Fréttablaðið - 24.11.2018, Qupperneq 26
Skildi beggja sjónarmið
Nú hafa skoðanir margra á fegurðar-
samkeppnum breyst í tímans rás og
þær eru alls ekki jafn vinsælar og
áður fyrr. Hvað finnst þér?
„Ég hef alltaf verið sömu skoð
unar. Þá og nú. Það er svo margt
hægt að gera í lífinu. Heimurinn
væri einsleitur ef allir væru eins. Ég
var búin að vera heima í viku þegar
ég var fór á keppnina Ungfrú Ísland.
Þá voru fræg mótmæli rauðsokka.
Þau trufluðu mig ekkert. Það þurfa
ekki allir að vera sammála. Auk þess
skildi ég beggja sjónarmið. Og geri
enn. Tíðarandinn var allt annar í þá
daga. Þessar keppnir voru vinsælar
og þeim fylgdu ferðalög og ótal tæki
færi. Ég greip tækifærin en svo vildi
ég bara halda lífinu áfram og kenna
dans. Og það gerði ég,“ segir Henny
frá.
Henny átti eftir að reka dansskóla.
Gifta sig. Eignast fallega stúlku. Skilja.
Gifta sig í annað sinn og eignast
myndarlegan dreng og skilja aftur.
Allan þennan tíma snerist líf hennar
að miklum hluta um dans.
Það var ekki ætlun Henny að ræða
sárar minningar sínar úr seinna
hjónabandi sínu. Það var heldur ekki
ætlun hennar að ræða um afleiðingar
heimilisofbeldisins sem hún bjó við.
Kvíða og vanlíðan sem braust stund
um út í ofdrykkju.
hluti. Ég hugsa að það sé eitthvert
ferli hafið innra með mér. En þetta
gerist allt svo hratt og ég er í rauninni
að ná áttum. Almáttugur, mér finnst
ég hafa verið voðalega ein í lífinu.
Þó að ég hafi átt foreldra sem voru
bestu hlustendur í heimi. Þó að ég
hafi verið tvígift. Þó að ég hafi síðar
eignast góðan lífsfélaga, hann Badda.
Þó að ég eigi vini í börnum mínum.
En ég sagði aldrei neitt,“ segir Henny.
Hún þegir lengi. Hugsar sig aðeins
um.
Fyrir framan hana eru albúmin en
þau eru enn í pokanum á sófaborð
inu. „Þegar ég var yngri og á ferða
lögum þá þurfti ég að vera í hlutverki
glöðu stelpunnar. Lífið einhvern veg
inn geystist áfram. Ég fór frá einum
stað á annan, dansa, skemmta, sýna.
Alltaf brosandi og innan um gleði og
glaum.
Setti upp grímu
Ég varð líka svo upptekin kona. Það
var aldrei sest niður og talað um eitt
né neitt. Ég rak stóran dansskóla
og bar mikla ábyrgð. Þegar ástand
ið var verst setti ég því köku
meikið á, fór í rúllukragapeysuna
og brosið var breitt. Ég setti upp
grímu. Maður fer ósjálfrátt að fela.
En númer eitt, tvö og þrjú þá var
ég alltaf að reyna að verja börnin
mín. Láta þetta ganga,“ segir hún.
Henny á tvö börn eins og áður
sagði. Unni Berglindi Guðmunds
dóttur og Árna Gunnarsson. Þau
hafa sýnt henni stuðning.
„Frásögn mín kom Unni Berg
lindi mjög á óvart. En það er
vitnað í hana í bókinni nokkrum
sinnum. Árni var miklu yngri og
vissi ekki mjög mikið. Taldi sig
alveg vita hver pabbi sinn væri.
Hann fékk mikið sjokk. Við erum
öll að taka stór skref og eins og ég
sagði áðan þá erum við svo nýlögð
af stað. Þetta var erfitt tímabil í
lífi mínu. Fyrir mig en líka aðra.
Ég vona bara að þetta verði allt til
góðs,“ segir Henny.
Hún segir ofbeldið hafa byrjað
hægt. „Ég áttaði mig ekki á því í
fyrstu. Svo vatt þetta upp á sig,
stigmagnaðist. Ég er búin að
fylgjast mjög vel með umræðu um
Það var útgáfupartí í gær hér í næsta sal,“ segir Henny Hermannsdóttir sem er komin til fundar við blaðamann á Hótel Sögu. Það er þögn og fáir
á ferli í sal á einni af efri hæðum hót
elsins. Henny er klædd í stílhreina
svarta peysu og í svarta pallíettu
strigaskó. Hún er með fullan poka
af stórum úrklippubókum. Og harð
neitar að þiggja hjálp við að bera
þær. Þó að hún stingi verulega við.
„Ég er nýlaus við gifs. Ég var ristar
brotin,“ útskýrir Henny. Úrklippu
bækurnar geyma ljósmyndir og
blaðaúrklippur frá yngri árum. Frá
þeim tíma sem líf hennar fór á fleygi
ferð. Fegurðarsamkeppnir, fyrir
sætustörf og dans. Og meiri dans. Líf
Henny snerist að stórum hluta um
dans.
Henny dansaði bæði ballett og
samkvæmisdansa frá barnæsku
og útskrifaðist sem danskennari
aðeins sautján ára gömul. Hún varð
þjóðþekkt eftir að hún hampaði
titlinum Miss Young International
í Japan 1970. Hún fór í ótal viðtöl
árum saman. Svo mörg að þau fylla
á annan tug stórra úrklippubóka.
Henny ákvað fyrir rúmum tveim
ur árum að segja ævisögu sína. Það
gerði hún að beiðni dagskrárgerðar
konunnar Margrétar Blöndal. Í bók
inni eru dregnar fram minningar
Henny frá glaumi og glysi þessara
áratuga og svo af högum hennar
síðari ár.
