Stjarnan - 01.03.1933, Qupperneq 2
34
STJARNAN
Ennþá gjörir Guð kraftaverk
Trúbo'ÖsstaríiÖ á Filippus eyjunum hef-
ir gcngiÖ mjög vel. Það er ekki þar með
sagt að það hafi ætíð veriö auðvelt og
hættulaust. Kristniboðarnir hafa oft
mætt mótstöðu og ofsóknum. Hér eru
nokkur atvik sem sagt var frá á presta-
fundi í Cebu:
Einu sinni kom maður með því áformi
að eyðileggja samkomurnar svo þeim yrði
hætt. En hann var skírður áður en þeim
var lokið. “Sannleikurinn er voldugur,”
bætti sá við er frá sagði.
Annar starfsmaður sagði aö mikið and-
legt myrkur ríkti þar sem hann starfaði.
Fólkið félli á kné á götunum til að kyssa
hönd prestsins. Á kirkjuhátíðum kastaði
það spjótum, æpti og dansaði. En 350
manns höfðu þó snúið sér til Guðs í því
héraði.
Einu sinni hótaði maður að drepa mig.
Hann reyndi að draga hníf sinn úr skeiö-
um, en gat það ekki svo hann barði mig
í andlitið með hendinni. Eg bar mig ekki
á móti. Aftur reyndi hann að draga hníf
sinn úr skeiðum, hann reyndi það 10
sinnum en altaf árangurslaust. Svo barði
hann mig aftur með hendinni en iðraðist
jafnskjótt eftir. Hann sagðist halda að
yfirnáttúrlegur kraftur hefði hindrað sig
frá að ná út hnífnum. Hann baS auð-
mjúklega um fyrirgefningu, og eg frétti
nýlega að hann væri farinn að fá áhuga
fyrir Guðs orði.
Einn sagði frá manni, sem hafði komið
til að mæta dætrum sínum rétt þegar þær
komu upp úr vatninu eftir að vera skírð-
ar. Hann hafði tvisvar hlaupið heim eftir
langa hnífnum sínum, en ekki fundið
hann, svo hann tók stóran staur og barði
stúlkurnar með honum og rak þær þannig
heim á undan sér. Daginn eftir kom hann
niðurbrotinn til trúboöans og bað um
fyrirgefningu. Kona trúboðans rannsak-
aði líkama stúlknanna og fann engin
merki á þeim eftir höggin. Stúlkurnar
sögðu að þær hefðu ekki fundið til sárs-
auka þegar hann barði þær. Þetta atvik
minnir á mennina, sem kastað var inn i
eldinn en eldurinn sakaði þá ekki.
Maður nokkur kom á samkomurnar i
því skyni að trufla og hindra þær. Hann
settist á yzta bekkinn og sat þar unz sam-
komunni var lokið. Kvöldið eftir sat
hann lítið eitt nær ræðumanninum. Kvöld
eftir kvöld settist hann svolítið innar í
hvert skifti, þar til hann loks sat á
fremsta bekk. Innan skamms bað hann
um að mega sameinast söfnuSinum.
Annar maður færði trúboðanum lang-
an hníf og sagði: “Þetta er hnífurinn,
sem eg ætlði að drepa þig með, en nú bið
eg þig auðmjúklega að fyrirgefa mér.
Litlu seinna var þessi maður skírður.
7,000 manns hafa alvarlega snúið sér til
Guðs á suðurhluta þessa eyjaklasa, og
starfsmennirnir segja að áhugi fyrir Guðs
orði sé vaknaöur alt umhverfis.
Að sjá syndara snúa sér til Guðs, svo
að hugarfar og líferni þeirra verði um-
myndað eftir Jesú fyrirmynd, það er hið
dásamlegasta og dýrðlegasta kraftaverk
sem til er. R. H.
Tilraunir, sem gjörðar hafa verið sýna,
að 57 og hálft bushel af mais gefur af
sér eins mikinn hita ef því er brent, eins
og skippund af bestu kolum. Svo bænd-
urnir í þeim ríkjunum, sem framleiða
mest af maís, eins og t. cl. Nebraska, þar
sem kol eru í háu verða, þeir gjöra sér
gagn af hinni ágætu uppskeru af maís, til
að halda á sér hita, engu síður en til að
fæða sig og skylduliö sitt.
Ennþá er barist á móti öllu, sem minnir
á konungsvaldið á Spáni. Það hefir ver-
ið auglýst aS engin bréf til aðalsmanna
verði flutt í póstinum, ef aðalsmanns tit-
illinn er notaður utan á bréfinu.