Fréttablaðið - 03.12.2018, Side 9
Ég held ég hafi verið átta ára þegar ég byrjaði að hlera stjórnmálamenn. Ég ólst upp
á stjórnmálaheimili. Sífellt kom
stjórnmálafólk í heimsókn. Heilu
stjórnarmyndunarviðræðurnar
áttu sér stað heima. Stundum kom
fólk í veislur eða til að skrafa óform-
lega yfir einhverju glundri í glasi. Þá
var talað hátt og hlegið hátt, langt
fram á nótt. Hvellar hláturrokurnar
í bland við tóbaksreyk gestanna
eru hughrif sem líða mér seint úr
minni.
Ég átti mér hlerunarstað í
stiganum milli hæðanna, þar sem
fæstir gáfu litlum dreng í náttföt-
unum gaum. Þar gat ég hlustað á
allt sem fram fór, á báðum hæðum.
Þar heyrði ég bæði glaðhlakkalegar
og oft glannalegar yfirlýsingarnar
innan úr stofu þegar svo bar undir,
en líka greindi ég orðaskil í var-
færnislegri samtölum sem áttu sér
stað inni á kontor. Stundum var
fólk ekki sammála. Stundum var
greinilegt að einhver var ósáttur
við einhvern. Straumar og stefnur
rákust á. Persónur glímdu. Hug-
sjónir voru ósamrýmanlegar. Það
var ýmislegt látið flakka. Alls konar
stór orð heyrði ég hrynja af vörum
valdamanna, stundum þvoglu-
mæltum. Alls konar grín heyrði
ég. Alls konar yfirlýsingar þutu um
húsakynnin. Alls konar óvarleg orð.
Alls konar misgáfulegt geðshrær-
ingartal í hita augnabliksins fékk ég
að heyra. Alls konar brigslyrði. Alls
konar bull og vitleysu.
Ég man hins vegar ekki eftir því
að ég hafi nokkurn tímann, í öll
þessi ár, heyrt einhvern tala um
konu sem kuntu.
Pólitík og tíkur
Svo fetaði ég mig sjálfur inn í
stjórnmálin. Ég var starfsmaður
framboða, í ráðgjafahlutverki ýmiss
konar og síðar þingmaður. Í stjórn-
málum kynnist maður alls konar
fólki og lendir í hinum fjölbreyti-
legustu kringumstæðum. Yfirleitt
var fólk að vinna vinnuna sína,
eftir bestu getu og sannfæringu.
Edrú. Stundum var þó dottið í það.
Það kom fyrir að ég og aðrir fórum
heldur óvarlega í eitrið. Gleðskapur
stóð fram eftir nóttu.
Yfirleitt var bara gaman. Ýmislegt
gat þó gengið á, misgáfulegt. Alls
konar yfirlýsingar fengu að fljúga.
Það er eins og gengur og gerist held
ég, í lífinu öllu og á flestum vinnu-
stöðum. Fólk slettir úr klaufunum.
Partíhald getur tekið á sig hinar
heimskulegustu myndir. Fólk er
ekki alltaf besta útgáfan af sjálfu sér,
sérstaklega þegar áfengið er annars
vegar. Ég hef átt mína bömmera.
Ég man hins vegar ekki eftir því
að ég hafi nokkurn tímann, í öll
þessi ár, heyrt eða tekið þátt í tali
samþingmanna minna, hvað þá
nokkurra klukkustunda tali, um
konur sem kuntur og tíkur.
Einstakt ógeð
Ekki heldur hef ég heyrt mögn-
uðum, fötluðum mannréttindabar-
áttukonum líkt við sel út af líkama
sínum. Engan hef ég heyrt spúa eins
miklum ofbeldisfullum viðbjóði yfir
annað fólk og þingmennirnir sex
gerðu tímunum saman á Klaustur-
barnum. Ég hef, í stuttu máli, aldrei
heyrt annað eins. Þetta samtal sem
þarna fór fram er einstakt.
Mér finnst mikilvægt að þetta
sé haft í huga og viðurkennt. Í
viðbrögðum sínum við þessari
afhjúpun á eðli sínu hafa sumir
þátttakendur samtalsins reynt að
bregða fyrir sig Jesú Kristi. Sá yðar
sem syndlaus er kasti fyrsta stein-
inum, er sagt. Fullyrt er að viðbrögð
fólks, einkum karla, séu hræsnisfull.
