Fréttablaðið - 24.11.2018, Síða 6
Jólabæklingur okkar
er kominn út.
Fjöldi glæsilegra
tækja á jólaverði.
Jól2018
Spanhelluborð
EX 651FEC1E, iQ700
Án ramma, með slípuðum framkanti.
„flexInduction“-svæði. Skynjar stærð
ílátsins. Snertisleði. Steikingarskynjari.
60 sm á breidd.
Fullt verð: 139.900 kr.
Jólaverð:
109.900 kr.
Steikingar-
skynjari
Orkuflokkur
Bakstursofn
HB 674GCS1S, iQ700
Stórt 71 lítra ofnrými. Kjöthitamælir,
13 hitunaraðgerðir, þar á meðal 4D-heitur
blástur. Hraðhitun. Brennslusjálfhreinsun.
Fullt verð: 179.900 kr.
Jólaverð:
139.900 kr.
Örbylgjuofn með grilli
HMT 75G451, Serie 2
Frístandandi. 17 lítra. Mesti örbylgjustyrkur
800 W. Grill: 1000 W. Sjálfvirk þíðing og
matreiðslukerfi.
Fullt verð: 29.900 kr.
Jólaverð:
23.900 kr.
VIÐSKIPTI Skýringar Íslandspósts
(ÍSP) í fjölmiðlum og fyrir fjárlaga-
nefnd Alþingis koma ekki heim og
saman við álit eftirlitsaðila. Und-
anfarin ár hefur fyrirtækið tapað
hundruðum milljóna vegna fjár-
festinga í dótturfélögum.
Í september var tilkynnt um að
ríkissjóður hygðist lána ÍSP 500
milljónir króna til að styrkja lausa-
fjárstöðu fyrirtækisins. Í tilkynn-
ingunni segir að tekjur af bréfa-
sendingum vegna alþjónustu hafi
dregist saman á meðan dreifikerfið
hafi stækkað með fjölgun íbúða og
fyrirtækja. Þá hafi auknar tekjur af
pakkasendingum ekki dugað til að
vega upp á móti samdrætti í bréfa-
sendingum. Stór þáttur í því er auk-
inn fjöldi sendinga vegna netversl-
unar frá Kína og öðrum löndum sem
flokkuð eru sem þróunarríki. Því
hefur talsvert gengið á eigið fé ÍSP.
ÍSP hefur einkarétt á bréfsend-
ingum undir 50 grömmum og ber
einnig skylda samkvæmt lögum
til að sinna svokallaðri alþjónustu
á sendingum undir tuttugu kíló-
grömmum. Á síðasta ári nam hagn-
aður ÍSP vegna einkaréttar rúmum
370 milljónum og rúmum 497
milljónum árið á undan. Tap vegna
samkeppni innan alþjónustu nam
á móti tæplega 1,5 milljörðum á
sama tímabili. Að sögn ÍSP liggur
rót vandans þarna.
Vegna þessa fór ÍSP fram á það að
íslenska ríkið myndi lána fyrirtæk-
inu 1,5 milljarða króna til að mæta
þeim vanda sem við blasir þar sem
viðskiptabanki fyrirtækisins hefur
lokað á frekari skammtímalán-
veitingar. Breytingatillaga á fjár-
lögum var lögð fyrir þingið fyrir
aðra umræðu en tekin út þar sem
fjárlaganefnd þingsins vildi kanna
hvort rétt væri að binda fjárveiting-
una einhverjum skilyrðum. Verður
það fyrir þriðju umræðu.
Lán sem varla fást endurgreidd
Séu ársskýrslur ÍSP og dótturfélaga
skoðaðar má hins vegar sjá hluti
sem benda til þess að fjárfestingar
félagsins hafi ekki skilað sér sem
skyldi.
Árið 2006 keypti ÍSP prentsmiðj-
una Samskipti ehf. Þá var tap á
rekstri félagsins og eigið fé neikvætt
upp á 63 milljónir. Kaupverð var
ekki gefið upp en niðurfært kaup-
verð í ársreikningum 2009-2011
nam 131 milljón.
Tilgangur kaupanna var meðal
annars að mæta kröfum viðskipta-
vina um aukna þjónustu og auka
verðmæti eignahluta félagsins.
