 6 -1 1 -2 0 1 8 0 5 :0 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 9 -2 1 0 8 2 1 6 9 -1 F C C 2 1 6 9 -1 E 9 0 2 1 6 9 -1 D 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.