Fréttablaðið - 01.12.2018, Síða 22
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Raunar sætir
furðu að
þingmönn-
unum hafi
tekist að
snerta á svo
mörgum
subbumálum
á ekki lengri
tíma
Save 50-70% on Dental Treatment
in Hungary
Your Specialist in Dental Tourism
Special winter oers!*
*for more informations, don’t
hesitate to contact us:
632 4007
info@fedaszdental.hu
Maðurinn er eins og sement. Við byrjum blaut; blaut á bak við eyrun, ómótuð, leir. Við getum orðið allt, allir vegir eru færir, allar dyr standa
opnar. Eins og óhörðnuð steypa getum við tekið á
okkur hvaða form sem er. En með tímanum þornum við
og hörðnum. Skyndilega erum við það sem við erum og
ekkert fær því breytt. Við erum orðin við. Við erum ekki
lengur á vegferð heldur erum við mætt á áfangastað.
Ég átti afmæli í gær. Á einni nóttu eltist ég um áratug.
Ég er ekki lengur þrjátíu og eitthvað. Nú er ég fjöru-
tíu. Síðustu ár hef ég að jafnaði hafið afmælisdaginn
fyrir framan spegilinn þar sem ég bölva óvelkomnum
gestum; myrkum dældum undir augum sem opnast eins
og dalir inni á milli fjalla, mark um tímans þunga nið á
andlitinu á mér. Í ár tengdust aldurskomplexarnir hins
vegar hvorki hrukkum né almennum afleiðingum sam-
starfs tíma og þyngdarlögmáls.
Flogið til allra áfangastaða
„Ég dvel í möguleikanum,“ orti skáldkonan Emily
Dickinson.
Tíminn sem maður dvelur í möguleikanum er alltaf
sá besti. Allt er opið. Allt getur gerst. Veröldin er ostra.
Lífið er ferðalag og flogið er til allra áfangastaða. Þetta
er augnablikið áður en maður lætur til skarar skríða,
þegar verknaðurinn er aðeins draumur, athöfnin
aðeins hugmynd. Áður en maður byrjar, framkvæmir,
er hægt að ylja sér við þá óra að allt fari á besta veg;
bókin verði metsölubók, að maður verði ríkur þegar
maður er orðinn stór, kannski fræg rokkstjarna.
Á afmælisdaginn voru það ekki líkamleg einkenni
öldrunar sem ollu mér áhyggjum, það var ekki mýkt
þess sem áður var stinnt. Þvert á móti var það harka
þess sem áður var mjúkt.
Hvenær hætti hugurinn að vera opinn? Hvenær hætti
sálin að vera lipur, sveigjanleg, til í hvert það ævintýri
sem biði handan hornsins? Hvenær hætti ég að trúa
því að einn daginn yrði ég kannski fræg rokkstjarna?
Hvenær hætti ég að dvelja í möguleikanum?
Það sem gæti verið öðruvísi
Í dag fögnum við aldarafmæli fullveldis Íslands.
Hundrað ár eru frá því að Ísland varð frjálst og full-
valda ríki með gildistöku sambandslaganna.
Fullveldi Íslands er eins og fertug kona; það er
komið til vits og ára án þess að það sé endilega komið
til ára sinna – en stífleiki tímans er þó farinn að segja
til sín.
Með hækkandi aldri stirðna vöðvar. Til að sporna
gegn því förum við í átak, skellum okkur í ræktina eða
út að skokka og gætum þess svo að teygja vel á eftir.
En það er fleira sem þarf að teygja á en vöðvar.
Dyr lokast, draumar gleymast, framtíðin verður
fyrirsjáanleg. Rétt eins og við þurfum að hafa meira
fyrir því að halda líkamanum liðugum þegar aldurinn
færist yfir, þurfum við að vinna hart að því að halda
sálinni sveigjanlegri.
Í hundrað ár hefur Ísland verið fullvalda. Á þeim
tíma hefur samfélagið mótast, tekið á sig form, komist
í fast horf. En þegar hlutirnir eru í föstum skorðum,
hvort sem um ræðir fertuga konu eða hundrað ára
fullveldi, hættir okkur til að missa sjónar á því að
hlutirnir geta verið öðruvísi en þeir eru.