Þeir hafi flestir ef ekki allir talað
svona sjálfir. Við karlar, segja þessir
menn, eigum að líta í eigin barm.
Donald Trump reyndi þetta líka
þegar tal hans um að grípa í píkur
kvenna var afhjúpað. Hva, sagði
Trump, svona tölum við í búnings-
klefanum.
Nei, hugsaði þá meginþorri karla.
Það er ekki satt.
Förum yfir sviðið
Ég ætla ekki að setja sjálfan mig á
háan hest. Aðrir verða að dæma. Ég
treysti mér hins vegar mjög vel til
þess að setja nánast alla karlmenn
sem ég þekki á háan hest hvað
varðar tal á börum, í búningsklefum
eða víðar. Ég á engan vin sem talar
svona viðurstyggilega um konur
og annað fólk. Mín tilfinning er sú
að 95% karlmanna geri það ekki.
Skoðum þá karla sem eru í helstu
áhrifastöðum í samfélaginu: Guðni
forseti, Magnús Geir útvarpsstjóri,
Páll Matthíasson forstjóri Lands-
spítalans, Dagur borgarstjóri.
Hvert sem litið er, til listageirans,
til íþrótta, til viðskiptalífsins, til
stjórnmálanna. Alls staðar er fullt
af körlum sem myndu frekar láta
höggva af sér útlim heldur en að
tala svona. Í þeirra huga er svona tal
óhugsandi.
Jú, breysk erum við öll. Öllum
getur orðið á. En hvenær hættir hún
að virka þessi yfirlýsing í kjölfar þess
að maður gerir upp á bak, að aðrir
eigi að líta í eigin barm? Auðvitað
flýgur sá skítur ekki núna, að aðrir
séu hræsnarar.
Þið verðið bara að segja af ykkur.
Öllum getur orðið á. En
hvenær hættir hún að virka
þessi yfirlýsing í kjölfar þess
að maður gerir upp á bak,
að aðrir eigi að líta í eigin
barm? Auðvitað flýgur sá
skítur ekki núna, að aðrir
séu hræsnarar.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Gríptu tækifærið og fáðu þér nýjan ŠKODA á besta verðinu
strax í dag. Hlökkum til að sjá þig!
Škodaðu verðið
5
ár
a
áb
yr
gð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
a
ð
up
pf
yl
ltu
m
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
Besta Škodaverðið 4.890.000 kr.
Škoda Superb Combi Ambition / 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur
Listaverð: 5.410.000 kr.
520.000 kr.
Afsláttur
Besta Škodaverðið 3.850.000 kr.
Škoda Octavia Limo Ambition / 1.6 TDI / Dísil / Sjálfskiptur
Listaverð: 4.190.000 kr.
340.000 kr.
Afsláttur
Í tilefni þess að 100 ár eru liðin síðan einveldið féll og lýðræðið sigraði hér á landi sendir undir-
ritaður Færeyingur íslensku þjóð-
inni bestu kveðjur með eftirfarandi
hugleiðingum um sögulegar stað-
reyndir.
Elstu núlifandi Íslendingar og
Færeyingar fæddust sem borgarar
í sama ríki.
Hér er ekki átt við danska ríkið,
né norska ríkið frá 1814, heldur
hið forna norska ríki Sverris kon-
ungs. Noregur og Danmörk gengu í
konungssamband 1380 og seinna í
tvíríkjasamband (union) í Björgvin
1450. Allt er skráð. Konungssetrið
var staðsett í Danmörku, og vald
konungs jókst síðan um aldir, en
það breytti ekki þeirri staðreynd, að
Noregur og Danmörk voru tvö ríki.
Eftir ósigur danska-norska rík-
isins í bandalagi með Napoleon
Bonaparte varð tvíríkjakonungur
að gefa frá sér Meginlands-Noreg
(Continental Norway) sem stríðs-
skaðabætur úr norska ríkinu undir
Svíakonung 1814. Frá þeim tíma,
hafa verið til tvö norsk ríki sem er
sambærilegt og skipting Þýskalands
í tvö ríki eftir seinni heimsstyrjöld-
ina.
