Fréttablaðið - 24.11.2018, Page 2
Veður
Hæg breytileg átt en austan 5-10 við
suðurströndina. Skýjað með köflum
um landið sunnan- og austanvert
en yfirleitt bjartviðri norðan- og
vestanlands. sjá síðu 52
Kisi sýnir klærnar
Save 50-70% on Dental Treatment
in Hungary
Your Specialist in Dental Tourism
Special winter oers!*
*for more informations, don’t
hesitate to contact us:
632 4007
info@fedaszdental.hu
Þjóðkirkjan Áfrýjunarnefnd þjóð-
kirkjunnar hefur staðfest að sr.
Ólafur Jóhannesson, sóknarprestur
í Grensásprestakalli, gerðist sekur
um siðferðisbrot með því að sleikja
kinnar kvenna, halda þeim á lofti á
meðan hann faðmaði þær og gefa
þeim fótanudd án samþykkis. Biskup
ætlar að skoða hvort hann treysti sr.
Ólafi áfram til að gegna stöðu prests
við þjóðkirkjuna.
Sr. Ólafur, sem er fyrrverandi for-
maður Prestafélags Íslands, hefur
verið í leyfi frá því sumarið 2017
vegna ásakana kvenna um ósæmi-
lega hegðun í þeirra garð á kirkju-
legum vettvangi. Fimm konur kvört-
uðu undan honum til kirkjunnar
sem tók á málinu síðastliðinn vetur.
Að endingu komst úrskurðarnefnd
þjóðkirkjunnar að þeirri niðurstöðu
að hann hefði brotið gegn tveimur
kvennanna. Samt sem áður voru
sögur þeirra allra keimlíkar þar sem
þær lýstu áreitni guðsmannsins ítar-
lega og af festu.
Agnes M. Sigurðardóttir bisk-
up sendi Ólaf í leyfi sumarið 2017.
Hún hefur tilkynnt Ólafi að hann
verði áfram í leyfi á meðan farið
verði yfir niðurstöðu nefndarinnar.
„Velferð þolenda skal ávallt í
hávegum höfð í málum sem þessu,
Við verðum almennt að trúa ein-
staklingum sem stíga fram og segja
sögu sína,“ segir biskup.
Af orðum Agnesar má skilja að
hún treysti sr. Ólafi ekki fullkom-
lega til að starfa áfram sem prestur
við þjóðkirkjuna. Nú mun hún fara
vandlega yfir málið. „Skylda presta er
fyrst og fremst gagnvart sóknarbörn-
unum. Milli þeirra og prests verður
að ríkja traust og eins milli presta
Séra Ólafur nýtur ekki
lengur óskerts trausts
Sr. Ólafur Jóhannesson braut gegn konum á kirkjulegum vettvangi. Áfrýjunar-
nefnd þjóðkirkjunnar hefur komist að þessari niðurstöðu. Biskup ætlar að
kanna stöðu gerandans. Sleikti kinnar kvenna og gaf fótanudd án samþykkis.
reykjavík „Hekla fagnaði 85 ára
afmæli sínu í ár og ákvað að bjóða
Reykvíkingum, þeim sem héldu upp
á 85 ára afmæli sitt á árinu, á tón-
leika,“ segir Friðbert Friðbertsson,
forstjóri Heklu. Hann vísar ásök-
unum um meinta spillingu tengda
miðakaupunum á bug.
DV upplýsti á fimmtudag að Hekla
keypti 200 miða á tónleika Hrólfs
Jónssonar, fyrrverandi skrifstofu-
stjóra eigna og atvinnuþróunar hjá
Reykjavíkurborg, í Eldborgarsal
Hörpu í síðasta mánuði. Voru kaupin
tengd lóðaúthlutun til Heklu sem
Hrólfur kom að. Engin úthlutun
hefur þó átt sér stað, aðeins viljayfir-
lýsing auk þess sem viðræður Heklu
og borgarinnar hafa siglt í strand, líkt
og Fréttablaðið greindi frá í ágúst.
Friðbert segir ýmislegt hafa verið
skoðað fyrir jafnaldra umboðsins
sem myndi henta aldurshópnum.