Fertug kona hyggst dvelja í möguleikanum um að
verða rokkstjarna þegar hún verður stór. Á hundrað
ára fullveldisafmæli standa óendanlega margar dyr
íslensku samfélagi opnar: Við gætum komið okkur
upp nýrri stjórnarskrá; við gætum breytt fiskveiði-
stjórnunarkerfinu og tryggt að landsmenn allir
njóti góðs af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar;
við gætum sameinast um sanngjarnara samfélag og
hækkað lágmarkslaun; við gætum afþakkað þjónustu
þeirra forhertu fulltrúa þjóðarinnar á Alþingi sem
viðruðu almenna mannfyrirlitningu sína er þeir sátu
að sumbli á bar í miðborginni og fara með fullveldi
okkar eins og eigið konungdæmi, drukknir af öli og
eigin völdum.
Möguleikarnir eru endalausir. Aðeins hugmynda-
flugið setur okkur skorður.
Fullveldi Íslands er
eins og fertug kona
Annálað samtal tíu prósenta þing-heims á Klaustri fór um myrkan huga þeirra sem þar sátu, en fæst sem þessum kjörnu fulltrúum fór á milli þolir dagsljósið. Umræðurnar voru þess eðlis að varla hefur verið þægi-
legt fyrir þingmennina að mæta til vinnu daginn
eftir að þær voru birtar, hvað þá í árlegan gleðskap
Alþingis á Bessastöðum.
Auðvitað er óheimilt að taka upp samtöl að fólki
forspurðu. Um það er ekki deilt. Það breytir ekki því
að það sem var sagt, var sagt. Umræðurnar sýna þá
sem hæst höfðu í skelfilegu ljósi.
Ekkert virðist hafa verið heilagt eða undanskilið,
og raunar sætir furðu að þingmönnunum hafi tekist
að snerta á svo mörgum subbumálum á ekki lengri
tíma. Óskandi væri að störf Alþingis með jákvæðari
formerkjum væru jafn skilvirk.
Eins og oft áður er gagnlegt að reyna að setja sig
í spor þeirra sem við borðið sátu. Fólk talar oft á
hispurslausan hátt í góðra vina hópi. Flestir hafa
vafalaust látið orð falla í hálfkæringi eða án þess að
hugur fylgi máli við slíkar kringumstæður.
En þrátt fyrir samhengislaus gífuryrðin, hálfkær-
inginn og háðsglósurnar er rauður þráður í talsmát-
anum. Groddaleg viðhorf skína í gegn. Háðsglósum
í garð fatlaðra og samkynhneigðra er fleygt eins og í
framhjáhlaupi og bæta gráu ofan á svart.
Kvenfyrirlitning er meginstefið. Þingmennirnir
skilgreina samstarfskonur sínar eftir útliti, gera
þeim upp óeðlilegar hvatir og kalla þær öllum illum
nöfnum. Oftast með kynferðislegri skírskotun.
Þessi talsmáti er algerlega á skjön við orðsporið
sem þingmennirnir rembast við að skapa sér, alls-
gáðir, í viðurvist fjölmiðla. Af samtalinu að dæma
sýna þeir þá hlið einungis þegar kveikt er á upp-
tökuvélunum. Fyrir tvo reynslumestu þingmennina
í hópnum er remban sérlega vandræðaleg, annar
fékk verðlaun fyrir framlag til jafnréttismála þegar
hann sat í forsætisráðuneytinu og hinn fór sem
utanríkisráðherra mikinn á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna í sama málaflokki.
Eftir að upptakan varð opinber hafa verið kallaðir
til alls kyns sérfræðingar. Margir þeirra tala um
virðingu Alþingis og álitshnekki sem þingið hefur
beðið. En málið þarf enga stjórnmálafræðinga til
að skýra frá. Þingmennirnir bera sjálfir ábyrgð á
orðum sínum en kollegar þeirra ekki. Þá sjálfa setur
niður og enga aðra. Að varpa þessu yfir á allt þingið
drepur málinu á dreif. Sökin á að bíta þann seka.
Á almennum vinnumarkaði væri hátterni sex-
menninganna sennilega brottrekstrarsök. Þing-
mönnum getur hins vegar enginn sagt upp nema
kjósendur á fjögurra ára fresti. Þótt tveir hafi verið
reknir úr flokki sínum og aðrir tveir sendir í leyfi
hefur enginn sagt af sér þingmennsku.
Þeir virðast ótrauðir ætla að mæta örlögum
sínum í næstu kosningum. Það ætti að verða þungur
róður. Orð eiga að hafa afleiðingar.
En við erum ýmsu vön.
Sök bítur sekan
1 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r22 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
9
B
-7
C
D
8
2
1
9
B
-7
B
9
C
2
1
9
B
-7
A
6
0
2
1
9
B
-7
9
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
3
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K