Í „Austur-Grænlandsmálinu,“
sem endaði með gerðardómsúr-
skurði í Haag 1933 (http://www.
worldcourts.com/pcij/eng/dec-
isions/1933.04.05_greenland.htm),
dæmdu fremstu sérfræðingar í
alþjóðalögum, að Grænland væri
ekki undir nýja norska ríkinu frá
1814, né danska ríkinu, heldur
undir hinum forna Noregskonungi,
sem samkvæmt áðurgreindum
alþjóðasamningum var (og er)
einnig konungur danska ríkisins.
Þar með er Margrét drottning fyrri
Margrét af Danmörku, önnur af
Grænlandi og Færeyjum (sambæri-
legt við: Queen Elisabeth II of Eng-
land, I of Scotland).
Úrskurðurinn í Haag 1933 stað-
festir, að Ísland var enn hluti af
forna norska ríkinu allt til 1918
(ásamt Grænlandi og Færeyjum).
Þá gengu Íslendingar úr hinu forna
norska ríki og stofnaðu nýtt ríki:
Konungsríkið Ísland í þríríkja-
sambandi (tripple monarchy) við
danska ríkið og hið forna norska
ríki okkar. Íslendingar fengu þá
stjórnarskrá, sem var þýðing á
hinni dönsku stjórnarskrá, sem
er upphaflega frá árinu 1849, en
konungur var nú kominn undir
íslenska stjórnarskrá (constitutio-
nal monarchy).
Í fullveldissamningnum við Dan-
mörku-Noreg hið forna frá 1918 lá
réttur Íslendinga til að leysa sig
undan konungsvaldi og var það
þess vegna afgreiðslumál þegar
Íslendingar afnámu konung 1944
og stofnuðu annað lýðveldi Norð-
urlanda. Finnland og Ísland eru því
einu ríkin á Norðurlöndum, sem
eru með nútíma stjórnarskipan,
lýðveldi.
Frá 1918-2018 eru Grænlend-
ingar og Færeyingar einu þjóð-
irnar, sem eftir eru í hinu forna
norska ríki, og þurfa enn að lúta
undir sama stjórnarfar og Íslend-
ingar fyrir 1918, konunglegri ein-
valdsheimastjórn (royal absolutist
homerule systems), þó hafði heima-
stjórn Íslands sterkari stöðu gagn-
vart konunglegu samstjórninni í
Kaupmannahöfn.
Sagan um Norðmenn, sem flúðu
undan norsku konungsvaldi vestur
í haf fyrir um það bil 1200 árum, er
stórkostleg en þversagnarkennd
saga um frelsisþrá og þingræði.
Þrándur í Götu var mikill þing-
ræðissinni og barðist gegn konungs-
og kirkjuvaldi í Færeyjum en hann
lést árið 1035. Færeyingar gáfu sig
undir norskt konungsvald á undan
Grænlendingum og Íslendingum.
Fót setur enginn fyrir annan, nema
fallkominn sé sjálfur, 1177-1319
ríkti færeyska konungsættin yfir
Noregsríki. Var það Hákon gamli,
afasonur Sverris konungs og ömmu-
sonur Ástríðar dóttur Hróa biskups,
bæði frá Kirkjubö í Færeyjum, sem
gerði sáttmála við þing Grænlend-
inga og Íslendinga 1261 og 1262 um
að ganga inn í norska konungsríkið.
Má geta þess að lýðræðislega
kjörinn forseti Íslands, Guðni Th.
Jóhannesson, er afkomandi Sverris
konungs, sendi ég honum og
íslensku þjóðinni mínar árnaðar-
óskir á þessum tímamótum.
Látið lýðræðisljósið lýsa upp til
nágrannaþjóða Íslands!
Brennið þið vitar!
Sveinur Ísheim
Tummasson
rithöfundur
og stjórnmála-
fræðingur
Guðmundur
Steingrímsson
Í dag
Að líta í eigin barm
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 3 . d e S e M B e R 2 0 1 8
0
3
-1
2
-2
0
1
8
0
5
:0
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
9
C
-A
D
B
C
2
1
9
C
-A
C
8
0
2
1
9
C
-A
B
4
4
2
1
9
C
-A
A
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K