Fréttablaðið - 16.11.2018, Síða 20
Breiðablik - Þór Þ. 107-110
Stigahæstir: Breiðablik: Christian Covile 33,
Snorri Vignisson 19, Hilmar Pétursson 16,
Snorri Hrafnkelsson 12. Þór Þorlákshöfn:
Nicolas Tomsick 39, Kinu Rochford 30, Jaka
Brodnik 15, Halldór G. Hermannsson 13..
Skallagr. - Keflavík 95-97
Stigahæstir: Skallagrímur: Aundre Jackson
31, Matej Buovac 28, Björgvin Hafþór Rík-
harðsson 15. Keflavík: Michael Craion 26,
Gunnar Ólafsson 20, Hörður Axel Vilhjálms-
son 14, Magnús Már Traustason 12.
KR - Haukar 97-88
Stigahæstir: KR: Björn Kristjánsson 21,
Orri Hilmarsson 19, Julian Boyd 18, Pavel
Ermolinski 12, Vilhjálmur Kári Jensson 11.
Haukar: Hjálmar Stefánsson 22, Marques
Oliver 19, Hilmar Smári Hennningsson 18.
Efri
Keflavík 12
Tindastóll 10
Njarðvík 10
KR 10
Stjarnan 8
ÍR 8
Neðri
Haukar 6
Skallagrímur 4
Þór 4
Grindavík 4
Breiðablik 2
Valur 2
Nýjast
Dominos-deild karla
Valur - Fram 22-27
Markahæstar: Valur: Lovísa Thompson
6, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Sandra Er-
lingsdóttir 3, Íris Ásta Pétursdóttir 3. Fram:
Ragnheiður Júlíusdóttir 8, Steinunn Björnd-
óttir 8, Þórey Rósa Stefánsdóttir 5.
Olís-deild kvenna
Þjóðadeildin
A-deild
Riðill 2
Belgía - Ísland 2-0
1-0 Michy Batshuayi 65., 2-0 Michy Bats-
huayi 81.
Staðan: Belgía 9, Sviss 6, Ísland 0.
Riðill 4
Króatía - Spánn 3-2
1-0 Andrej Kramaric 54., 1-1 Daniel Ceballos
56., 2-1 Tin Jedvaj., 2-2 Sergio Ramos 78., 3-2
Tin Jedvaj 90.
Staðan: Spánn 6, England 4, Króatía 4.
B-deild
Riðill 3
Austurríki - Bosnía 0-0
Staðan: Bosnía 10, Austurríki 4, N-Írland 0.
C-deild
Riðill 2
Grikkland - Finnland 1-0
Ungverjaland - Eistland 2-0
Staðan: Finnland 12, Grikkland 9, Ungverja-
land 7, Eistland 1.
D-deild
Riðill 1
Kasakstan - Lettland 1-1
Andorra - Georgía 1-x
Staðan: Georgía 13, Kasakstan 6, Lettland
3, Andorra 3.
Riðill 2
Lúxemborg - Hv.-Rússl. 0-2
San Marínó - Moldóva 0-1
Staðan: Hvíta-Rússland 11, Lúxemborg 9,
Moldóva 8, San Marinó 0.
BELGÍA 2-0 ÍSLAND
Frammistaða Íslands (5-3-2)
Hannes Þór Hallórsson 5
Hörður Björgvin Magnússon 4
Jón Guðni Fjóluson 6
Kári Árnason 7
Sverrir Ingi Ingason 5
Ari Freyr Skúlason 5
Aron Einar Gunnarsson 7
Guðlaugur Victor Pálsson 6
Albert Guðmundsson 8
(87. Jón Dagur Þorsteinsson -)
Arnór Sigurðsson 5
(65. Kolbeinn Sigþórsson 4)
Alfreð Finnbogason 7
Maður leiksins:
Albert Guð-
mundsson
Albert Guð-
mundsson fékk
tækifærið í fyrsta
skipti í byrj-
unarliði íslenska
liðsins á stóra
sviðinu. Hann greip gæsina svo
sannarlega og spilað fantavel. Hann
var duglegur varnarlega, stóð sig vel
við að halda boltanum og komst í
besta færi íslenska liðsins.
0-1 Michy Batshuayi 65., 0-2 Michy Batshuayi 81.
Skot (á mark): 13 (6) – 4 (1). Horn: 8-1. Rangstöður: 0-2.
Körfubolti Landslagið í Domino's-
deild kvenna í körfubolta breyttist
í gær þegar Helena Sverrisdóttir
samdi við Val, silfurliðið frá síðasta
tímabili. Helena fékk sig lausa frá
ungverska liðinu Ceglédi fyrr í vik-
unni, er flutt heim og komin í Val
þar sem hún hittir fyrir systur sína,
Guðbjörgu.
„Ég var byrjuð að huga að því
í síðustu viku að losa mig undan
samningi úti. Ég spjallaði við Guggu
systur og spurði hvort hún hefði
áhuga á að fá mig ef það væri í boði.
Hugurinn leitaði eiginlega alltaf
hingað, ekki að fara strax aftur heim
í Hauka,“ sagði Helena í samtali við
Fréttablaðið í gær.
Helena er uppalin á Ásvöllum og
Haukar eru eina liðið sem hún hefur
spilað með á Íslandi. Hún segir að
það hafi vissulega komið til greina
að fara aftur í Hauka en Valur hafi
orðið fyrir valinu.
„Haukar voru líka sterkir þarna
en mér fannst það sem er í gangi
hjá Val spennandi. Fyrir mig sner-
ist þetta líka um að fara ekki aftur
í þægindarammann á Ásvöllum
heldur koma hingað og spila með
nýjum liðsfélögum fyrir nýjan þjálf-
ara; á stað þar sem mér líður eins og
ég þurfi að sanna mig. Það er áskor-
un,“ sagði Helena sem varð Íslands-
meistari með Haukum í fyrra.
