Fréttablaðið - 10.12.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.12.2018, Blaðsíða 8
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Íslenskir stjórnmála- menn geta ansi margt lært af framgöngu Lilju. Við viljum að börnin okkar verði leiðandi í fjórðu iðn- byltingunni. Það er spenn- andi og framsækið verkefni. VERÐ FRÁ 89.900 KR. NÁNAR Á UU.IS SKÍÐAFERÐIR TIL MADONNA, ÍTALÍU ● SÍÐUSTU SÆTIN Á SKÍÐI Einlægni og hreinskilni eru mikilvægir eiginleikar en því miður ber ekki nægilega mikið á þeim í fari íslenskra stjórnmála-manna. Þjóðin myndi kunna svo miklu betur við stjórnmálamenn sína ef þeir leyfðu sér að sýna einlægni í stað þess að tala vélrænt, nánast eins og þeir hafi verið prógram- meraðir á flokksskrifstofunni. Íslenskir stjórnmálamenn eiga ekki einungis í erfiðleikum með að tala af einlægni, þeir eiga einnig í erfiðleikum með að iðrast einlæglega – eins og þjóðin hefur orðið vitni að síðustu daga og vikur. Þeir muldra einhver afsökunarorð, mest til að friða kjósendur, en það sést langar leiðir að þeir eru svekktastir yfir því að upp um þá hafi komist. Þeim virðist ómögulegt að viðurkenna að athæfi þeirra hefur leitt til þess að trúnaðarbrestur hefur orðið á milli þeirra og þjóðar- innar. Eftir skandalinn hafa flestir þeirra vit á að láta lítið fyrir sér fara en öllum er ljóst að þeir sjá enga ástæðu til að hverfa úr íslenskri pólitík. Þeir leyfa sér að treysta á skammtímaminni þjóðarinnar. Síðustu árin hefur þjóðin ekki haft stjórnmála- menn sína í sérstökum hávegum. Hún býst ekki við neinu frá þeim, nema þá helst skandölum, smáum og stórum. Þar hafa stjórnmálamenn staðið sig og verið ansi iðnir við að gjaldfella sig. Þeir hafa brugðist sjálfum sér, vinnustað sínum og þjóðinni. Það var því nánast eins og opinberun þegar menntamála- ráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mætti í Kastljósþátt á dögunum og talaði sig inn í hjörtu þjóðarinnar með einlægni, heiðarleika og innri styrk að vopni. Jafnvel þeir sem hafa algjörlega gefist upp á íslenskri pólitík hljóta að hafa öðlast vott af von. Þingmennirnir sem sátu á Klausturbar og ræddu um fyrrverandi samstarfskonu sína, Lilju Alfreðs- dóttur, viðhöfðu þar ljótustu og viðbjóðslegustu orð sem hægt er að segja um nokkra konu. Þeir sem halda því fram, og það eru aðallega karlmenn, að stjórnmál séu harður heimur og þar verði fólk að sætta sig við alls kyns ummæli eru á algjörum villigötum í þeirri röksemdafærslu. Orðin sem Miðflokksmenn létu falla á barnum eru lýsandi fyrir ofbeldishugsun í garð kvenna. Engin kona á að þurfa að þola slík ummæli. Það var ákveðin frelsun fólgin í því að Lilja skyldi mæta í sjónvarpssal og svara ofbeldistali þessara manna. Til þess þurfti andlegan styrk, kjark og þrek og Lilja er greinilega rík af þeim eiginleikum. Þarna mætti sterk kona sem svaraði fyrir sig af festu og afgreiddi málið í lykilsetningu: „Ofbeldismenn hafa ekki dagskrárvald í íslensku samfélagi.