Stjarnan - 01.11.1926, Síða 15
STJARNAN
i75
kemur út mánaSarlega.
íntgefendur: The Western Canadian
Union Conference S.D.A. Stjarnan kost-
ar $1.50 um áriS I Canada, Bandaríkj-
unum og á íslandi. (Borgist fyrirfram).
Ritstjóri og ráSsmaSur :
DAVIÐ GUDBRANDSSON,
Skrifstofa:
30 6 Sherbrooke St., Winnipeg, Man.
Phonie: 31 708
Afturhvarf Hudson Taylors.
Frh. frá bls. 162.
“En hvernig?” spurSi sonurinn hissa.
“Hefir Amalía brotið loforS sitt, sem
hun gaf mér um aÖ segja engum frá
því?”
“Nei, barnið mitt, GuÖ hefir sjálfur
sagt mér það, þegar eg á hnjánum var aö
biÖja fyrir þér.” Og svo sagði hún hon-
um hvað heföi hent sig„ hvernig hún
heföi haldiö áfram að biðja, þangað til
að hún gæti ekki lengur, heldur yrði að
lofa og prísa Guö fyrir afturhvarf sonar
síns.
Já, þannig fylti hinn mikli fögnuður
hjarta hins unga, elskulega Hudson Tay-
lors. Langar þig að öðlast þennan sama
fögnuð? þá gjörðu það, sem Guðs orð
segir þér: Sonur minn ! dóttir mín ! gefðu
mér hjarta þitt.
í FRÉTTIR.
Aftur viljum1 vér nota tækifærið til að
þákka þeim, sem hafa sent inn gjafir til
kristniboðsins. En því miður vanrækja
margir að senda inn andvirði Stjörnunn-
ar. Væri ekki hentugur tími að gjöra
það núna?
Tossi kaddínáll, sem einnig er erki-
biskup í Mílano, hefir gefið út skipun
um að banna inngöngu í kirkjur í hans
umdæmi þeim konum, sem hafa of stutt
pils, of stuttar eða engar ermar, of fleg-
in f-öt eða gagnsæ, með öörum orðum
neita öllum konum, sem eru ósæmilega
klæddar, inngöngu í kirkjurnar. — Vér
erum hræddir um að margar konur
þyrftu að standa fyrir utan kirkjudyr í
þessari álfu, þar sem varla ein kona af
hverju hundraSi í hinum almennu kirkj-
um, kemur til fara i guðshús eins og
kristilegri konu! sæmir. Það er auðvitað
ögn skárra á veturna vegna kuldans.
Vegna þess að svo margir Þjóðverjar
féllu í stríðinu mikla, sér maður þar í
landi í einu einasta blaði 50 og jafnvel
60 auglýsingar frá stúikum og ekkjum,
sem vilja fá sér eiginmenn.
í fyrsta sinni hefir hiö nafnfræga
enska félag “Lloyd’s gefið kvennmanni
heiðurspening. Kvenmaðurinn, sem hlaut
þann heiður, er fimtán ára stúlka, sem
heitir Ethel Langton. Hún gætti alein
ljóssins í Bembridge vitanum í þrjá sól-
arhringa; því að foreldrar hennar höfðu
farið til að sækja vistir og gátu ekki
komið út til vitans aftur vegna ofveðurs.
Hafði hún aðeins tvö pund af brauði til
að nærast á þennan tíma, en með vissu
millibili klifraði hún upp hinn tuttugu
feta háa stiga og lét hið skæra ljós varpa
geislura s'ínum út yfir hið ólgufulla haf,
til þess að gleðja siglingamenn og vara
skipin við hættunni.
Nú hafa tveir læknar, Herman Blum-
gart og Soma Weiss, á Thorndyke rann-
sóknarstofunni í Boston, fundið aðferð
til að mæla hraða blóðsins í mannslík-
amanum. Er radium notað til þess. Þessi
uppgötvun irnun fá feykimikla þýðingu í
meðferð og lækningu hjartasjúkdóma.