Fréttablaðið - 01.12.2018, Page 38
Köllum hann Jósef, milljarðamæringinn, blaðamanninn, flótta-manninn frá Venesú-ela sem ég hitti fyrir utan stærstu flótta-
mannabúðirnar í Boa Vista, höfuð-
borg Roraima, nyrsta fylkis Brasilíu,
sem liggur að Venesúela. „Það er svo
skítt heima, það er ekki einu sinni
hægt að skeina sig, ekki til klósett-
pappír.“
Síðan 2013 hefur einn af hverjum
tíu íbúum Venesúela eða hátt í fjórar
milljónir flúið land. Land sem situr
á næstmestu olíubirgðum í heimi á
eftir Sádi-Arabíu, og var fyrir aðeins
tíu árum ríkasta land Suður-Ameríku.
Hann hafði komið tveimur dögum
fyrr, einn af 5.000 flóttamönnum sem
streyma daglega yfir landamærin til
Brasilíu. „Nei, það er ekkert pláss fyrir
mig í búðunum, þær eru bara fyrir
fjölskyldur með ung börn, ég … við öll
hérna fyrir utan girðinguna, þurfum
að bjarga okkur á eigin spýtur. Hér er
þó til matur og peningar sem eru ekki
verðlausir.“
Venúsúelamenn settu heimsmet
í verðbólgu í sumar, þegar hún náði
milljón prósentum. Ef þú hefðir skipt
milljón dollurum í bolívara, þeirra
gjaldmiðil, þegar Nicolás Maduro
tók við völdum fyrir fimm árum og
skiptir til baka í dag fengir þú 3 doll-
ara og 40 cent; eða 500 kall fyrir þínar
120 milljónir íslenskra króna.
„Þegar ég fór að heiman kostaði
heill kjúklingur 14,6 milljónir bolív-
ara, sem er um 15 kíló af þúsund
króna seðlum, ef hann var þá til.
Mánaðarlaunin voru síðast þegar
ég fékk útborgað 50 milljónir, sem
dugar fyrir þremur kjúllum og einni
vatnsflösku þann mánuðinn.“
Síðan leit hann í kringum sig,
horfði á móður drekka vatn úr flösku,
meðan kornabarn sem hafði fæðst í
skógarrjóðri við landamærin nokkr-
um dögum fyrr fékk sopa af ylvolgri
móðurmjólk. Frænka einhvers sneri
snilldarlega við tveimur kjúklingum
fyrir nýlenta flóttamenn á tunnuloki,
sem lá á brúnni jörðinni milli tveggja
polla.
Flóttamennirnir voru mjög áber-
Venesúelar
Fyrir áratug var Venesúela eitt auðugasta land
Suður-Ameríku. Nú flýja landsmenn fátækt og
verðbólgu. Ljósmyndir og texti: Páll Stefánsson
Flóttamannahjálp SÞ, í samvinnu við Rauða krossinn, gefur barnafjölskyldum
tvær máltíðir á dag, hér er verið að gefa hádegisverð.
Táraflóð í
nýju landi,
mæðgin búin
að vera viku í
flóttamanna-
búðum í
Boa Vista í
Brasilíu.
Mánaðarlaunin voru
síðast þegar ég fékk
útborgað 50 Milljónir
andi þarna norður frá; gangandi í
hópum búnir einum bakpoka og
skjóðu, fullri af minningum og mynd-
um frá heimalandinu. Staddir þarna í
von um betri tíma, í landi sem var svo
líkt en samt svo framandi með annað
tungumál, og stjórnarfar.
Það sem af er þessari öld hafa
bara fleiri flóttamenn komið frá Sýr-
landi, sex milljónir á móti fjórum frá
Venesúela.
Hingað til hafa móttökur grann-
þjóða Venesúela verið til fyrirmyndar
en það er að breytast hratt. Ekvador
og Perú eru að skella í lás. Brasilía
og Kólumbía, sem tekið hafa á móti
flestum, eru farnar að ókyrrast. Það
er erfitt, flókið og dýrt að taka á móti
hundruðum þúsunda flóttamanna
sem eiga ekki neitt, ekki einu sinni
pappír til að skeina sig.
Tile Mate
4.990kr.
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
v
ill
ur
o
g
ve
rð
br
ey
tin
ga
r.
G
ild
ir
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t.
siminn.is/jol
Cutty Clock
vekjaraklukka
4.990kr.
Tractive
dýra GPS
9.990kr.
Dansandi
hátalari
3.490kr.
DJI Tello
dróni
19.990kr.
Skoðaðu úrvalið í vefverslun okkar eða
komdu í heimsókn í verslanir Símans.
Þú getur meira um jólin með Símanum
Snjallar gjafir
fyrir jólaglögga
Karaoke
hljóðnemi
7.990kr.
Þráðlaus
hleðsla – fíll
3.990kr.
Polaroid
vasaprentari
19.990kr.
1 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
9
B
-8
B
A
8
2
1
9
B
-8
A
6
C
2
1
9
B
-8
9
3
0
2
1
9
B
-8
7
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
3
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K