Tækifæri og ferðalög
Varstu full sjálfsöryggis þegar þú tókst
þátt í þessari fegurðarsamkeppni?
„Nei, svo sannarlega ekki. Ég
hélt ég væri svo fín. En svo þegar ég
kom út og hitti aðra keppendur þá
krossbrá mér. Þær voru svo flottar
og glæsilegar. Ungfrú Frakkland var í
skósíðri rúskinnskápu með hatt í stíl.
Ég fann til minnimáttarkenndar,“
segir Henny og brosir að minning
unni. „Allt var svo framandi. Þegar ég
kom á hótelið í Japan þá lyktaði ég
af fallegum blómum í anddyrinu og
var snarbrugðið. Þetta voru þá ekki
plastblóm, heldur alvöru!“ segir hún
og kímir.
Að vinna keppnina fól í sér tæki
færi og ferðalög. „Fimm efstu stelp
urnar þurftu að vinna fyrir styrktar
aðila keppninnar. Ég var beðin um
að fara til Ástralíu, þar dvaldi ég í þrjá
mánuði. Ferðaðist um hana þvera og
endilanga. Þetta var mikið ævintýri,“
segir Henny sem segist hafa ferðast
lítið sem ekkert áður en ævin
týrið hófst. „Og það gerðu jafnaldrar
mínir ekki heldur. Ég gat aldrei deilt
almennilega þessari reynslu með
öðrum. Venjulegt fólk þekkti bara
heiminn í gegnum svarthvítt sjón
varp.“
Maður fer ósjálfrátt að fela
„Þegar ég var yngri og á ferðalögum þá þurfti ég að vera í hlutverki glöðu stelpunnar,“ segir Henny. FréTTablaðið/Ernir
Þegar ástandið var
verst setti ég Því
kökumeikið á, fór í
rúllukragapeysuna og
brosið var breitt. ég
setti upp grímu. maður
fer ósjálfrátt að fela.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Henny var líka til umfjöllunar í blöðum í Japan.
Ég hef aldrei staðið
með sjálfri mér. En
nú geri ég það, segir
Henny Hermanns-
dóttir. Hún segir frá
ævintýralegu lífi sínu
og glæstum sigrum í
nýrri bók. En líka af
heimilisofbeldi sem
hún bjó við og af-
leiðingum þess.
aldrei áður sagt frá
Er þér létt? Hefðir þú viljað segja frá
öllu þessu fyrr?
„Nei, ég hafði aldrei haft þörf fyrir
að segja frá einu eða neinu.“
Hvers vegna núna?
„Þetta gerðist allt saman óvart.
Ég var í útvarpsviðtali hjá Margréti
Blöndal fyrir um það bil tveimur
árum. Hún var búin með eina spurn
ingu og þá var þátturinn búinn. Við
vissum að við værum frænkur en
höfðum aldrei hist. Hálfu ári seinna
hringdi hún í mig og var með hug
mynd að bók.
Ég ætlaði aldrei að segja frá ævi
minni á opinskáan hátt. Ég ræddi
við börnin mín um það að ég gæti
hugsað mér að gera þetta með Mar
gréti og það varð svo úr.
Ég hef aldrei sagt neinum neitt. En
það var oft talað um mig. Sumu var
fótur fyrir. Öðru alls ekki.“
Fannst þér það erfitt? Sögusagn-
irnar?
„Ekki beint, ég hef reynt að leiða
þær hjá mér. Ég hef
aldrei staðið með sjálfri
mér. En nú geri ég það.
Nú get ég sagt: Hér er
þetta og svona er þetta.
Svo getur hver og einn
metið þetta allt saman.
Þegar við lögðum
upp með bókina þá
vissi Margrét ekki
hvað ég hafði gengið í
gegnum. Hún var bara
forvitin um mig og vildi
vita meira um glæsi
lífið og hvernig þetta
hefði farið allt saman.
En við vorum byrjaðar
og eftir því sem við töl
uðum meira saman þá
fann ég að ég gat treyst
henni. Ég réð því auð
vitað hvort ég myndi
segja frá. Eða segja ekki
neitt. Ég ákvað að vera
heiðarleg. Það kom
ekki neinni Metoo
byltingu við. Hún var
ekki einu sinni hafin.
Þetta var allt annars
eðlis og kviknaði innra
með mér. Var persónu
leg ákvörðun,“ segir Henny sem átt
aði sig á því eftir að hún tók ákvörð
unina að þetta yrði erfitt verkefni.
Gerist allt svo hratt
„Ég kveið alltaf mikið fyrir því þegar
hún kom til mín. Þegar hún fór,
það hljómar á ská, þá var mér svo
ofsalega létt. Ég fór nefnilega alltaf
í aðstæður. Sá fyrir mér í hverju ég
var, umhverfið og aðra í kringum
mig. Það var gott og gaman að rifja
upp góðar stundir en auðvitað var
að sama skapi erfitt að rifja upp
sárar minningar og horfast í augu
við sannleikann. Hún skrifaði alltaf
uppkast eftir samtali okkar og sendi
mér strax daginn eftir.
Eftir erfiðustu samtölin þá gat ég
ekki opnað iPadinn minn í tvo daga
á eftir. Þetta var virkilega erfitt ferða
lag,“ segir Henny.
Hefur það að segja frá hjálpað þér
að finna sátt?
„Það er ekki tímabært að svara
því. Ég hef aldrei áður rætt þessa
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
8
0
-0
7
1
4
2
1
8
0
-0
5
D
8
2
1
8
0
-0
4
9
C
2
1
8
0
-0
3
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K