Fréttablaðið - 01.12.2018, Blaðsíða 18
Ljósin tendruð á Hamborgartrénu.
Miðbakki, Reykjavíkurhöfn
Ljósin á Hamborgartrénu verða tendruð kl. 17:00 laugardaginn 1. desember
en tréð er staðsett á Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Það eru góðir vinir frá
Hamborg sem senda jólatréð til Reykjavíkurhafnar. Þessi hefð hefur verið milli
aðila allt frá árinu 1965.
Við athöfnina munu fulltrúar frá Hamborg flytja stutt ávarp um leið og þeir
afhenda gjöfina. Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður Faxaflóahafna sf., þakkar
fyrir jólatréð fyrir hönd Faxaflóahafna. Herbert Beck sendiherra Þýskalands á
Íslandi, ávarpar gesti við tréð ásamt Dr. Sverrir Schopka, fulltrúa
Þýsk-Íslenska félagsins í Þýskalandi. Að athöfn lokinni er gestum boðið í heitt
súkkulaði og viðeigandi bakkelsi í Hafnarhúsinu, ásamt því að jólasveinar
munu kíkja í heimsókn. Félagar úr Lúðrasveit Hafnarfjarðar leika jólalög.
Þessi fallegi siður, að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar, er tileinkaður
íslenskum togarasjómönnum sem sigldu á Hamborg með fisk strax eftir seinni
heimstyrjöldina. Þess er sérstaklega minnst að sjómennirnir gáfu svöngu
og ráðlausu fólki á hafnarsvæðinu fiskisúpu á meðan verið var að landa úr
togaranum.
Á hverju ári síðan árið 1965 hefur Eimskipafélag Íslands flutt tréð endurgjalds-
laust til Reykjavikur og í ár eru það Íslandsvinafélögin í Hamborg og Köln
sem styrkja þetta framtak. Faxaflóahafnir hafa staðið fyrir skipulagningu að
móttöku trésins.
Anleuchten des Weihnachtsbau-
mes aus Hamburg am Miðbakki,
Reykjavik-Hafen
Am Samstag, den 01. Dezember 2018, um 17:00 Uhr wird pünktlich zur
Weihnachtszeit der Weihnachtsbaum aus Hamburg in Reykjavík angeleuchtet.
Der Baum ist ein Zeichen der Dankbarkeit für die Hilfspakete isländischer
Seeleute an bedürftige Menschen in Hamburg nach dem Zweiten Weltkrieg.
Der erste Baum kam 1965!
Sprecher der Delegation aus Hamburg werden eine kurze Ansprache
halten, während sie die Tanne offiziell übergeben. Kristín Soffía Jónsdóttir
, Vorsitzender der Faxaflóahäfen wird sich im Auftrag des Hafens für die
Tanne bedanken. Daraufhin folgt eine kurze Ansprache von Herbert Beck,
deutscher Botschafter in Island, begleitet von Sverrir Schopka, Sprecher der
Deutsch-Isländischen Gesellschaft in Deutschland. Im Anschluß werden die
Gäste zu heißer Schokolade und Gebäck ins Hafenhaus eingeladen.
Mitglieder der Hafnarfjörður-Blaskapelle spielen Weihnachtslieder.
Seit 1965 hat Eimskip den Transport der Tanne jedes Jahr gesponsort und
dieses Jahr hat ebenfalls Gesellschaft der Freunde Islands, Hamburg, und
Deutsch-Isländische Gesellschaft, Köln, dieses Unterfangen unterstützt.
Die Faxaflóahäfen haben den Transport und den Empfang der Tanne
organisiert.
ArgentínA Leiðtogar G20-ríkjanna
mættu til fundar í Buenos Aires,
höfuðborgar Argentínu, í gær. Til
umræðu var til að mynda tollastríð
Bandaríkjanna og Kína, útganga
Bretlands úr Evrópusambandinu,
hertaka þriggja úkraínskra herskipa
á Asovshafi og morðið á sádiarab-
íska blaðamanninum Jamal Khas-
hoggi, sem Mohammed bin Salman
krónprins er sagður bera höfuð-
ábyrgð á. Fundinum lýkur í dag.
Gærdagurinn hófst af krafti þegar
Donald Trump Bandaríkjaforseti,
Justin Trudeau, forsætisráðherra
Kanada, og Enrique Pena Nieto,
sem lætur af embætti Mexíkóforseta
í dag, undirrituðu nýjan fríversl-
unarsamning sem hugsaður er sem
arftaki NAFTA-samningsins. Málið
var eitt af helstu loforðum Trumps
í kosningabaráttunni.
„Þetta hefur verið langt og ansi
erfitt ferli. Við höfum þurft að taka á
okkur ýmis högg á leiðinni en þetta
er öllum ríkjunum til hagsbóta,“
sagði Trump. Samningurinn fer nú
fyrir þing ríkjanna þriggja og það
gæti reynst Trump erfitt enda fengu
Demókratar meirihluta í fulltrúa-
deildinni í kosningum í nóvember.
Trump átti bókaðan fund með
Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á
G20-fundinum en aflýsti vegna fyrr-
nefndrar hertöku Rússa á úkraínsku
herskipunum. María Sakarova,
upplýsingafulltrúi rússneska utan-
ríkisráðuneytisins, véfengdi í gær
þessa útskýringu Trumps. Sagði lík-
legra að svarið lægi í bandarískum
innanríkismálum. Þar vitnaði hún
til rannsóknar sérstaks saksóknara
á meintu samráði forsetaframboðs
Trumps við Rússa, sem bæði Trump
og Rússar neita að hafi átt sér stað.
