Fréttablaðið - 01.12.2018, Síða 95
Áhersla á börn og þátttöku gesta
Sérstök áhersla er lögð á gagnvirka
þátttöku gesta á sýningunni og er
miðlun efnis að verulegu leyti sérsnið-
in að börnum. „Við erum með lifandi
verur í vatnsbúrum, bæði jurtir og dýr.
Það verður hérna sérstakt vatnsborð
eða vaskur fyrir krakka til að leika sér
með lifandi verur ásamt kennaranum.
Svo verða önnur kvikindi sem þau
geta skoðað allan tímann.“
Það er einnig fjallað um þróunar-
fræði lífríkisins og er sérstök áhersla
lögð á þróun bleikju í Þingvallavatni.
„Þar erum við meðal annars með
margmiðlunarleik fyrir börn þar sem
þau geta þróað sína eigin bleikjugerð
eftir því hvað hún étur og hvar hún
lifir.“
Í samvinnu við margmiðlunar-
fyrirtækið Gagarín hefur verið búinn
til svokallaður vistrýnir. „Þar gerum
við mikilvægum vistkerfum í vot-
lendi, stöðu- og straumvötnum skil.
Þar geta gestir forvitnast um lífverur,
jafnt jurtir sem dýr, og hvernig þetta
virkar allt saman.“
Tímabundnar sérsýningar
Þá verður í rýminu sérsýningarbás
sem er ætlaður undir tímabundnar
sýningar þar sem fjallað verður um
afmörkuð efni. Verða sýningarnar
hannaðar með það fyrir augum
að þær geti farið um landið. Fyrsta
sérsýningin stendur fram á sumar
en þar getur að líta myndir sem
Erlendur Bogason kafari hefur tekið
í ólíkum vötnum landsins.
„Þetta eru einstakar myndir af
gróðursamfélögum og botngerð
sem enginn hefur séð áður. Af þeirri
sýningu tekur við sýning sem er sér-
staklega ætluð ungum börnum en
hún fjallar um skrímsli og óvættir
í vötnum á svona góðlátlegan hátt
sem er mjög metnaðarfullt og
skemmtilegt verkefni.“
Undirbúningur í eitt og hálft ár
Hilmar segir að vinna við hönnun,
framleiðslu og uppsetningu sýn-
ingarinnar hafi staðið í um eitt og
hálft ár. „Það er stuttur tími í þessu
samhengi. Hugmyndir um sýningar-
haldið á almennari nótum hafa
legið fyrir í lengri tíma en tíminn til
að einhenda sér í þetta hefur verið
skammur.“
Hann segir einvalalið koma að sýn-
ingunni en sýningarstjóri er Þórunn
Sigríður Þorgrímsdóttir og Álfheiður
Ingadóttir er vísindalegur ritstjóri
sýningarinnar. Þrátt fyrir að Nátt-
úruminjasafnið sé enn ekki komið í
varanlegt eigið húsnæði segir Hilmar
að málefni safnsins þokist í rétta átt.
„Fjárveitingar til safnsins hafa
verið að aukast allra síðustu ár. Það
þýðir að ég get ráðið fræðimenn því
að svona sýning verður að grundvall-
ast á rannsóknum. Öðruvísi gengur
það ekki.“
GÓÐA VEISLU
GJÖRA SKAL
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol
la
k
aff
itá
R
f
rá
bý
li
í b
ol
la
ka
ff
itá
r
f
rá
býli
í boll
a
hátíðí bæ
Á sýningunni er vatnið í náttúru
Íslands skoðað frá ýmsum hliðum.
MYND/VIGFÚS BIRGISSON
Hilmar Malmquist, forstöðumaður safnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
sem gert er ráð fyrir að starfsemi full-
búins safns þurfi. Þannig lítum við
á þetta sem eins konar sérsýningu,“
segir Hilmar.
Félagið Perla norðursins sem er
með sýningarhald í Perlunni leggur
til rýmið fyrir sýningu Náttúru-
minjasafnsins. Safnið kostar upp-
setningu sýningarinnar sem er um
290 milljónir króna auk árlegs við-
halds sem áætlað er að nemi á bilinu
5 til 8 milljónum á ári. Perla norð-
ursins stendur straum af almennum
rekstrarkostnaði auk þess að kosta
stöður tveggja safnkennara á sýning-
una. Þá verður engin leiga greidd á
samningstímanum.
„Ég lít á þetta sem mjög nýstárlega
og forvitnilega leið fyrir ríkisstofnun
og einkaaðila að vinna saman að
svona mikilvægu málefni,“ segir
Hilmar.
Ein allra dýrmætasta auðlindin
„Meginhlutverk safnsins er miðlun
og fróðleikur um náttúru landsins,
náttúrusögu, náttúruvernd og nýt-
ingu náttúruauðlinda. Við gerum
það fyrst og fremst með sýningar-
haldi og annars konar miðlun. Við
ætlum að taka fyrir vatnið í náttúru
Íslands í víðasta skilningi. Það er
auðvitað mjög brýnt mál því vatnið
er ein okkar allra dýrmætasta auð-
lind og sérstaklega mikilvægt að
fræða komandi kynslóðir um mikil-
vægi vatnsins.“
Hilmar segir að á sýningunni verði
meðal annars fjallað um vatnafræði-
lega þætti eins og fjölbreytileika
íslensks vatns. „Það eru mismunandi
gerðir af vatni. Það er jökulvatn,
lindarvatn sem er mjög sérstakt
fyrir Ísland og það eru dragavötnin
og votlendi af alls kyns tagi. Það er
heitt og kalt vatn en landið er óvenju
ríkt af þessu miðað við önnur lönd
og það er mikilvægt að fara skyn-
samlega með þessa auðlind.“
Einnig verður á sýningunni fjallað
um samspil jarð-, líf- og vatnafræði.
„Jarðfræði mótar vatnafræði og
vatnalíffræði landsins á mjög ein-
kennandi og áberandi hátt. En þetta
er líka gagnverkun því lífríkið hefur
áhrif á jarðfræðina og vatnafræðina
þar með. Við gerum grein fyrir þessu
flókna sambandi sem við getum
kallað vistfræðina.“
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 55L A U G A R D A G U R 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8
0
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
9
B
-D
5
B
8
2
1
9
B
-D
4
7
C
2
1
9
B
-D
3
4
0
2
1
9
B
-D
2
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
3
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K