“ Íslenskir stjórnmálamenn geta ansi margt lært af framgöngu Lilju. Hún talaði við þjóðina án þess að setja sig í stellingar, var hún sjálf og full af einlægni. Fólk kunni vel við hana um leið og það dáðist að henni. Það er nóg komið af baktjaldamakki og sora í íslenskri pólitík, þar skortir tilfinnanlega heiðarleika og einlægni. Þessir góðu eiginleikar finnast þó samt, eins og Lilja Alfreðsdóttir sýndi þjóðinni svo eftir- minnilega. Einlægni Börn eru flest neytendur tækni en ekki skap-arar hennar. Það má segja að þegar kemur að tækni kunni börn að lesa en ekki skrifa. Með því að kenna forritun og tölvunarfræði á grunn- skólastigi mætti snúa þessu sambandi við og gera börn betur í stakk búin til að takast á við fram- tíðina. Forritunarmál eru einu tungumálin sem tölvur skilja. Til að geta talað við tölvur þarf að læra for- ritun og forritunarkunnátta því hluti af læsi 21. aldar. Grunnskólinn hefur lykilhlutverki að gegna þegar kemur að því að vekja áhuga hjá börnum og skapa grunn sem nýtist þeim til framtíðar. Að sameina leik og lærdóm með efni sem vekur áhuga og höfðar til barna. Við þurfum að þroska hæfileika barnanna til að greina vandamál, brjóta þau niður í smærri verkefni og leysa þau, m.a. með tækni. Að nota tækni sem verkfæri. Tæknilæsi og færni til að skilja hvernig tölvur virka verður sífellt mikil- vægari. Ekki munu öll börn verða forritarar eða tölvunar- fræðingar, ekki frekar en stærðfræðingar. Samt kennum við stærðfræði í grunnskólum til að búa til grunn sem þau búa að í verkefnum framtíðarinnar. Til þess að vekja áhuga fleiri á þessu sviði. Aukinn skilningur á tækni og beitingu hennar eflir kerfis- bundna og gagnrýna hugsun á mörgum sviðum. Þannig opnast dyr að nýjum og eftirsóknarverðum störfum í framtíðinni. Tölvur og vélmenni eru orðin hluti af daglegu lífi og munu verða enn veigameiri þáttur. Það er mikil- vægt að kunna að nota þessi tæki en líka að hafa grunnhugmynd um hvernig hún virkar. Ég mun því á næsta fundi borgarstjórnar leggja fram tillögu um innleiðingu forritunarkennslu í grunnskólum. Við viljum að börnin okkar verði leiðandi í fjórðu iðnbyltingunni. Það er spennandi og framsækið verkefni. Tæknibyltingu í grunnskóla Katrín Atladóttir borgarfulltrúi og hugbúnaðarverk- fræðingur Þar rigndi sandi Hæstiréttur kvað á fimmtudag upp þann dóm sinn að úthlutun makrílkvóta árið 2011 hefði ekki verið í samræmi við lög og reglur. Jón Bjarnason, þáverandi sjávarútvegsráðherra, greip til varna og sagði að hann væri barasta ekki sammála niður- stöðu Hæstaréttar. Fetar hann þar meðal annars í fótspor Sigríðar Á. Andersen dóms- málaráðherra en hún gaf út sambærilega yfirlýsingu eftir að dómstóllinn staðfesti að hún hefði brotið stjórnsýslulög við skipan dómara í Landsrétt. Jón Bjarnason má þó eiga það að hann sleppti því í þetta skiptið að nefna að það hefði rignt sandi undir Eyjafjöllum. Fýlupúkinn Þar sem styttist í að Alþingi fari í jólafrí er ekki úr vegi að minnast á það hvaða þingmaður hefur oftast uppskorið „hlátur í þingsal“ á haustþingi. Ræðurit- arar þingsins færa slíkt til bókar og fella inn í ræðutexta. Einföld leit á þingvefnum leiðir í ljós að forsprakki Fýlupúkafélagsins, Sjálfstæðismaðurinn Brynjar Níelsson, hefur fjórtán sinnum fengið menn til að skella upp úr. Þorsteinn Víglundsson og for- setinn, Steingrímur J. Sigfússon, koma næstir með fimm. Oftast var hlegið í veiðigjaldaumræð- unni, fjórtán sinnum, en þrettán sinnum þegar ný mannanafna- lög voru rædd. joli@frettabladid.is 1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m Á N U d A G U r8 s k o ð U N ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN 1 0 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 B 0 -6 2 A 0 2 1 B 0 -6 1 6 4 2 1 B 0 -6 0 2 8 2 1 B 0 -5 E E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.