Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.12.2018, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 03.12.2018, Qupperneq 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 V E R N D A R VÆ N G U R E D D U H E I Ð R Ú N A R B A C K M A N „Það fer sama orkan í að elska og skapa“ Edda Heiðrún Backman 26.900 kr. Sængurver og koddaver Edda Heiðrún Backman, leikari, leikstjóri og mynd­ listamaður lést árið 2016 eftir hetjulega baráttu við MND­sjúkdóminn. Í veik­ indum sínum náði Edda stórfenglegum árangri í að mála með munninum. Hún gerði helst myndir af fuglum og fólkinu sem henni var kært. Í samráði við fjölskyldu hennar þá höfum við prentað eitt hennar allra þekktasta verk, VERNDARVÆNG, á sængurfatnað. Sængurfötin eru úr sérlega mjúku bómullarsatíni. Framleidd af þýska fyrirtækinu Elegante. Falleg og hlýleg jólagjöf. 3 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m Á N U d A G U r22 l í f i ð ∙ f r É T T A b l A ð i ð The cave people nefnist upplifunartúr þar sem gestir fá að gægjast 100 ár aftur í tímann og kynnast því hvern-ig var að búa í helli. Laugarvatnshellir er manngerður hellir í nágrenni við Laugarvatn en ekki er vitað hver eða hverjir komu að gerð hans – einhverjir hafa hald- ið því fram að írskir munkar hafi grafið þennan helli fyrir landnám, en enginn veit það með vissu þó. Lengi vel var hellirinn notaður af bændum sem skýldu sér og sauðfé sínu þar. Árið 1910 flutti ungt par inn í hellinn og bjó þar í heilt ár, átta árum síðar flutti svo annað par þangað og bjó í fjögur ár. The cave people býður upp á ferðalag inn í líf þessa fólks. „Í þessum helli bjuggu síðustu hellisbúar Íslands. Þegar þau flytja út árið 1922 var allt tekið niður – en þau höfðu byggt fínasta íbúðarhús- næði þarna. Það var árið 2017 sem við endurgerðum það húsnæði og í dag lítur þetta nokkurn veginn út eins og það gerði þegar fólkið bjó þar,“ segir Smári Stefánsson hjá The cave people. Smári segist hafa haft þessa hug- mynd í kollinum í nokkurn tíma en hann hefur rekið ferðaþjónustu- fyrirtæki svona til hliðar við önnur störf síðan árið 2008. Árið 2016 ákvað hann að kýla á þetta og fara að undirbúa verkefnið. „Mér fannst þetta svo ótrúlega merkilega saga og ég tók eftir að enginn var að segja hana. Þannig að við fórum í að endurgera hellinn svo fólk gæti farið hundrað ár aftur í tímann og upplifað hvernig það væri að búa þarna.“ Farið er með fólk inn í hellinn þar sem því er sýnt hvernig búið var í honum, en hellirinn er allur inn- réttaður með húsgögnum og segir Smári að þetta sé í raun lifandi safn. „Þarna inni segjum við gestum svo sögu hellisbúanna; hvers vegna þeir bjuggu þarna, sögur af erfið- leikum þeirra og hamingju.“ Árið 2017 þegar The cave people var að fara af stað með verkefnið ákváðu þau að skrá sig í viðskipta- hraðalinn Startup Tourism. „Þetta var rosalega gott fyrir okkur vegna þess að við vorum með lausmótaða hugmynd þegar við byrjuðum. Það er svo margt í svona ferli sem maður áttar sig ekki á fyrr en maður rekur sig á, hlutir sem maður fattar ekki að hugsa út í einu sinni fyrr en maður þarf að gera þá. Með því að fara í þennan hraðal var okkur ýtt út í alls kyns sem við hefð- um kannski ekki hugað að nema fyrir það. Það er í raun þessum við- skiptahraðli að þakka að við gátum opnað þarna strax vorið 2017 – þetta hefði pottþétt ekki verið til- búið þá hefðum við ekki tekið þátt. Síðan er auðvitað frábært að hitta fólk sem hefur verið í sömu sporum og kann þetta – maður fær hálfgert „short cut“ og þarf ekki endilega að reka sig á allt.“ Boðið er upp á The cave people túrinn í allan vetur. Fyrsta árið var lokað yfir veturinn en viðtökurnar hafa verið það góðar segir Smári að ekkert var í vegi fyrir að opið væri yfir veturinn þetta árið. Smári segir að gestir hellisins séu góð blanda íslenskra og erlendra ferðamanna – Íslendingar hafi verið í meirihluta fyrst þegar þeir opnuðu en svo hafi þetta blandast og sé nán- ast jafnt í dag. Í dag er síðasti dagurinn til að sækja um í Startup Tourism við- skiptahraðlinum. stefanthor@frettabladid.is hellisbúa  Í fótspor íslenskra Laugarvatnshellir er manngerður hellir við Laugarvatn og fyrir hund rað árum bjó þar fólk í nokkur ár. Ferðaþjónustufyrirtæki endurbyggði vistarverurnar og segir sögu þeirra í upplifunarferð. Hellirinn í vetrarbúningi. Gestir Laugarvatnshellis ferðast hundrað ár aftur í tímann, en þá var síðast búið í hellinum. Mér fannst þetta svo ótrúlega Merkilega saga og ég tók eftir að enginn var að segja hana. þannig að við fóruM Í að endurgera hellinn svo fólk gæti farið hundrað ár aftur Í tÍMann og upplifað hvernig það væri að búa þarna. 0 3 -1 2 -2 0 1 8 0 5 :0 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 9 C -A 8 C C 2 1 9 C -A 7 9 0 2 1 9 C -A 6 5 4 2 1 9 C -A 5 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.