„Þegar við sáum síðan tónleika í
Hörpu þar sem Hrólfur, KK, Jakob
Frímann Magnússon og Karlakórinn
Þrestir komu fram ásamt fjölda ann-
arra tónlistarmanna var ákveðið að
slá til.“
„Sérhver er nú spillingin að kaupa
fyrir opnum tjöldum tónleikamiða
fyrir eldri borgara Reykjavíkur sem
fyrrverandi starfsmaður borgarinnar
heldur, mánuðum eftir að hann
hættir störfum hjá borginni og engir
samningar verið gerðir við borgina
um eitt né neitt utan viljayfirlýsingar
um samstarf. Hér er því ekki hægt að
vera að gera greiða gegn greiða, slíkt
er fjarstæða,“ segir Friðbert. – smj
Hekla bauð
hálfníræðum á
tónleika Hrólfs
Sr. Ólafur er sóknarprestur í Grensáskirkju, en er í leyfi. Fréttablaðið/EyþÓr
Mál 2:
„Áreitni hefði falist í því að [sr.
Ólafur] narti í eyrnasnepla,
kossum á kinn sem færist yfir
á eyrnasnepla sem sleiktir séu
snöggt, kæfandi faðmlögum þar
sem henni hafi verið lyft frá gólfi
og haldið í fangi.“
Mál 1:
„[…] hafi heilsað henni á þann veg
að koma inn fyrir afgreiðsluborð,
taka utan um hana, lyfta henni
upp og halda henni þannig fastri,
þetta hafi ítrekað gerst.“
„Hvað hann ætlaði að gera
með hana og við hana uppi á
hótelherbergi þegar þau væru
komin til útlanda.“
sem starfa saman. Ef það traust
hverfur þá lít ég svo á að skoða verði
hvort prestur sé í stöðu til að veita
þjónustu áfram.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er í bígerð breyting á Grens-
ásprestakalli. Skoðað er að sameina
Grensásprestakall og Bústaðapresta-
kall og þannig komast hjá því að
setja sr. Ólaf aftur inn í embætti sem
sóknarprest í Grensásprestakalli.
sveinn@frettabladid.is
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar.
bandaríkin Wikipedia-síðunni fyrir
Donald Trump, forseta Bandaríkj-
anna, var breytt í gær og aðalmynd-
inni af forsetanum skipt út fyrir
mynd af getnaðarlim. Breytingin
var ekki lengi í loftinu og síðan færð
fljótlega aftur í upprunalegt horf. Þar
sem getnaðarlimurinn var einungis
staðgengill forseta í stutta stund
urðu fæstir gestir síðunnar varir við
breytinguna.
Eigendur iPhone-síma tóku öllu
betur eftir breytingunni. The Verge
greindi frá því að vel eftir að skipt
var aftur um mynd hefði téður reður
birst þegar stafræni aðstoðarmaður-
inn Siri var spurður út í forsetann.
Siri nýtir Wikipedia til að svara
spurningum og því fylgdi myndin
með.
Viðbrögð bæði Apple og Wikipedia
voru þó snögg, myndin var fjarlægð
og svörum hins stafræna aðstoðar-
manns breytt. Þá setti Wikipedia
spellvirkjana í ævilangt bann. – þea
Limur í stað
Trumps forseta
Við verðum al-
mennt að trúa
einstaklingum sem stíga
fram og segja sögu sína.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Fjallmyndarlegur og tröllvaxinn Jólakötturinn, með gylltar tennur og klær, lét sjá sig á Lækjartorgi í miðborginni í gær. Kötturinn át þó engan
í þetta skiptið enda bara um styttu að ræða. Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar, mun kveikja ljósin á skreytingunni klukkan 16 í
dag. Kisi vakti skiljanlega mikla athygli enda um fimm metrar á hæð og sex metrar á breidd, prýddur þúsundum LED-pera. Fréttablaðið/anton brink
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L a u G a r d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
F
-C
6
E
4
2
1
7
F
-C
5
A
8
2
1
7
F
-C
4
6
C
2
1
7
F
-C
3
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K