Stjarnan - 01.11.1931, Blaðsíða 15

Stjarnan - 01.11.1931, Blaðsíða 15
STJARNAN 175 I * > fyrir sér í þjáningum hans og dauÖa á krossinum, hvílíkt furðuverk myndi þaS ekki gera. Hugarfar mannsins yrði gjör- breytt viö þá sjón. Hatur og reiði myndi hverfa, en í staÖ þess koma kærleiki og meðaumkvun. Vantraust myndi breyt- ast í traust og vináttu. Lögleysi og rang- læti myndi hverfa, en auðmýkt og réttlæti koma í staðinn. Félagslífið myndi gjör- breytast. Vér þurfum Krist. Hann er eina með- alið við sjúkdómi syndarinnar. Guð gefi oss vizku til að velja hinn rétta veg, hugrekki til að líta á sjálfa oss eins og vér erum, eins og Guð sér oss—sem glat- aða syndara, fjarlæga Guði, og vilja til að snúa oss til Drottins og þiggja hjá honum fyrirgefningu, frið og frelsun. —E. S. Smávegis Blindir menn sjá það ekki Að lokinni samkomu sem haldinn var undir beru lofti nálægt Glasgow fyrir nokkru síðan, gekk einn áheyrendanna upp að ræðupallinum rétt um leið og ræðumaðurinn ætlaði að enda samkom- una með blessunarorðum yfir þeim sem viðstaddir voru. Hann baS um leyfi til að tala nokkur orð, og er það var fengið hóf hann iriál sitt á þessa leið: “Vinir mínir, eg vona að þér trúið engu af því, sem talað var. Eg trúi ekki einu ein- asta orði af þvi. Eg trúi ekki á neinn dóm, heldur ekki á himnaríki eða hel- víti. Eg trúi hvorki á Guð né djöfulinn, eg hef hvorugan séð.” Svona lét hann dæluna ganga, en enginn þeirra, sem við- staddir voru, studdi mál hans. Þegar hann hætti stóð annar maður upp og bað um leyfi.til að segja orð. SiSan sagði hann: “Vinir minir, þér segið mér að fljót renni skamt héðan, fljótið Clyde. Eg trúi því ekki. Það er ekki STdARNAN kemur út mánatSarlega Útgefendur: The Western Canadian Union Conference S.D.A. Stjarnan kost- ar $1.50 um áriS í Canada, Bandaríkj- unum og á Islandi. (Borgist fyrirfram). Ritstjóri og ráðsmaður: DAVÍÐ GUÐBRANDSSON. Skrifstofa: 306 Sherbrooke St., Winnipeg, Man. Phone: 31 708 satt. Þér segið mér að fagrir runnar, tignarleg tré og grænir grasfletir séu hér umhverfis. Eg trúi ekki þessu. Þér segið að sólin skíni á himninum, og að fjöldi fólks sé hér saman komin. Þetta er ekki satt. “Flestir ykkar halda að líkindum að eg sé ekki með réttu ráði að tala þannig. En, vinir minir, eg er fæddur blindur. Eg hef aldrei séð heiðbláan himininn, háu trén, græna grasið eða fljótið Clyde. Eg get ekki séð neinn ykkar. Þegar eg neita tilveru alls þess er eg hefi nefnt, þá sýni eg einungis að eg er blindur. Og þú,” sagði hann og benti í áttina þaðan sem hann heyrði orð fríhyggjumannsins, “því lengur sem þú talar, því betur geta menn séð fávizku þína og þekkingar- leysi. Þú ert andlega blindur og getur ekki séð.” Þessi orð höfðu áhrif. Fólksfjöldinn lét í ljósi velþóknun sína með lófaklappi. Þegar ungum manni var sagt að hann myndi svelta i hel, því hann fengi ekkert að vinna ef hann héldi heilagan hvíldar- dag Drottins, það er sjöunda daginn, þá svaraði hann: “Hvað gerir það til? Eg vil heldur deyja í hlýðni við Guð og honum vel- þóknanlegur, heldur en að lifa í óhlýðni við hann.”

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.