Fréttablaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 10
ÁRSMIÐINN
INNIFALINN
Það tekur tíma að fara í ferðalag sem nær yfir 1200 ár. Nú er miðinn þinn
í Þjóðminjasafnið og Safnahúsið líka árskort. Hann gildir í heilt ár svo
þú hefur nægan tíma og ert velkomin/n eins oft og þú vilt.
Árskort gildir 1/12/2018-30/11/2019
og kostar 2000 kr.
Sími +354 530 2200
Opið alla daga 10–17
Lokað mánudaga 16/9–30/4
Þjóðminjasafn Íslands
Suðurgata 41
101 Reykjavík
Safnahúsið
Hverfisgata 15
101 Reykjavík
www.thjodminjasafn.is
@icelandnationalmuseum
@thjodminjasafn
Fótbolti Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu mun verja drjúgum
tíma í flugi og öðrum samgöngu-
mátum frá því í mars á næsta ári
fram til mars árið 2020. Dregið var
í riðla fyrir undankeppni EM 2020 í
Dublin á Írlandi í gær og lenti Ísland
í H-riðli með Frakklandi, Tyrklandi,
Albaníu, Moldóvu og Andorra. Þrjú
þessara landa eru í um það bil 5.000
kílómetra fjarlægð frá Íslandi og
því ljóst að löng ferðalög eru fram
undan.
Efstu tvö sætin í riðlinum munu
koma íslenska liðinu áfram í loka-
keppni mótsins og þriðja sætið
getur gefið möguleika á umspili
um laust sæti á mótinu. Það er því
fínn möguleiki á að Íslandi takist að
tryggja sér sæti á þriðja stórmótinu í
röð. Fyrsti leikurinn fer fram í mars
á næsta ári og undankeppninni
lýkur um það bil ári síðar.
Íslenska liðið mun mæta því
moldóvska í fyrsta sinn þegar þau
mætast í undankeppninni. Mol-
dóva var eitt fjögurra liða sem
Ísland gat mætt í fyrsta sinn í und-
ankeppninni. Flestir í liðinu leika í
heimalandinu og er það í 170. sæti
á styrkleikalista FIFA. Síðustu fjögur
ár hefur lið Moldóvu aðeins unnið
Andorra og San Marínó.
Stutt er hins vegar síðan Ísland
mætti bæði Tyrklandi og Frakk-
landi og þá mætti Ísland liði Alban-
íu í undankeppni HM 2014. Þá hefur
Ísland mætt Andorra fimm sinnum,
fyrst í undankeppni EM 2000 en
þrisvar í æfingarleik síðan þá.
Erik Hamrén, þjálfari íslenska
liðsins, var viðstaddur dráttinn og
ræddi riðilinn sem liði lenti í eftir
að dregið var í samtali við heima-
síðu KSÍ.
„Þetta er áhugaverður riðill, erf-
iður riðill. Við hefðum getað fengið
auðveldari riðil en að sama skapi
hefði hann getað verið erfiðari,
þú veist hins vegar aldrei hversu
erfiður hann er fyrr en þú spilar
leikina. Frakkar eru að sjálfsögðu
sigurstranglegastir, síðan fengum
við Tyrki og við vonum bara að
við höldum áfram að ná góðum
úrslitum gegn þeim eins og undan-
farið. Við þurfum að vera góðir, öll
lið þurfa að vera það ef þau ætla sér
alla leið í úrslitakeppnina. Það á við
í öllum leikjum,“ segir Hamrén.
hjorvaro@frettabladid.is
Ísland lenti í snúnum riðli
Ísland mætir ríkjandi heimsmeisturum Frakklands, Tyrklandi, Albaníu, Moldóvu og Andorra þegar liðið
tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu karla sem fram fer víðs vegar um Evrópu árið 2020.
Ómar Smárason, Klara Bjartmarz, Gunnar Gylfason, Guðni Bergsson og Erik
Hamrén voru fulltrúar KSÍ við dráttinn í Dublin í gær. NorDicpHotoS/GEtty
Fótbolti Matth ías Vil hjálms son og
liðsfélagar hans hjá Rosenborg urðu
norsk ir bikar meist arar í knatt spyrnu
karla í gær. Rosen borg vann 4-1 sig-
ur þegar liðið mættir Ströms god set
í bikarúr slita leik sem leikinn var á
Ulle va al-leik vang in um í Osló.
Matth ías sat sem fastast á vara-
mannabekknum allan leikinn. Það
var danski landsliðsframherjinn
Nicklas Bend tner sem skoraði tvö af
mörk um Rosen borg en hann er á leið
í 50 daga fang elsi vegna líkamsárásar
á leigubílstjóra fyrr á þessu ári.
Rosen borg er því tvö fald ur meist-
ari og er þetta í tí unda skipti sem
liðið nær þeim ár angri en Rosen borg
vann bikar meist ara titil inn í tólfta
sinn. Matth ías hefur nú þrisvar orðið
norsk ur bikar meist ari með Rosen-
borg og þá var þetta hans sjö undi
stóri tit ill með fé lag inu. – hó
Matthías
norskur
bikarmeistari
Nicklas Bendtner skoraði tvö mörk
fyrir rosenborg. NorDicpHotoS/GEtty Riðill Íslands í undan-
keppni EM 2020
H-riðill
Frakkland
Ísland
tyrkland
Albanía
Moldóva
Andorra
3 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m Á N U d A G U r10 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sport
0
3
-1
2
-2
0
1
8
0
5
:0
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
9
C
-A
8
C
C
2
1
9
C
-A
7
9
0
2
1
9
C
-A
6
5
4
2
1
9
C
-A
5
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K