Fréttablaðið - 24.11.2018, Síða 34

Fréttablaðið - 24.11.2018, Síða 34
Til hliðar við Albertshús vex tilkomumikill silfurreynir sem þau Vaida og Haukur kunna vel að meta. FréTTAblAðið/SigTryggur Ari Langalangamma mín, Herdís Albertsdóttir, fæddist hér í þessu húsi árið 1908 og átti heima í því í hundrað ár, til 2008. Stuttu áður en hún átti aldarafmælið varð hún að viðurkenna að hún væri orðin of gömul til að búa ein, svo hún fór á dvalarheimili og þar var hún síðustu fjögur árin,“ segir Haukur Sigurðs- son mannfræðingur og sýnir okkur Sigtryggi Ara ljósmyndara mynd af langalangömmu sinni. „Mér þótti vænt um þessa konu og geng enn með vettlinga sem hún prjónaði á mig,“ segir hann og heldur áfram sögunni. „Langalangamma ól upp ömmu mína, Kristjönu Sigurðar- dóttur, sem er núna sjötíu og eins árs. Þær bjuggu alltaf í einu litlu herbergi hér uppi. Amma erfði svo húsið 2012 en var ekki tilbúin í að gera það upp. Svo við drógum Svarta-Péturinn og tókum við því. Enginn annar var svo vitlaus,“ segir Haukur og hlær. Við erum stödd í  Albertshúsi við Sundstræti á Ísafirði, hjá Hauki og konu hans, Vaidu Braziunaité mannfræðingi. Vaida er litháísk, þau Haukur kynntust í Noregi er þau voru þar í námi og fluttu, full- numa, til Ísafjarðar fyrir fimm árum. Nú eru þau tveimur sonum ríkari, þeim Kára Vakaris, þriggja ára og Bjarti Rytas, eins árs. Þau eiga íbúð í þar næsta húsi við langalangömmu- húsið en leigja hana út til að fá pen- ing fyrir viðgerðum á gamla húsinu. Vaida er með lítið safn í miðbænum sem nefnist Hversdagssafnið. Það er opið yfir sumartímann. Nú í vetur er þessi litla fjölskylda á Þingeyri, þar sem Haukur og Vaida sjá um starfsemi Blábankans, þjónustu-og nýsköpunarmiðstöðvar. Þrjátíu draslskúffur En í húsinu þeirra við Sundstræti er margt mjög gamalt vegna þess Foreldrar langalangömmu bjuggu hér fyrst Haukur Sigurðsson og Vaida Braziunaité eru meðal þeirra Ísfirðinga sem vilja halda í gömlu húsin og gera þau upp í stað þess að ryðja þeim burtu og byggja ný. Í húsi þeirra við Sundstræti hefur margt fundist sem ber sögu fyrri íbúa vitni, meðal annars dagbók frá 1860. Eldhúsið er eins og það var þegar Herdís, langalangamma Hauks bjó þar. „Flestir hefðu tæmt allar þessar hirslur í svarta ruslapoka og keyrt þá út á hauga en ég var ekki alveg til í það, heldur ákvað að kíkja aðeins á góssið og er búinn að fara í gegnum hvert einasta smáatriði. Vissulega fór eitthvað á haugana en við hirtum alltof mikið sem ég veit ekkert hvað við gerum við. Það eru auðvitað endalaus bréf og dagbækur, til dæmis dagbækurnar hans langalangalangafa. Hann hélt alltaf dagbækur. Amma vissi af þeim öllum nema einni sem vantaði inn í en við fundum hana inni í smiðju, í kistu sem enginn vissi af. Sú dagbók var frá 1860-80, sem sagt eldri en þetta hús. Það var ótrúlega gaman að finna hana, hún er þykk og þétt- skrifuð en okkur gengur ekki vel að lesa gömlu skriftina svo ég fór með bókina til gamallar frænku í Bolungarvík, hún skilur hvert orð,“ lýsir hann og segir mikinn tíma hafa farið í allt þetta grúsk. Sex lög af gólfdúk Þau Haukur og Vaida gera upp húsið undir handarjaðri Minjaverndar og fá styrki til endurbótanna. „Við sækjum um styrk fyrir einn verklið í senn, höfum sótt um tvisvar og fengið jafnoft. Það munar um það. Fyrsta styrkinn fengum við til að endurnýja gluggana og það er smiður á Þingeyri búinn að smíða þá fyrir okkur, þeir verða nákvæm- lega eins og þeir sem eru í húsinu núna. Sami náungi ætlar að taka allt ytra byrði hússins í gegn næsta sumar. Þeir kunna alveg til verka hér fyrir vestan, enda bera mörg gömul hús því vitni. Svo fengum við líka smástyrk fyrir útihurðinni. Hún er ansi gisin en við ætlum að reyna að bjarga henni og á Akureyri er maður sem mun fara höndum um hana,“ segir Haukur „Við þurfum að halda í útlitið að utan en megum gera ýmis- legt inni og ætlum að rífa nokkra veggi, til dæmis sameina eldhús og borðstofu. Þær framkvæmdir sem við höfum farið í hingað til felast í því að við erum búin að skipta um allar lagnir og fleira sem ekki sést.“ Herdís, langalangamma Hauks, að frá því það var byggt, um 1890, hefur enginn flutt allt úr því, heldur hefur húsið verið innan fjölskyld- unnar, að sögn Hauks. „Foreldrar langalangömmu bjuggu hér með börnin sín og upp safnaðist dót og dagaði uppi. Það kannast allir við draslskúffur, yfirleitt er ein svoleiðis á flestum heimilum en hér voru 30 draslskúffur sem innihéldu allar dót frá síðustu hundrað árum. Svo eru hér alls konar litlar hirslur hingað og þangað, meðal annars inni í veggjum, sumar hafa ekki verið opnaðar í 50-70 ár, eða ég veit ekki hvað. Það er sko margt skrítið sem við höfum fundið,“ segir Haukur og heldur áfram: Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is geymslan hýsir margt frá síðustu öldum, hér eru nokkrir munanna. 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 4 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 0 F B 1 1 2 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 8 0 -1 5 E 4 2 1 8 0 -1 4 A 8 2 1 8 0 -1 3 6 C 2 1 8 0 -1 2 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.