Þegar Trump mætti til fundar í
gær sagði fréttaveita AP að hann
hefði heilsað leiðtogum Kanada,
Japans og Frakklands og rætt við
þá. Hann hafi hins vegar gengið
beinustu leið fram hjá, ekki einu
sinni heilsað, Pútín og Mohammed
krónprins.
AP sagði sömuleiðis frá því að
óeining á meðal G20-ríkjanna
virtist ætla að valda því að ekki
næðist nokkur samstaða um sam-
eiginlega yfirlýsingu um stefnu í
loftslagsmálum og fríverslun. Eins
og frægt er orðið dró Trump ríki sitt
út úr Parísarsamkomulaginu og þá
á hann sömuleiðis í tollastríði við
Evrópu, Kanada og Kína.
Xi Jinping, forseti Kína, fundaði
með Trump í gær vegna tollastríðs-
ins. Það lá þó ekki fyrir þegar Frétta-
blaðið fór í prentun hver afrakstur
fundarins var. Sömuleiðis fundaði
Theresa May, forsætisráðherra Bret-
lands, með Mohammed krónprins
en sömu sögu er að segja af þeim
fundi. May hafði áður sagst ætla
að ræða sérstaklega um mál Khas-
hoggis. thorgnyr@frettabladid.is
Hertaka og Khashoggi
ofarlega á blaði hjá G20
Valdamestu leiðtogar heims mættu til fundar í argentínsku höfuðborginni í
gær. Skrifað var undir nýjan NAFTA-samning. Rússar gagnrýna aflýsingu á fundi
Trumps og Pútíns. Trump ræddi við forseta Kína um tollastríð ríkjanna.
Mohammed bin Salman og Vladímír Pútín eru líklegast tveir umdeildustu gestir G20-fundarins. NordicPhotoS/AFP
ÚkrAínA Þeir 24 úkraínsku sjóliðar
sem Rússar handtóku eftir hertöku
þriggja úkraínskra herskipa á Asovs-
hafi um síðustu helgi voru í gær
fluttir í fangelsi í Moskvu. Þar af er
21 haldið í Lefortovo-fangelsinu en
þeir þrír sem særðust við hertökuna
eru á sjúkrahúsvæng annars fang-
elsis. Þetta kom fram á rússnesku
fréttastöðinni Rain í gær.
Reuters sagði frá því í gær að yfir-
völd í Úkraínu neituðu nú öllum
fullorðnum, rússneskum karl-
mönnum um inngöngu í landið.
Ástæðan er að herlög eru nú í
gildi eftir atburði síðustu helgar.
Petró Pórósjenkó forseti hefur sagt
þessar aðgerðir nauðsynlegar til að
koma í veg fyrir innrás enda gætu
óeinkennisklæddir Rússar annars
hæglega komist til Úkraínu líkt og
er sagt hafa gerst árið 2014 þegar
aðskilnaðarsinnar tóku yfir austur-
hluta landsins og Rússar innlimuðu
Krímskaga.
Annegret Kramp-Karrenbauer,
ein þeirra sem sækjast eftir því
að taka við af Angelu Merkel sem
formaður Kristilegra demókrata
í Þýskalandi, sagði í gær að bæði
ESB og Bandaríkin ættu að íhuga að
banna siglingar rússneskra skipa af
Asovshafi um hafnir sínar.
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs
ESB, sagði í gær að hann byggist við
því að leiðtogaráðið myndi fram-
lengja gildistíma þvingana gegn
Rússum þegar þeir funda um miðjan
desember og kallaði aðgerðir Rússa
á Asovshafi óboðlegar. – þea
Sjóliðarnir fluttir til Moskvu
Einn úkraínsku sjóliðana í fylgd rúss-
nesks FSB-liða. NordicPhotoS/AFP
G20-ríkin:
Argentína
Ástralía
Brasilía
Kanada
Kína
Frakkland
Þýskaland
Indland
Indónesía
Ítalía
Japan
Mexíkó
Rússland
Sádi-Arabía
Suður-Afríka
Suður-Kórea
Tyrkland
Bretland
Bandaríkin
Evrópusambandið
Gestir:
Síle
Jamaíka
Holland
Rúanda
Senegal
Singapúr
Spánn
BAndAríkin Stærðarinnar jarð-
skjálfti, sjö stig, reið yfir í banda-
ríska ríkinu Alaska í gær. Upptök
skjálftans voru rétt norður af borg-
inni Anchorage. 5,8 stiga eftirskjálfti
reið yfir skömmu síðar. Varað var
við flóðbylgjum á Kenai-skaga og
við strönd Cook-víkur en þeirri við-
vörun var aflétt um níutíu mínútum
síðar.
Rafmagn fór víða af og bygg-
ingar og vegir skemmdust af
völdum skjálftans og umferðarljós
biluðu. Þar af leiðandi mynduðust
miklar umferðarteppur. Að því
er kom fram hjá Anchorage Daily
News í gærkvöldi liðaðist vegur að
alþjóðaflugvelli borgarinnar nærri
í sundur.
Skrúfað var fyrir olíuflutninga-
leiðslu Alaska í kjölfar skjálftans.
Það var þó einungis gert í varúðar-
skyni en leiðslan skemmdist ekki
vegna skjálftans svo vitað sé. – þea
Sjö stiga jarðskjálfti skall á
nærri Anchorage í Alaska
1 . d e s e m B e r 2 0 1 8 L A U g A r d A g U r18 f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð
0
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
9
B
-8
1
C
8
2
1
9
B
-8
0
8
C
2
1
9
B
-7
F
5
0
2
1
9
B
-7
E
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
3
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K