Áframhaldandi taprekstur var á
fyrirtækinu eftir kaupin að undan-
skildu árinu 2007 en þá keypti ÍSP
fasteign af Samskiptum. Árið 2013
var búið að afskrifa að fullu við-
skiptavild ÍSP í Samskiptum og á
sama ári setti ÍSP aukið hlutafé, 55
milljónir króna, í fyrirtækið.
Annað dótturfélag ÍSP er fyrir-
tækið ePóstur sem stofnað var árið
2012. Samkvæmt ársreikningi 2013
fékk fyrirtækið 247 milljónir í lán
frá móðurfélagi sínu. Tap á rekstri
var 80 milljónir það rekstrarár og
eiginfjárstaða félagsins neikvæð
sem því nemur. 2014 fékk fyrirtækið
aftur lán frá ÍSP, nú upp á 55 millj-
ónir. Fyrirtækið skilaði rekstrartapi
upp á 90 milljónir það ár og var
eigið fé neikvætt um 151 milljón.
Þá er athyglivert að lán ÍSP til
ePósts hefur nær enga vexti borið
og mun ekki koma til með að gera
það. Í svari ÍSP við fyrirspurn Frétta-
blaðsins segir að nú sé unnið að
því að innlima ePóst inn í móður-
félagið. Nær öruggt má því telja að
lánveitingar fyrirtækisins fáist ekki
endurgreiddar.
Fjárfestingar víða í rekstri
Þá eru ótaldar aðrar fjárfestingar
ÍSP en á undanförnum áratug hefur
fyrirtækið fjárfest fyrir hundruð
milljóna í húsnæði, bílum og
tækjum. Í kringum tíu ára afmæli
ÍSP, árin 2005 og 2006, voru byggð
tíu ný pósthús víðsvegar um landið
og sagt frá því að fyrirtækið væri
að hefja innreið sína að fullu inn á
flutningamarkað. Þá festi ÍSP árið
2012 kaup á glænýrri póstflokkun-
arvél fyrir hátt í 200 milljónir króna.
Að endingu er vert að nefna að í lok
síðasta árs var ákveðið að stækka
flutningamiðstöð ÍSP í Reykjavík.
Hún mun kosta 700 milljónir.
„Það er alveg mál að hluti af
þessum rekstrarvanda er tilkominn
vegna kostnaðar sem hlýst af alþjón-
ustunni og að hagnaður af einkarétti
stendur sífellt minna undir henni.
En svo getur maður spurt sig hvort
það séu aðrar ákvarðanir sem vega
þyngra og snúa að samkeppnishlut-
anum,“ segir Willum Þór Þórsson,
formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Willum segir mikilvægt að passa
upp á verðmæti hlutabréfa ríkisins í
ÍSP. Ríkinu beri skylda til að tryggja
alþjónustu og að pakkar og send-
ingar berist áfram til landsmanna.
Því sé verið að skoða að binda lán-
veitinguna einhverjum skilyrðum.
„Ef fjárfestingar í samkeppnis-
rekstri vega þyngra en blasir við í
dag þá er ástæða til þess að fá óháð-
an aðila til að skoða málið,“ segir
Willum.
Svanhildur Hólm Valsdóttir,
aðstoðarmaður fjármálaráðherra, á
sæti í stjórn ÍSP. Þá var Lilja Rafney
Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri
grænna, í stjórn frá 2000 til 2013.
joli@frettabladid.is
Tap Íslandspósts vegna dótturfélaga
hleypur á mörg hundruð milljónum
Íslandspóstur fór nýverið fram á að fá 1,5 milljarða að láni frá ríkinu til að mæta rekstrarvanda. Vandann megi rekja til þess að hagn-
aður af einkarétti standi ekki undir kostnaði af alþjónustu. Fyrirtækið hefur lagt fé í dótturfélög sín sem ólíklegt er að endurheimtist.
Sendingum að utan hefur fjölgað undanfarin ár en bréfsendingar dregist saman. Íslandspóstur segir að vandann megi rekja til þess. FréttabLaðið/anton brink
Ef fjárfestingar í
samkeppnisrekstri
vega þyngra en blasir við í
dag þá er ástæða til þess að fá
óháðan aðila til
að skoða
málið.
Willum Þór
Þórsson, formaður
fjárlaganefndar
2 4 . n ó V e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r6 f r é T T I r ∙ f r é T T A b L A Ð I Ð
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
F
-E
E
6
4
2
1
7
F
-E
D
2
8
2
1
7
F
-E
B
E
C
2
1
7
F
-E
A
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K