Hún kveðst spennt fyrir því að
spila með systur sinni. „Mér finnst
það ótrúlega spennandi. Gugga er
frábær leikmaður en hefur kannski
ekki alltaf fundið stöðugleikann.
Við erum að mörgu leyti líkar sem
körfuboltakonur og ég tel að við
getum hjálpað hvor annarri.“
Valur hefur ekki unnið stóran titil
í kvennaflokki en því á að breyta.
„Þegar þú labbar inn á Hlíðarenda
er veggur með titlum félagsins og
ártölunum. Það er tómt hjá kvenna-
körfunni og mér finnst spennandi
að taka þátt í að sækja ártal á vegg-
inn. Að sjálfsögðu verður það mark-
miðið,“ sagði Helena. – iþs
Spennandi að taka þátt í að sækja ártal á vegginn
fótbolti Það er með hreinum
ólíkindum hversu óheppið íslenska
karlalandsliðið í knattspyrnu
hefur verið með meiðsli síðan Erik
Hamrén og Freyr Alexandersson
tóku við stjórnartaumunum hjá
liðinu í haust. Tíu leikmenn vantaði
í íslenska hópinn sem réðst á einkar
háan garð og mætti Belgíu, efsta liði
heimslista FIFA, á þeirra eigin heima-
velli.
Til þess að bæta gráu ofan á svart
meiddist Alfreð Finnbogason í
upphitun fyrir leikinn og þar með
var liðið án Gylfa Þórs Sigurðsson-
ar, Jóhanns Berg Guðmundssonar
og Alfreðs Finnbogasonar sem borið
hafa uppi sóknarleik íslenska liðsins
undanfarin ár. Arnór Sigurðsson,
sem er einungis 19 ára gamall, lék
sinn fyrsta A-landsleik og Albert
Guðmundsson byrjaði sinn fyrsta
mótsleik með liðinu.
Þá fékk Jón Guðni Fjóluson það
verðuga verkefni að fylla skarð
Ragnars Sigurðssonar í hjarta varn-
arinnar hjá íslenska liðinu. Þetta
var fyrsti mótsleikur Jóns Guðna
fyrir A-landsliðið. Hamrén og Freyr
brugðu á það ráð að leika með fimm
manna varnarlínu, þriggja manna
miðju og tveggja manna sóknarlínu.
Þetta virkaði vel framan af leik.
Leikmyndin var eins og búast
mátti við, Belgar mun meira með
boltann og leikmenn íslenska liðs-
ins í skotgröfunum. Það var unun
að sjá og heyra Aron Einar Gunnars-
son stýra varnarleik íslenska liðsins
og nærvera hans fyllti greinilega
leikmenn liðsins trú á verkefnið.
Íslenska liðið náði nokkrum fínum
spilköflum framan af leik og Albert
fékk besta færi liðsins þegar hann
batt endahnútinn á vel útfærða
skyndisókn.
Þegar líða tók á leikinn fundu
Belgar hins vegar glufur á þéttum
varnarleik íslenska liðsins og Michy
Batshuayi skoraði tvívegis í seinni
hálfleik. Belgía er þar af leiðandi
taplaust eftir þrjá leiki á toppi rið-
ilsins. Íslenska liðið fer hins vegar
stigalaust frá A-deildinni og er fallið
niður í B-deildina sem þýðir að liðið
mun verða í B-deild Þjóðadeildar-
innar næst þegar mótið fer fram.
Þá verður íslenska liðið í öðrum
styrkleikaflokki þegar dregið verð-
ur í riðla í undankeppni EM 2020 í
byrjun desember.
Þeir jákvæðu punktar sem hægt er
að taka úr þessum leik er að íslenska
liðið bætti öðru leikkerfi í vopna-
búr sitt, en leikmenn fundu sig
vel í þeirri leikaðferð sem leikin var.
Jón Guðni Fjóluson stóð sig í þessum
leik og getur hæglega komið inn með
sóma ef fastamenn meiðast í undan-
keppninni sem fram undan er.
Guðlaugur Victor lék svo mun
betur í þessum leik en í fyrri leiknum
gegn Sviss. Albert bankar fast á dyr
byrjunarliðsins með frammistöðu
sinni og Arnór Sigurðsson er kom-
inn langt í þróun sinni sem leik-
maður í hæsta gæðaflokki.
Fram undan er vináttulandsleikur
gegn Katar sem er síðasti leikur liðs-
ins á þessu ári. hjorvaro@frettabladid.is
Jákvæð atriði þrátt fyrir tap
Ísland spilaði þéttan varnarleik þegar liðið sótti Belgíu heim í lokaleik sínum í A-deild Þjóðadeildar UEFA í
knattspyrnu karla í gærkvöldi. Michy Batshuayi reyndist hins vegar íslenska liðinu erfiður í þessum leik.
Michy Batshuayi kemur boltanum fram hjá Hannesi Þór Halldórssyni og í íslenska markið. NORDiCpHOtOS/AFp
Helena Sverrisdóttir skrifar undir samninginn undir vökulu auga Gríms Atla-
sonar úr stjórn körfuknattleiksdeildar Vals. Darri Freyr Atlason, þjálfari Vals
(lengst til vinstri), er hæstánægður með liðsstyrkinn. FRéttABLAðið/SiGtRyGGUR ARi
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 f ö S t u D A G u r18 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
sport
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
9
-3
4
C
8
2
1
6
9
-3
3
8
C
2
1
6
9
-3
2
5
0
2
1
6
9
-3
1
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K