Fréttablaðið - 24.11.2018, Side 12
Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um Heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum.
Hefur fyrirtæki þitt áhuga á að leggja sitt af mörkum til að ná Heimsmarkmiðunum
um sjálfbæra þróun og á sama tíma sækjast eftir nýjum viðskiptatækifærum
og aukinni samkeppnishæfni?
Samstarfssjóðurinn skapar ný tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf.
Allt að 100 milljónir króna verða til úthlutunar.
Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu.
Markmiðið er að draga úr fátækt og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í
fátækum ríkjum. Sjóðurinn er opinn fyrir umsóknum frá skráðum fyrirtækjum.
Umsóknir þurfa að berast fyrir kl. 16:00 21. desember 2018
í netfangið atvinnulif.styrkir@utn.stjr.is. Fyrirspurnir þurfa
að berast eigið síðar en 18. desember á sama netfang.
Allar nánari upplýsingar á utn.is/heimsljos
Styrkir úr Samstarfssjóði
við atvinnulífið um
Heimsmarkmiðin
Ósáttir Ísraelar hafa höfðað hóp-
mál gegn skammtímaleiguvefnum
Airbnb eftir að eignir á Vesturbakk-
anum voru teknar út af vefsíðunni.
Lögmenn Ma’anit Rabinovich, íbúa
í Vesturbakkabyggðinni Kida og
skammtímaleigusala, sögðu við
Reuters að aðstandendur hópmál-
sóknarinnar teldu ákvörðun Airbnb
fela í sér alvarlega og ótrúlega mis-
munun. Rabinovich fer fram á um
300.000 krónur í miskabætur og
aðrir aðilar að hópmálsókninni gera
svipaða kröfu.
„Ákvörðun fyrirtækisins beinist
einungis gegn ísraelskum íbúum
byggðanna og þetta er gróf mis-
munun. Þetta er liður í löngu stríði
stofnana og fyrirtækja, sem eru að
meirihluta full andúðar á gyðingum,
gegn Ísraelsríki í heild og Ísraelum
sem búa í þessum byggðum,“ sögðu
lögmenn Rabinovich aukinheldur.
Chris Lehane, yfirmaður alþjóða-
samskipta hjá Airbnb, sagði í svari
við fyrirspurn Reuters að fyrirtækið
hefði fullan skilning á því að málið
væri flókið og erfitt. Allri gagnrýni
væri vel tekið. – þea
Hópmálsókn
gegn Airbnb
Fornfrægi tæknirisinn Nokia til-
kynnti í gær um sameiningu deilda
þráðlausra tækja og beintengdra í
von um að geta nýtt af fullum krafti
möguleikana sem felast í væntan-
legri 5G-nettengingu. Frá þessu
greindi Engadget í gær. Blaða-
maðurinn tók fram að um væri að
ræða afturhvarf til þess sem Nokia
gerir best, fjarskiptatækni, og benti
á að tilraunir með sýndarveruleika-
myndavélar og heilsugræjur hefðu
mistekist.
Nokia er ekki fyrsta fyrirtækið til
þess að setja 5G í forgang. Banda-
rísku fjarskiptafyrirtækin AT&T,
T-Mobile og Verizon vinna nú að
því að koma upp 5G-netkerfi þar
í landi og þá hafa fjölmörg önnur
tæknifyrirtæki unnið að þróun
snjallsíma sem eiga að geta nýtt
hina nýju tækni. – þea
Nokia einbeitir
sér að 5G
5G í forgang. Nordicphotos/Getty
Bandaríkin biðja
bandamenn um að
versla ekki við kín-
verska tæknirisann.
Eru viss um að Huawei
stundi njósnir fyrir kín-
verska ríkið og óttast
árásir á tölvukerfi hins
opinbera í ríkjum sem
nota netbúnað Huawei.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna reynir um
þessar mundir að telja bandamenn
sína á að hætta notkun netbún-
aðar frá kínverska tæknifyrirtækinu
Huawei. Wall Street Journal greindi
frá málinu í gær en heimildarmenn
miðilsins staðfestu að bandarískir
erindrekar hefðu átt fundi með Þjóð-
verjum, Japönum og Kínverjum um
málið. Bandaríkin væru að íhuga að
bjóða bandamönnum fjárhagslega
aðstoð í skiptum fyrir að sniðganga
kínverska fyrirtækið.
Tæknifyrirtækið hefur orðið fyrir
ýmsum þvingunum í Bandaríkj-
unum. Opinberar stofnanir mega
ekki nota netbúnað frá fyrirtækinu
og verslanir mega ekki selja snjall-
síma þess.
Huawei er að nafninu til í eigu
starfsmanna en ítök kínversku ríkis-
stjórnarinnar innan fyrirtækisins eru
mikil. Því er óttast að vörur Huawei
séu notaðar til þess að njósna um
eigendur. Stjórnendur Huawei hafa
alla tíð neitað þessum ásökunum en
yfirmenn FBI, CIA og annarra banda-
rískra öryggisstofnana eru langt frá
því að vera sannfærðir.
Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af
því að búnaðurinn sé notaður í ríkj-
um þar sem Bandaríkjaher er með
herstöðvar. Yfirvöld í Kína gætu, að
því er Bandaríkjastjórn trúir, ráðist
á tölvukerfi ríkisstjórna bandalags-
ríkja og stolið upplýsingum. Hér á
landi má til að mynda kaupa vörur
Huawei í Elko, hjá Nova og Símanum.
Talsmaður Huawei sagði í svari
við fyrirspurn Wall Street Journal að
fyrirtækið væri undrandi á hegðun
bandarísku ríkisstjórnarinnar. „Hua-
wei trúir því að viðskiptavinir okkar
taki rétta ákvörðun og byggi hana
á eigin dómgreind og reynslunni af
samstarfinu við Huawei.“
thorgnyr@frettabladid.is
Biðja um að Huawei verði sniðgengið
Frá kynningu á huawei Mate 20 pro. Þótt síminn sé glæsilegur fæst hann ekki í Bandaríkjunum. Nordicphotos/Getty
tækni
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
F
-E
9
7
4
2
1
7
F
-E
8
3
8
2
1
7
F
-E
6
F
C
2
1
7
F
-E
5
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K