Stjarnan - 01.03.1933, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.03.1933, Qupperneq 3
STJARNAN 35 Er ekki sama hverju maður trúir ef maður er einlægur í trúinni ? Margir halda því fram að þaÖ sé sama hverju maður trúir ef maÖur er einlægur í trú sinni. Þetta er ein af þeim tálsnör- um, sem satan leggur fyrir menn, þeim til glötunar ef þeir láta leiÖast af þeirri lýgi hans. Vér skulum nú athuga þetta nákvæm- lega og sjá hvert stefnir. Jesús sagÖi: “Sá, sem trúir á mig hann mun lifa þótt hann deyi.” Lúk. 11125. “Trúið á GuÖ og trúið á mig.” Jóh. 14:1. Hér gefur Jesús beina skipun um að trúa á sig og föðurinn. Enn fremur segir hann: “Sá, sem trúir á soninn hefir eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum skal ekki sjá lífið heldur varir Guðs reiði yfir honum.” Jóh. 3 :3Ó. “En í því er hið eilifa lífið fólgið, að þeir þekki þig, hinn eina sanna GuS, og þann, sem þú sendir Jesúm Krist.” Jóh. I7:3- Samkvæmt þessu er það sáluhjálpar skilyrði að trúa á Jesúm og hlýða honum, þetta er Jesú eigin vitnisburður. Hér er aðeins um tvent að velja. Annaðhvort kjósum vér Jesúm fyrir leiðtoga og hlýð- um honum, eða þá vér göngum í lið með satan, sem gjörði uppreisn á himni og var kastað niður á jörðina þar sem hann nú starfar í miklum móð, af því hann veit hann hefir nauman timann til þess aö eyðileggja Guðs riki og Jesú trú í hjörtum manna. Þeir, sem kannast við Jesúm sem Guðs son og frelsara mannkynsins, eins og hann í sannleika er, þeir hljóta að trúa orðum hans, en hafna hinni háskalegu kenningu, sem segir það sé sama hverju maður trúir. Þeir, sem aðeins viður- kenna Jesúm sem mann, en hinn besta og fullkomnasta mann, seni uppi hefir verið, þeir hljóta einnig að taka orð hans fram fyrir allra annara manna. Svo eftir þessu þá geta hvorki Lúterstrúarmenn né úní- tarar lengur haldið því fram, að það sé sama hverju maður trúir. Vér skulum einnig lita á málið í ljósi skynseminnar og daglegrar reynslu. Mað- ur nokkur, sem var á heimleið, varð aö skifta um lest. Hann var glaður í von- inni um að ná heim snemma næsta morg- un, eftir langa fjærveru frá heimili sínu. Hann lagði sig til svefns um kvöldið í þessari öruggu fullvissu. Það voru held- ur vonbrigði þegar hann vaknaði um morguninn og frétti að hann væri nokkur hundruð mílur lengra í burtu frá heimili sínu heldur en hann var kvöldið áður. Hann trúði í hjartans einlægni að hann færi upp í rétta lest, sem flytti hann til heimilis hans og ástvina. Vanþekking olli vonbrigðum hans. Annar maður var veikur í rúminu, en á bata vegi, hann hlakkaði til að mega fara í fötin eftir 3-4 daga. Hann náði í meðalaflösku í skápnum, og tók inn sam- kvæmt fyrirskipun læknisins, en hann hafði tekið rangt glas, í allri hjartans ein- lægni hélt hann það væri rétta meðalið, en, hann dó af eitrinu eftir stuttan tíma. Enginn getur annan grundvöll lagt, heldur en þann, sem lagður er, sem er Jesús Kristur. Sá, sem byggir von sína um fyrirgefning synda sinna og eilíft líf (Framh. á bls. 47)

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.